08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1203 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)
26. mál, hafnargerð á Akranesi
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Það er þýðingarlaust að þræta um þetta lengur, og þegar ekkert orð er eftir haft öðruvísi en afbakað, þá eru umr. gagnslausar og engum til uppbyggingar. — Mér fannst síðasta ræðan ekkert vera annað en útúrsnúningar. — Frsm. minni hl. fór líkt að og benti á, að lagt hefði verið fram meira en 1,3 kostnaðar til hafnargerðar í Borgarnesi. En það hefir aldrei verið veitt neitt fé til hafnargerðar í Borgarnesi. Lögin, sem hv. þm. á við. voru um vegagerð í Borgarnesi og lendingarbótin var gerð í sambandi við ferðir flóabátsins eins og endastöð Norðurlandsvegar, og þess vegna var upphæðin ákveðin hærri en venja er til um hafnargerðir. Hitt er algerlega rangt hjá hv. flm., að með till. n. sé brotin regla 3 undanfarinna þinga. 1929 voru afgr. lög um hafnargerð í Hafnarfirði og var afgreiðslan þar með þeim hætti, sem n. leggur nú til, að ríkissjóði var gert að greiða 1/3. (ÓTh: Það var dálítið sérstakt með þau). Það getur enginn borið á móti því, að þau lög voru afgr. á þennan hátt. En á tveimur síðustu þingum hafa engin l. afgr. verið um hafnargerðir, svo að ekki var hægt að brjóta reglu þeirra með till. n. Hér er því alls ekki um neina stefnubreyt. að ræða, eins og hv. flm. ranglega klifar á, heldur um það að fylgja þeirri reglu, sem oftast hefir höfð verið og segja má, að hefð hafi hlotið. Óneitanlega hafa langsamlega flest fyrirmæli í lögum um hafnargerðir einmitt miðað við upphæðina 1/3 úr ríkissjóði. Ég ætla nú ekki að fara að bera á móti því fremur en öðru, að þörfin sé þarna rík, eins og hv. flm. heldur fram. En jafnframt því að leggja áherzlu á þetta vildi hann halda fram, að þörfin mundi tiltölulega lítil hafa verið á Skagaströnd, og þess vegna minni ástæða til að fara að eins og gert var 1929 um lendingarbætur og hafnargerð á Skagaströnd. En því er nú einmitt svo varið, að þarna nyrðra er mjög vítt svæði og torsótt þeim, sem sigla með ströndum fram, þar sem hvergi á löngu svæði er brúklega höfn að finna fyrr en vestur á Ströndum, þar sem skip geti leitað lands. Og þeirra hluta vegna, þótt ekki væri annað, var þarna mjög aðkallandi þörf. En þar hefir ennþá ekkert komizt í framkvæmd, þó þessi sérstöku vilkjör stæðu til boða Skagastrandarbúum.
Annars álít ég umr. og baráttu um þetta mál með öllu þýðingarlausa, hvort fleira eða færra er afbakað af því, sem sagt hefir verið, skiptir engu máli. Ég hefi það traust á hv. þdm., að þeir á eigin spýtur án útúrsnúninga hv. flm. geti ákvarðað sig um meðferð málsins.