22.07.1931
Efri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (1950)
9. mál, brúargerðir
Jón Baldvinsson:
Andmæli hv. 3. landsk. virðast af því runnin, að hann líti svo á, að þetta frv. sé svo heilagt, að ekki megi við því hrófla hið allra minnsta. Frv. virtist vera eitthvert „tabú“ í augum þessa hv. þm., sem þm. leyfðist ekki að snerta með litlafingrinum, hvað þá meira. Auðvitað bar hv. þm. „yfirvöldin“ fyrir þessu, sem í þessu tilfelli eru vegamálastjóri, og hefir mér þó jafnan skilizt svo, sem hann ætti að veru leiðbeinandi þingsins í þessum málum. en ekki að ráða þar einn öllu. Þingið á að sjálfsögðu að hafa ráðin í þessum efnum, og það eru engar röksemdir, þó að hægt sé að segja, að vegamálastjóri vilji hafa þetta svo og svo. Ég tel því rétt, að farið sé að till. n. og þessum brúargerðum bætt inn í frv., og ég fæ ekki séð, að neinn skaði væri skeður, þó að það yrði til þess, að 10–12 ám yrði bætt inn í frv. í Nd. Þetta hefði þá orðið til þess að opna augu þm. fyrir þeim farartálmum á leiðum landsins, sem þörf er á að ráða bót á.