08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

30. mál, hafnargerð á Sauðárkróki

Frsm. minni hl. (Jóhann Jósefsson):

Ég leyfi mér aðeins að skírskota til nál. á þskj. 175, og vísa til, að ágreiningur er hinn sami í þessu máli að því er hlutfallið snertir eins og áður. Ég hefi lagt til. að frv. verði samþ. óbreytt.