22.07.1931
Efri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (1989)

9. mál, brúargerðir

Frsm. (Halldór Steinsson):

Hv. 3. landsk. taldi öll vandkvæði á að samþ. brtt. n. og bar fyrir sig vangetu ríkisins. En ég vil benda hv. þm. á það, að það er alls ekki ætlazt til þess, að allar þessar brýr verði byggðar á næstu 2–3 árum þó að þeim sé nú raðað í kerfi. Eins er t. d. um síma- og vegakerfið. Það er ekki ætlazt til þess, að allir þeir símar og vegir, sem þar eru taldir, séu lagðir strax, þó að þeim sé raðað í kerfi. Það tekur auðvitað nokkur ár að byggja allar brýrnar, sem taldar eru í brúalögunum, en það er rétt að taka allar þær brýr í lögin, sem á að byggja og þarf að byggja í nánustu framtíð. Það eru því engin rök á móti brtt. n., að tala um vangetu ríkissjóðs.

Þá vil ég og mótmæla því, að ég hafi sagt, að vegamálastjóri hafi vanrækt starf sitt. Ég sagði aðeins, að innanhéraðsmenn gætu vitað eins vel og hann eða betur um óbrúaðar ár, sem þyrfti að brúa í þeirra héraði. Annað hefi ég ekki sagt, enda er mér kunnugt um, að vegamálastjóri er mjög samvizkusamur embættismaður.