22.07.1931
Efri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (1992)
9. mál, brúargerðir
Páll Hermannsson:
Ég veit, að ég þarf ekki að rifja það upp fyrir þeim af hv. þdm., sem sæti áttu í þessari hv. d. á síðasta þingi, að þá varð það að samkomulagi milli hv. dm. að hjálpa áfram því frv., sem hér liggur fyrir, án þess að gera á því breyt. Mér kemur það því á óvart að heyra, hve margir hv. dm. vilja nú bæta við frv. þetta.
Á síðasta þingi átti samgmn. ýtarlega samræðu við vegamálastjóra um þessi efni, og var þá samkomulag um að telja það heppileg vinnubrögð, að vegamálastjóri og stjórnarráðið undirbyggju slíka löggjöf sem þessa. Skyldi athuga allar aðstæður sem bezt og föng væru á, áður en slík frv. væru samin.
Það er vitanlegt, að til er fjöldi óbrúaðra vatnsfalla á landinu, sem einhverntíma þyrfti að brúa, þótt ekki séu þau nefnd hér. En ef farið er að bæta við ám í brúarl., þá er hætt við, að ýmsir komi á eftir með nýjar brtt. í viðbótaráttina, enda þótt öll héruð eigi ekki jafngóða talsmenn á þingi og Snæfellsnessýsla virðist eiga. Ég hallast þess vegna að því að halda við þá ákvörðun, sem d. hefir tekið fyrir svo stuttu síðan; en ef byrjað er á því að taka nýjar brýr inn í l., þá álít ég sjálfsagt að taka vel í fleiri till., sem fram kynnu að koma og ganga í sömu átt. En á þessu stigi málsins álít ég heppilegast að samþ. frv. eins og það liggur fyrir, án þess að gera á því nokkrar breytingar.