17.07.1931
Neðri deild: 3. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (20)
1. mál, fjárlög 1932
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil benda hv. 3. þm. Reykv. á það, að ef hann vill fá sundurliðaða og nákvæma skýrslu um eitthvað, þá er leið til þess í þingsköpum; ekki annað en gera formlega fyrirspurn. En nú er það svo, að fjármálaráðherra hefir á sínum tíma gefið mjög ýtarlega og glögga skýrslu. Síðan hefir ekkert nýtt ár yfir okkur gengið, og um það, sem upplýsa þarf síðan, verða upplýsingar lagðar fyrir deildir og nefndir.