08.08.1931
Efri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í C-deild Alþingistíðinda. (2014)
9. mál, brúargerðir
Frsm. (Halldór Steinsson):
Samgmn. flutti brtt. við frv., þar sem hún leggur til, að niður verði felldar þessar 8 brýr af frv. til l. um brúargerðir:
Brú á Miðdalsgil á Vesturlandsvegi. — Glerá í Dalasýslu,
— Geiradalsá í Barðastr.sýslu,
Brú á Prestbakkaá í Strandasýslu,
— Norðurá í Borgarf., hjá Fornahv.,
— Nesá á Vaðlaheiði,
— Fossá í Kjós,
— Jökulsá í Jökuldal.
Samkv. upplýsingum vegamálastjóra eru sumar af þessum 8 brúm taldar fullgerðar, en sumar eru í smíðum, og bar því ekki að taka þær upp í þetta frv. Auk brtt. n. liggja fyrir brtt. á 6 þskj. frá dm., er fara fram á það að taka upp í frv. 28 brýr víðsvegar um landið, ýmist á sýsluvegum eða þjóðvegum. N. hefir leitað umsagnar vegamálastjóra um þessar 28 brýr. og þó að hún geti ekki að öllu fallizt á till. hans, er þó rétt að greina frá þeim í aðalatriðum, svo að hv. d. fái sömu gögn í hendur og n. hafði sér til aðstoðar. Vegamálastjóri heldur því fram, að það sé sameiginlegt þessum 28 brúm, að brúarstæði séu lítt eða ekki rannsökuð. 17 af þessum brúm eru á þjóðvegum, en 11 á sýsluvegum. Flestar eru brýrnar smáar og kosta frá 6000–12000 kr. Telur vegamálastjóri brýr á Hofsá og Heinabergsá munu verða dýrar, þá síðarnefndu allt að 30 þús. kr. Þá getur hann ekki fallizt á það, að ríkinu beri að kosta brú á Búðará í Reyðarfirði, þar eð það brúarstæði er ekki á þjóðvegi, heldur hreppavegi.
Við III. kafla í 2. gr. hefir vegamálastjóri það að athuga, að þar eru ekki teknar upp aðrar brýr en á stórvötn og eigi þær því ekki heima þar. Alveg órannsökuð kvað hann brúarstæðin á Laxá, Norðfjarðará, Fnjóská og Smjörhálsá. Brúarstæði á Vatnsdalsá hefir verið rannsakað.
Brú á Staðará er talið að muni kosta um 12 þús. kr., brú á Jökulsá hjá Hjarðarhaga 15 þús. kr. og brýr á Múlaá og Geitá um 30 þús. kr. samtals. Ennfremur er í smíðum brú á Svartá, og mun sýslusjóður leggja þar til 1/3 kostnaðar, sem er áætlaður 23 þús. kr. Leggur vegamálastjóri til, að þessi brú verði ekki tekin upp í frv.
Þó að vegamálastjóri leggi nú á móti því, að brýr þessar verði teknar upp í frv., þá leit n. svo á, að það hefði ekki að öllu leyti við næg rök að styðjast, en nm. hafa að öðru leyti óbundin atkv. um brtt.