29.07.1931
Neðri deild: 15. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)
64. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Lárus Helgason:
Hv. þm. G.-K. hefir orðið mjög tíðrætt út af því, að margir þeirra manna, sem greiða munu þessu máli atkv. sitt, muni gera það á móti betri vitund. Hv. þm. hefir þó ekki rökstutt þessi ummæli sín á nokkurn hátt, og er mér ekki vel ljóst, hvað slík slagorð eiga að þýða, því víst er um það, að áhrif þeirra verða aldrei stórvægileg, a. m. k. ekki á mig, og mér er sama þó að slíkum orðum sé kastað fram, þótt það væri óneitanlega viðkunnanlegra fyrir höfund þeirra að reyna að finna þeim einhvern stað. En e. t. v. myndi það reynast nokkuð erfitt. Hvað ætli hv. þm. haldi, að mönnum gangi til þess að greiða atkv. þvert á móti sannfæringu sinni? Heldur hann e. t. v., að þeir séu hræddir við flm. frv. eða hvað? Eða e. t. v. hafa þeir verið keyptir til þess? Sama er mér, hvað hv. þm. heldur um þetta; ég greiði í þessu máli sem öðrum atkv. eftir beztu samvizku, og ég býzt við, að aðrir geri slíkt hið sama.
Þessi sami hv. þm. gerði mikið veður út af því, að ég hefði viðurkennt, að maður þyrfti ekki að skipta um skoðun til þess að greiða atkv. öðruvísi nú en í fyrra. Þetta er rétt hjá mér. Það getur vel komið fyrir, að maður þurfi ekki að breyta um skoðun, þótt maður greiði nú atkv. með því; sem maður greiddi atkv. á móti áður. Þegar mönnum er kappsmál að koma einhverju máli í gegn, þá reyna menn að undirbúa það sem bezt, og ef það hefir ekki náð fram að ganga á einhverju þingi, þá er mjög líklegt, að það komi betur undirbúið og upplýst fyrir næsta þing, og vex því þá af eðlilegum orsökum fylgi, án þess að nokkrar óhreinar hvatir séu þar að verki.
Hv. þm. G.-R. var að minna á það, að hv. 3. þm. Reykv. hefði verið að tala um „drauga“, sem væru nú að smáhverfa. Ég ætla ekki að skipta mér af illyrðum hv. þm., þau hafa engin áhrif á þessa atkvgr., og falla, eins og önnur illyrði hv. þm. um menn og málefni, dauð og ómerk.