08.08.1931
Efri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (2028)
9. mál, brúargerðir
Frsm. (Halldór Steinsson):
Ég þarf ekki að svara ræðum hv. flm. brtt., að öðru leyti en því, að hv. 2. þm. Árn. virtist finna mér það til foráttu, að ég minntist ekki á Kálfá, þótt vegamálastjóri hefði mælt með því, að hún yrði brúuð, en þá er því til að svara, að ég gerði það með vilja að minnast ekki á hana frekar en ýmsar aðrar ár, er frv. fjallar um. Um álit vegamálastjóra er það að segja, að hann tekur þar ekki annað fram en byggingarkostnaðinn, en álítur, að brúin eigi ekki heima í vegalögunum. Ég hélt, að hv. 2. þm. Árn. væri engin huggun í að heyra þetta álit vegamálastjóra, enda tók ég það fram, að n. væri ekki á sama máli.