10.08.1931
Efri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

1. mál, fjárlög 1932

Jón Baldvinsson:

Hæstv. forsrh. hefir nú svarað fyrirspurninni þannig, að mér komi þetta ekki við. Er það h. u. b. hið sama svar og hann hefir gefið öðrum, sem um þetta hafa spurt. Það getur vel verið, að hæstv. forsrh. geti frómt um talað, en hann ætti þó að vita það, að aðstaða þm. veitir þeim nokkurn rétt til að heimta af hverjum forsrh., að hann skýri frá því, hvað gerist viðvíkjandi stjórnarmyndun. En núv. hæstv. forsrh. ætlar nú kannske ekki að fara eftir þingræðisreglum.

Ráðh. svaraði hinni fyrirspurninni eins og ég þóttist vita, að hann gerði, með því, að það hefði verið atvinnumálaráðuneytið, sem gaf bókina út. En það hefir nú stundum verið svo, að þegar eyðsla á einhverju sviði hefir verið hneykslanleg, þá hafa flokkarnir sjálfir tekið að sér kostnaðinn, eins og Íhaldsflokkurinn gerði um vissa sendiför. Eins hefði átt að vera með þetta útgáfuhneyksli ríkisstjórnarinnar.

Hv. 5. landsk. hefir þráfaldlega verið að vitna í Englendinga sem fyrirmyndarþjóð. Mig langar því til að segja honum og hæstv. forsrh. það, að enska stj. hefir nú gefið út svipað rit og ísl. stj. Ég hefi nú bæði þessi rit við hendina. Ég hefi látið vega þau að gamni mínu, og kom þá í ljós, að rit ísl. stj. vegur 800 gr., en rit ensku stj. vegur 4 gr. og er það með 2 myndum. Það eru um 30 hlutir, sem enska stj. hefir gert og skýrir frá í þessu riti. Ég þarf auðvitað eins að skýra frá því, að það eru miklu hærri fjárupphæðir í riti ensku stj., en hvort þær eru hlutfallslega hærri en í riti ísl. stj. hefi ég ekki reiknað út. Það er enn einn munur á hinu ágæta riti ensku stj. og þeirrar íslenzku, að enska stj. hefir ekki látið atvmrn. kosta útgáfuna, heldur hafa þeir gefið hana út sjálfir. Það svarar til þess, ef Framsókn hefði látið Tímann kosta útgáfuna. Ég bendi á þetta sem dæmi, og ef það er meir en í orði, að hv. 5. landsk. er að vitna í Englendinga til eftirbreytni, þá ætti stj. að taka þá til eftirbreytni í þessu efni. Ég býst við, að ritið kosti ekki minna en það, sem hv. 3. landsk. telur, að muni kosta að koma í framkvæmd búfjárræktarlögunum, svo að hér er um verulega upphæð að ræða. Ég hefi viljað benda stj. á þetta, því hún hefir oft lýst því yfir, að hún vilji taka Englendinga til fyrirmyndar. Hér er ágætt dæmi að fara eftir og mundi áreiðanlega spara fé, ef gert væri.