07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)
64. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Einar Arnórsson:
Hv. þm. Mýr. hóf ræðu sína á þá leið, að örlög Karþagóborgar væru ákveðin, og frv. mundi verða samþ. En ég vil taka það fram, að samlíking hv. þm. er ekki heppileg, þegar vel er að gáð. Það er ekki tilætlunin að leggja Skildinganes í eyði, því það verði innlimað í Reykjavíkurbæ. Nei, miklu fremur á að reisa það upp. Ég hefi tekið það fram áður, og mér finnst að ég sýni það með till. á þskj. 165, að það er ekki ætlun Reykjavíkur að níðast á neinum. Rvík á einmitt eftir till., sem fram er komin, að greiða hrepps- og sýslufélaginu bætur að því leyti sem því yrði að skipta.
Hv. þm. Mýr. sagði, að Kjósarsýsla mundi missa ¼ af tekjum sínum, ef þessi hluti Seltjarnarneshrepps yrði lagður undir Rvík. Ég skal nú ekki um þetta fullyrða, en auðvitað losnar sýslan líka við ýmsar skyldur, svo sem að leggja vegi og fleira, og ber fyllilega að taka það til greina. Hvort Rvík þarf að bæta fyrir önnur mannvirki en vatnsveituna, er mér ekki kunnugt um. En það verður þá samningsmál eða matsatriði.
Það getur vel verið, að það sé rétt hjá hv. 1. þm. Rang. að halda því fram, að það sé ekki hagsmunamál fyrir Reykjavíkurbæ, að þessi hreppshluti sé innlimaður. En ég hefði nú samt haldið, að það hlyti að vera það, því að öðrum kasti mundi bæjarstjórnin ekki hafa óskað eftir því, að þetta mál væri flutt.
Þessi hreppshluti er inniluktur af Reykjavík og hans landfræðilega lega segir því til um það, að hann eigi að vera undir Rvík, og eins og ég hefi tekið fram áður, þá tilheyrir hann Rvík um lögreglustjórn og tollstjórn. Það mundi ekki heldur verða langt að bíða þess, að það kæmi beiðni um það, að slökkviliðið annaðist eldraunir þar. Úr því að svo er nú komið, að Reykjavík verður að annast hreppshlutann að miklu leyti, þá sýnist ekki nema eðlilegt, að hann heyri undir Reykjavík. Það eru líka mjög margir íbúar í þorpinu, sem óska eftir því, að sameining fari fram. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið.