10.08.1931
Efri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

1. mál, fjárlög 1932

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Mér þykir ánægjulegt, að hv. 2. landsk. er í góðu skapi og lætur fjúka spaugsyrði. En ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í það. Ég vildi aðeins undirstrika hvatningu í enda ræðu hans, um að taka Englendinga til eftirbreytni, og þá sérstaklega í því, hvernig ganga á frá kjördæmaskipunarmálinu og kosningum til Alþingis. Þeir eru elzta þingræðisþjóð í heimi og af þeim má mikið læra í þessum efnum.