20.07.1931
Neðri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (2046)

22. mál, Jöfnunarsjóður

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég skal ekki fjölyrða mikið frekar um þetta mál, en ég vil þó aðeins henda á það, að eftir skilningi hv. 4. þm. Reykv. er engin trygging fyrir því, að fé það, sem lagt verður í varasjóð, verði notað til framkvæmda og til atvinnuaukningar. En það er aðalatriðið, sem vakir fyrir okkur flm., að atvinnan verði jöfnuð frá ári til árs, en ekki hitt, að fé verði lagt í sjóðu til þess eins að létta sköttum af gæðingum þeirra stjórna, sem með völdin fara í landinu.