20.07.1931
Neðri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (2048)

22. mál, Jöfnunarsjóður

Magnús Jónsson:

Það er alveg rétt, sem hv. flm. segir, að þótt sú leið yrði farin, sem ég hallast að, þá yrði ekki þar með búið að ráðstafa fénu, en Alþ. er nú einu sinni búið að fá þetta mikla vald í hendur, og það á að úthluta fénu eftir því, sem það álítur bezt henta. Hv. flm. talaði um það, að það gæti komið til mála, að farið yrði inn á þá braut að létta sköttum af gæðingum stjórnanna, og það getur meir en verið. Það getur verið gott og nauðsynlegt að lækka skattana í erfiðu árunum, og ég er nú ekki ennþá kominn á þá skoðun, sem kemur fram í einu frv., sem fram hefir verið borið nú á þessu Alþ., að atvinnuvegunum sé það hollt að hækka skattana þegar harðnar í ári.

En hvaða trygging er fyrir því, að fé þetta verði greitt í jöfnunarsjóð. Á síðastl. ári reiknast mér svo til, að 2¼ millj. króna hefði átt að renna í sjóðinn, og reikna ég þá með 17. millj. tekjum. Nú vil ég spyrja: Hvaða líkur eru á því, að þessar 212 millj. hefðu runnið í jöfnunarsjóðinn? Ég sé litlar líkur til þess, að svo hefði mátt verða, því að hvar í ósköpunum átti að taka peninga til að greiða þessa upphæð?