20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)

64. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Frsm. (Pétur Magnússon):

Það var í ráði, að allshn. athugaði þær brtt., er hér liggja fyrir, á fundi í morgun, en hann fórst því miður fyrir. N. hefir því enga afstöðu tekið til þeirra, og það, sem ég segi nú, er eingöngu fyrir eiginn reikning. Ég ætla fyrst að fara nokkrum orðum um brtt. hv. 1. þm. Reykv., og byrja á 4. brtt. á þskj. 340. Aðalefni hennar er það, að Reykjavík er sett í sjálfsvald, eftir að mat hefir farið fram á skaðabótum, hvort hún vill ganga að sameiningunni eða ekki. Hv. flm. færði þau rök fyrir þessu máli, að ekki væri upplýst, hvort Reykjavík óskaði eftir þessari sameiningu, en aftur væri allkunnugt, að bæði Seltjarnarneshreppur og Gullhringu- og Kjósarsýsla eru henni mótfallin.

Þetta mál hefir nú verið flutt 5 sinnum á þingi af þm. Reykv. og bæjarstj. aldrei hreyft mótmælum gegn því. Aftur á móti hafa margar raddir komið fram um það, hvílíkt nauðsynjamál þetta væri. Ég geri fastlega ráð fyrir, að bæjarstj. hefði látið þetta mál til sín taka, ef henni hefði fundizt eitthvað ískyggilegt við það fyrir Reykjavík. Ég held, að í þessari till. hv. 1. þm. Reykv. felist engin sanngirniskrafa. Eðlilegast er, að báðir aðiljar verði jafnt settir, að Reykjavík verði að sætta sig við matið engu síður en Kjósarsýsla. Ég nefni hér Kjósarsýslu eina, en ekki Seltjarnarneshrepp, af því að ég er á þeirri skoðun, að mikill vafi leiki á um hvort Seltjarnarneshreppur eigi nokkurt tilkall til skaðabóta. Ég mun því ekki greiða atkv. með þessum brtt., að undanskildri 2. brtt., sem ég tel vera til skýringa og bóta.

Hv. 2. landsk. drap á það, að helzt mætti ekki samþykkja neina brtt. við þessa umr., til þess að málið dagaði ekki uppi. Ég sé ekki, á hverju þetta byggist, og tel sjálfsagt að samþ. brtt., ef þær eru til bóta. Ég er sannfærður um, að sá meiri hluti, sem samþ. frv. í Nd., muni eins samþykkja það nú, þótt smáar brtt. séu gerðar, sem bæti það og geri það greinilegra og skýrara.

Um brtt. hv. l. landsk. er það að segja, að ég mun greiða atkv. með þeim öllum, því að ég tel þær allar til bóta. Brtt. við 2. gr. frv. eru alveg sjálfsagðar. Það er rétt, að það komi skýrt fram í frv., hvernig afhendingin eigi að fara fram.

Aðalbrtt. hv. l. landsk. er um skipun gerðardómsins. Þótt ég ætlaði að sætta mig við það fyrirkomulag, sem frv. benti á, þá tel ég þetta miklu tryggari skipun á gerðardómnum. Ég þekki vel gerðardóma, sem eru eins skipaðir og gert er ráð fyrir í frv., þar sem tveir dómendanna skoða sig sem málaflutningsmenn hvor fyrir sinn málsaðiljann, og oddamaðurinn verður að skera úr. Hér í þessari brtt. er aftur á móti gert ráð fyrir skipun hlutlausra manna í dóminn, og tryggir það réttláta úrlausn. Aðrar till. hans eru bein afleiðing af þessari aðaltill., og fer ég því ekki frekar út í þær.

Ég ætla að taka það aftur fram, að það, sem ég hefi sagt hér um þessar brtt., er algerlega frá eigin brjósti, og hafa meðnm. mínir því að sjálfsögðu óbundnar hendur við atkvgr.