10.08.1931
Efri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (214)
1. mál, fjárlög 1932
Magnús Torfason:
Ég ætlaði mér ekki að gera nein eldhússtörf hér í hv. deild, en neyðist til að standa upp til að verja mitt hreiður — verja mig sem embættismann. Því hefir verið kastað hér fram, að skattanefndir gættu ekki samvizkusamlega skyldu sinnar sem slíkar. Og þar sem ég er form. yfirskattanefndar, og hefi verið það síðan núv. lög um tekju- og eignarskatt komu í gildi, þá finnst mér, að það sé illa að mér veitzt, og vil ég ekki láta því ósvarað. En hv. 1. landsk. er nú dauður, og mun ég því fara vægari orðum um hann en ella hefði orðið, og því fremur, sem það var berlega farið að draga úr ofsanum, sem var í fyrri ræðu hans, og að hann fann, að hann hafði sagt annað en hann hafði ætlað sér. Ef hann hefði sagt, að skattanefndir úti um land gætu ekki gegnt starfi sínu með fullri nákvæmni, þá hefði það mátt til sanns vegar færa. Því það er vitað, að allir þeir, sem hafa óvissar tekjur og óviss gjöld og hafa ekki bókhald, geta alls ekki gefið upp með eins mikilli nákvæmni og hinir, sem hafa fastar tekjur. Þess vegna vill það við brenna með bændur og smáútvegsmenn, sem ekki er bókhaldsskyldir, að uppgjöf þeirra verði að talsvert miklu leyti áætlun, og er ekkert við því að gera. Þetta er líka viðurkennt í öðru landi, hjá mestu bændaþjóð í þessari álfu, og talið, að helzta ástæðan til þess, að skattaframtalið getur ekki verið nákvæmt, sé einmitt þetta.
Þegar skattalögin frá 1921 gengu í gildi, er frá því að segja, að hver einn og einasti hreppstjóri og flestir oddvitar í minni sýslu komu til mín og ráðfærðu sig við mig um, hvernig ætti að gera þetta verk. Ég leiðbeindi þeim eftir minni beztu getu. Og árangurinn var furðanlega góður og langt fram yfir allar vonir, því þetta er afarmikið og vandasamt verk. Þó var sá ljóður á, að eitt eyðublaðið, sem eftir átti að fara, sem sé landbúnaðareyðublaðið, var skakkt, byggt á skökkum grundvelli í mikilsverðum atriðum. Þetta var síðan lagað, og yfirskattanefnd gerði miklar aths. við skattaframtölin. Og skattaframtalið batnaði að mun næsta ár, og þannig hefir yfirskattanefnd átt hægra um vik ár frá ári. Að þetta er ekki sagt út í bláinn, og að yfirskattanefnd hefir reynt að gera skyldu sína, því ber vitni, að þrátt fyrir það, þó skattur af lágtekjum væri minnkaður, og þrátt fyrir það, að á árunum 1924–1925 hækkuðu skuldir bænda um 70% og verkkaup hækkaði að sama skapi, hefir tekjuskatturinn ekki minnkað nema um 700 kr., og þó hefir verkafólki á bezta aldri fækkað í sýslunni. Þetta sýnir, að framtalið hefir verið að batna.
Skattanefndir þurfa að fá skýrslur til að fara eftir um ýmsar eignir manna. En af því að þær fengust ekki, varð að þessu leyti að byggja á drengskap manna. Á síðasta ári var þessu breytt, og í mitt umdæmi komu skýrslur að sunnan og víðar að til skattanefnda að því er þetta snerti. Ef verkið hefði ekki verið leyst sæmilega af hendi í þessari sýslu, þá hefði mátt búast við, að skýrslur frá lánsstofnunum hér hefðu komið upp um ýmsa menn. En það var svo lítið, að það er ekki teljandi. Ef maður ætti nokkuð um það að segja, þá er það helzt það, sem kalla mætti ónákvæmni, að menn hafa ekki munað eftir að leggja saman vextina.
Önnur ástæðan til þess, að yfirskattanefndir þurfa að fá þessar skýrslur, er sú, a. m. k. í sýslu, þar sem útsvör eru mikil, að með nýju sveitarstjórnarlögunum er svo ákveðið, að kærum skuli vísað til yfirskattanefndar til úrskurðar, en hún hefir auðvitað ekkert við að styðjast nema framtalið. Þess vegna skrifaði ég undirskattanefndunum og benti þeim á þetta. Í þeim er m. a. oddviti í hverjum hreppi, og var þetta fullkomlega tekið til greina. Og af öllum þeim kærum, sem hafa komið fyrir yfirskattanefnd, er það aðeins í eitt skipti, sem ekki mátti byggja á skattaframtali. Og yfirskattanefnd komst að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki af því, að maðurinn vildi svíkja framtalið, heldur af því, að hann var hroðvirkur og hafði ekki tekið eftirrit af skattaframtali sínu, svo að það varð mismunandi frá ári til árs.
Ég skal svo nota tækifærið, úr því ég varð að standa upp til að verja mig sem embættismann, til að kvitta fyrir árás, sem hv. 1. landsk. hefir á mig gert í þessari hv. d., og sem ég hefi ekki fengið tækifæri til að svara fyrr, hér á hv. Alþ.
Það hefir verið borið á mig í málgagni hv. 1. landsk., og sjálfur hefir hann haft það eftir á þingi, að ég hafi leyft mér að taka rentur af þrotabúi, að upphæð 114 þús. kr. Þetta eru svo mikil staðlaus ósannindi, að það er nú til að byrja með óhætt að taka prikið framan af. Ef sjálfstæðismennirnir, sem báru þetta upp í sér, hefðu nennt að líta á þetta bú, gátu þeir séð, að peningatekjur þess urðu minni en það, sem fram yfir er 100 þús. kr.
En að því er þetta mál snertir, meðferð þrotabúa, hefi ég farið alveg eins að og fyrirrennarar mínir í embættunum. Ég hefi farið að alveg eins og Páll Briem í Rangárvallasýslu, Hannes Hafstein á Ísafirði og Sigurður Ólafsson í Árnessýslu. Og ástæðan er sú, að það hefir alltaf verið gerður munur á þrotabúum og dánarbúum. Í þrotabúum er alltaf mörgum sinnum meira viðfangsefni fyrir skiptaráðendur en í venjulegum dánarbúum, þar sem sýslumaður á að gæta hagsmuna ekkna og munaðarleysingja. Upphaflega var það svo, að það fór mest af þrotabúunum til kaupmanna. En það er víst, að á Ísafirði og í Árnessýslu hefi ég átt meira hjá kaupmönnum en þeir hjá mér. Þess vegna hafa þessir menn aldrei heimtað neina vexti. Auk þess þarf alltaf að vera talsvert af peningum í sjóði, til að borga út úr búunum.
Svo er frá því að segja, að það er ekki hægt að bera meðferð þrotabúa úti um land saman við meðferð þrotabúa í Reykjavík. Í Reykjavík er þrotabúunum fleygt í einhvern málaflutningsmanninn, og hann fær svo stóra peninga fyrir. En í þeim þrotabúum, sem ég hefi skipt, hefi ég orðið að hafa alla fyrirhöfnina sjálfur og hafa alla stjórn, sem málaflutningsmenn í Reykjavík hafa haft, og engan eyri fengið fyrir. Ég hefi innheimt, í þau 37 ár, sem ég hefi verið skiptaráðandi, allar skuldir í öllum þeim þrotabúum, sem ég hefi skipt, nema tveimur, enda varð það ekki að góðu og ekki til neinna happa fyrir þau bú.
Menn sjá því, að það stendur öðruvísi af sér með þrotabú en dánarbú.
Í þriðja lagi er enginn sjóður til að leggja peninga inn í á sumum stöðum. Þegar ég kom á Eyrarbakka, spurði ég sparisjóðsstjórnina þar, hvort ég gæti haft viðskipti við sjóðinn, en hún sagði nei. Ég hefi því orðið að senda fé upp að Fossi. Framan af gekk þetta greiðlega; ég fékk menn, sem voru á ferðinni, til að taka peningana. En svo fóru leikar, að menn vildu ekki taka á sig þá ábyrgð, að flytja peningana, og því varð oft stórfé í sjóði og stundum meira en í þessu þrotabúi, sem hér er um að ræða.
Ég hefi lítið svo á, að ég hefði rétt til að fara eftir þeim venjum, sem tíðkazt hafa í embættinu áður en ég kom að því, þar til mér væru aðrar reglur settar. Og það er viðurkennd regla, að embættismenn séu ámælislausir á meðan þeir gera það. Hitt er annað mál, að strangari reglur um fjárgæzlu embættismanna hafa smátt og smátt verið settar, og þykist ég hafa tekið þær að öllu leyti til greina.
Síðan reglugerðin um fjárskil embættismanna koma út 1914, hefi ég játið hvern eyri, sem ég hafði undir höndum embættis míns vegna, í sérstakan sjóð, og haft sérstakan gjaldkera fyrir það fé, og ekki dregið mér grænan eyri af því. Tek ég þetta fram sem dæmi. Ég vildi nota þetta tækifæri til þess að lýsa þessu máli eins og það lítur út frá mér séð, því að mér fannst engin ástæða til þess að liggja lengur undir þessu ámæli. Að síðustu get ég vitnað til þess, að ég hafi alla mína embættistíð fengið mikið lof, bæði munnlegt og skriflegt, fyrir meðferð mína á skiptabúum. Ég tek þetta fram, af því að veitzt er að minni stétt. Mér er kunnugt um, að sumstaðar er nú orðið annað álit á henni en var, en ég ætla að taka það fram, að sá hluti, sem ég þekki af minni stétt persónulega, er fyllilega verður þess álits, sem hún áður hafði.