23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (2154)
43. mál, tekju- og eignarskattur til atvinnubóta
Flm. (Jónas Þorbergsson):
Það hafa nú risið hér upp 4 hv. þm. til andmæla, úr þeim flokki, sem að sjálfsögðu álíta, að ákvæði þessa frv. muni fyrst og fremst bitna á þeim.
Ég ætla þá fyrst að beina örfáum orðum til hv. þm. N.-Ísf. Hann taldi, að grg. færi fjarri efni frv. Í grg. er að vísu gengið nokkru lengra í skýringum á málinu en í frv. sjálfu, en það hefir nú stundum borið við áður í grg. mála. Í grg. er verið að leitast við að gera grein fyrir þeirri almennu nauðsyn, að stofna varasjóði til tryggingar atvinnuvegum landsins. Og ég get bent á, að ef slíkur sjóður væri til, þá gerði hann það ónauðsynlegt að gera slíkar örþrifaráðstafanir sem felast í frv. þessu.
Enda þótt þetta sé aðeins miðað við núv. ástand og ætlað til framkvæmda í haust, er það þó svo, að það e r rétt spor í þá átt, sem bent er á í grg. frv. Og nauðsynin er nú sú sama, og engu minni, þó áður hafi verið gerðar ráðstafanir í þessa átt.
Hv. meðflm. minn hefir svarað ræðu hv. 1. þm. Rang. Ég þarf því ekki að fara langt út í ræðu hans. En ég vil minnast á eitt atriði, sem var ákaflega táknandi um hugsunarhátt stóratvinnurekenda í þessum málum. Það kom sem sé ljóst fram í ræðu hv. 1. þm. Rang., að þegar verkalýðinn ber upp á sker af því, að hann hefir borið minna frá borði atvinnurekenda en honum bar, og leitar svo til landsins um hjálp, hafa þessir hv. menn þá eina leið að vísa þeim á að fara á sveitina. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að það væri mjög varhugavert að taka af sveitunum skylduna til að sjá sínu fólki farborða og koma henni yfir á ríkissjóðinn. Þetta er að vísu rétt. En með þeim ráðstöfunum, sem frv. gerir ráð fyrir, er ætlazt til, að því fé, sem innheimtist samkv. frv., verði varið til að framkvæma þau störf í þjóðfélaginu, sem þarf að framkvæma. og sem síðar koma þjóðfélaginu sjálfu að liði. Það er ætlazt til, að fyrir þetta fé verði unnin nauðsynleg störf, sem jafnframt hjálpi atvinnulausum mönnum til að komast yfir örðugleikana. En þegar um almennun sveitarstyrk er að ræða, er hann veittur sem fátækrastyrkur án þess nokkuð komi í aðra hönd. Mönnum er það hollara að vinna fyrir því fé, sem þeir fá, og reynslan sýnir, að fyrir það fé, sem varið er til styrktar sem framfærslufé, fæst ekki annað en það, að draga fram lífið, og verður það styrkþegunum sjálfum oft harmabrauð og þjóðinni allri óhaldkvæmara.
Hv. l. þm. Rang. fór mjög lítilsvirðandi orðum um frv. þetta. En ég get því sagt honum og hv. 4. þm. Reykv. það, að þó við flm. þessa frv. höfum ekki látið mikið yfir því, þá er það þó spor í rétta átt. Ég mundi vilja fylgja hverju því frv., sem væri til bóta í þessu efni. En þetta er þó viðleitni, sem nú þegar tekur fram forsögu þeirrar stj., sem þessi hv. þm. bar fullt traust til fyrrum. Því ég veit ekki til, að þegar íhaldsstjórnin var við völd, þá hafi hún komið með nein úrræði til að bæta úr atvinnuleysinu. Svo ef þetta frv. er ekki annað en skottulækning, þá hafa íhaldsmenn ekki einu sinni náð svo langt í viðleitninni að geta kallazt skottulæknar. (MJ: Þeir hafa ekki komið með neina skottulækning, svo þið eigið þá fyrirmynd, ef það er fyrirmynd, að gera það).
Ég er í raun og sannleika þakklátur hv. þm. G.-K fyrir þau orð, sem hann lét falla í svarræðu sinni til mín um þetta frv. Hann benti á það, að það væri nær að taka meira af eignum, en minna af tekjum manna. Þetta var okkur flm. líka ljóst. En ég vil benda hv. þm. á það, að í frv. er gert ráð fyrir tiltölulega hærri skatti af eignum en tekjum. (ÓTh: Og ég hefi nú lesið frv.). Það er nú líka hyggilegt að lesa þau frv., sem eru til umr. Ég er fús til að hækka skattinn af eignunum og lækka hann af tekjunum, og mundi styðja brtt., sem kæmi fram í þá átt.
Hv. þm. benti á, að ég hefði verið að beina að sér nokkrum bendingum um það, að hann kæmi fram sem fulltrúi Kveldúlfs hér í hv. d. Hann kvað nú Kveldúlf hafa tapað á síðasta ári og að hann myndi heldur ekki koma til að greiða tekjuskatt fyrir þetta ár. Hann væri því ekki að vinna fyrir Kveldúlf með því að benda á að leggja meira á eignirnar. En ég vildi nú mega henda hv. þm. á það, að enda þótt félög geti ekki fallið undir frv., þá hafa þó tekjur sumra manna, sem fyrir þau vinna, verið sæmilega miklar. Eftir því, sem hann segir. hefir Kveldúlfur tapað á síðastl. ári, en forstjórinn hefir þó getað byggt sér skrautlega „villu“ í bænum. Hann mundi því sennilega falla undir ákvæði þessa frv. og verða að leggja eitthvað af mörkum til atvinnubóta fyrir sjómenn og verkamenn þessa bæjar, sem lifa við atvinnuskort.
Ég ætla að leiða hjá mér þær hótanir, sem komu fram í ræðu hv. þm. G.-K. um, að þingmeirihl. myndi taka það ráð upp að stöðva öll mál fyrir stj. á þessu þingi. Lýsti hann að vísu engum heimildum síns flokks fyrir þessari yfirlýsing. En þetta bendir á, að hv. þm. sé enn ekki skriðinn úr flatsænginni með jafnaðarmönnum, þar sem hann kunni svo vel við sig síðastl. vor og frægt er orðið.
Hv. 4. þm. Reykv. benti á það, að brtt., fjvn., sem hún nú er búin að skila til þd., færu fram á að hækka um rúma hálfa millj. króna framlög til verklegra framkvæmda. og vildi láta okkur flm. þessa frv. taka það aftur. Ég get nú ekki séð, að þó fjvn. hafi gert þessar till., þá sé þess vegna ástæða til fyrir okkur flm. þessa frv. að taka það aftur, né að það sé þess vegna óþarft að gera þær ráðstafanir, sem þetta frv. fer fram á. Ég vil benda á það, að þó hv. fjvn. hafi borið fram sínar till., þá er öldungis óvíst um, að þær nái fram að ganga. Og þó þær verði samþ., þá yrði því fé, sem veitt væri samkv. þeim, varið til verklegra framkvæmda á næsta ári, og kæmi því ekki að neinum notum á þessu ári. En þeir, sem lesa þetta frv., sjá, að það er ætlazt til, að það komi til framkvæmda strax og eigi sér ekki lengri aldur en til ársloka 1931. Till. hv. fjvn. um ráðstafanir næsta ár geta því ekki orðið settar í samband við tilgang þessa frv. um atvinnubætur á þessu ári.
Hv. 4. þm. Reykv. fór lítilsvirðandi orðum um vitsmuni mína. Ég skal nú ekki vera að deila við hann um það, hvor okkar sé: gáfaðri, en ef dæma skal eftir þessum röksemdum hv. þm., skilst mér, að það gæti a. m. k. orðið álitamál.
Hv. þm. minntist á fjáreyðslu stj. á síðasta kjörtímabili. Það er nú ekki í fyrsta sinn, sem hann talar um það. En ef stj. hefði ekki varið miklu fé til alhliða viðreisnar landbúnaðinum og til að undirbyggja nýtt landnám, þá er hætt við, að landbúnaðurinn stæði enn hallara fæti á þessum krepputímum. Það geta víst flestir orðið sammála um, að það lýsi ekki neinni víðsýni hjá hv. 4. þm. Reykv., heldur miklu fremur stjórnmálaglópsku, ef hann telur ekki þessar tilraunir vera neins virði, þótt ekki séu öll vandræði landbúnaðarins þar með leyst. Það fé, sem hefir verið varið til að byggja hús, leggja vegi, rækta jörðina, til kaupa á stórvirkari vinnutækjum, til alþýðumenntunar og til alhliða framfara, er eins og það fé, sem hefir verið lagt í sjóð og á að skila vöxtum. Þegar vér leggjum fé í að bæta landið til þess að gera lífsskilyrðin betri, þá er það fé lagt á vöxtu framtíðarinnar. Og því fé, sem lagt er í gróandi sjóð jarðarinnar, mun hún skila aftur með vöxtum og vaxtavöxtum.