23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (2157)

43. mál, tekju- og eignarskattur til atvinnubóta

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Hv. 2. flm. þessa frv. sagði, að hv. 1. þm. Rang. hefði talað af miklu viti um þetta mál. Sjálfur vitnaði hann þó ekki til annara ummæla hans en að hann hefði sagt, að í frv. væri engin heilsteypt hugsun. Þetta hefir hv. 2. flm. sjálfsagt séð, að er rétt. Hv. 1. flm. vitnaði líka í hv. l. þm. Rang. um tvennt; sagði, að hann hefði bent verkafólki á sveitina og farið lítilsvirðandi orðum um frv. og talið það kák eitt. Mega andstæðingar frv. vel við una, að þetta sé talið skynsamlegt, en svo verður að teljast, að hv. flm. áliti, úr því að þeir tilfæra ekki annað.

Hv. 2. flm., sem kvað vera skólastjóri við bændaskóla. kvaðst gjarnan vilja flytja frv. til að styðja verkamenn í kreppunni. því að svo væri guði fyrir að þakka, að bændur kæmust af án aðstoðar hins opinbera. Það er furðulegt, að bændaskólastjóri skuli fara með aðra eins reginfirru. Bændurnir hafa ekki komizt gegnum góðærin undanfarið án ríkissjóðsstyrks, sem ég er engan veginn að telja eftir, og þá má nærri geta, hvort þeir komast af an styrks í hallærinu. Svo dapurlega sem nú horfir fyrir sjávarútveginum, þá er þó enn svartari blika í lofti yfir landbúnaðinum: hækkandi kaupgjald og hríðlækkandi afurðir. Það er því undravert gáleysi af bændaskólastjóra að segja, að einmitt nú sé óhætt, að ríkissjóður sleppi hendi af bændum. Þeim, sem ekki vegur orð sín betur en svo, ferst ekki að bregða öðrum um ábyrgðarleysi, þótt þeir leggist á móti þessu vitlausa kákfrv.

Það útgerðarfélag, sem ég er við riðinn, hefir í sumar lagt út í áhættusaman atvinnurekstur, sem fyrirsjáanlegt er, að getur engan gróða gefið, heldur víst tap. Og þetta félag geldur verkafólki sínu við þennan atvinnurekstur mun hærri upphæð í sumar en „atvinnubótafrv.“ þessara hv. þm. gefur af sér. Það var ekkert annað en ábyrgðartilfinning mín fyrir afkomu verkalýðsins, sem olli því, að Kveldúlfur gerir út togara sína og starfrækir síldarverksmiðju sína í sumar með vissu tapi framundan. Og að því athuguðu lýsi ég yfir því, að ég vil ekki sæta ávítum manns eins og hv. 1. þm. Skagf. fyrir ábyrgðarleysi.