18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2166)

43. mál, tekju- og eignarskattur til atvinnubóta

Jónas Þorbergsson:

Ég hefi sem flm. frv. ástæðu til að vera hv. meiri hl. fjhn. þakklátur fyrir afgreiðsluna á frv. Það hefir tekið allmiklum breyt. í meðferðinni hjá n., og virðist mér, að þær miði til bóta. Meiri hl. n. hefir ekki gert till. um að breyta ákvæðinu um tekjuskattinn, en hún hefir lagt til, að álag eignarskattsins hækki um 50%. N. hefir bætt við 50% álagi á áfengistollinn, sem ætlazt er til, að gefi 100 þús. kr. og sé varið í sama augnamiði. Loks hefir n. bætt við nýju ákvæði þess efnis, að fénu verði varið til atvinnubóta gegn tvöföldu framlagi úr viðkomandi bæjar- eða sveitarsjóði. Eins og bent var á við 1. umr., þá kreppir skórinn fyrst að heima fyrir, og það er því ekki nema eðlilegt, að þar hefjist fyrst viðleitnin til þess að bæta úr yfirvofandi neyð. Þetta miðar til þess að ýta undir framkvæmdir hjá bæjar- og sveitarfélögum og er að öðru leyti fyllra ákvæði um tilhögun framkvæmdanna. Hækkunin nemur alls um 200 þús. kr., og er þá gert ráð fyrir 560 þús. kr. tekjum, sem ásamt tvöföldu framlagi úr bæjar- og sveitarsjóðum yrði rúmlega 1½ millj. kr.

Við fyrri hluta umr. komu fram nokkur andmæli gegn frv., og vil ég lauslega drepa á þau, án þess að verða orsök í því að umr. verði úr hófi langar.

Hv. 2. þm. Skagf. benti á, að með þessu væru lagðar byrðar á atvinnuvegina, og að þeir væru nú svo aðþrengdir, að þeim væri ekki fært að rísa undir þeim. Það er rétt, að atvinnuvegirnir eru aðþrengdir. En með ákvæðum þessa frv. er ekki ætlazt til, að þær byrðar hækki að verulegu leyti. Fyrst og fremst er það að athuga, að þessi tekjuskattur, sem frv. fer fram á, er að upphæð um 200 þús. kr., og er það aðeins lítill hluti þess, tekjuskatts, sem lagður er á á ári hverju. Eignarskatturinn er aftur á móti hlutfallslega talsvert mikill, miðað við eignarskatt yfirleitt á þessu ári; er hann þó lítill hluti af verðmæti eigna í landinu, svo lítil hætta virðist því samfara að samþ. þetta. Þessi afgreiðsla málsins er líka í samræmi við rödd, sem komið hefir frá atvinnurekendum um nauðsyn þess að hækka ekki tekjuskatt, heldur eignarskattinn, ef endilega þyrfti að afla fjár á þennan hátt. Röksemdir hv. 2. þm. Skagf. hnigu flestar að því að sýna fram á, að þessar ráðstafanir væru óþarfar, því að líkur væru til, að tekjuafgangur yrði á þessu ári, og gæti stj. varið honum til atvinnubóta.

Mér þykir engin ástæða til þess að vera að rekja ástæður hv. 2. þm. Skagf. nánar. Þær voru flestar byggðar á ágizkunum, gripnum úr lausu lofti.

Mér finnst það mjög varhugaverð leið að byggja fjárveitingar til mjög aðkallandi framkvæmda á von um tekjuafgang, þó að í þessum umr. hafi verið bent á það réttilega, að tekjur þessa árs, það sem af er, eru sízt minni en tekjur ríkissjóða á sama tíma í fyrra. En hætt er við, að heimskreppan slái striki í útreikning hv. 2. þm. Skagf., því að margt virðist benda til þess, að hún muni harðna mjög síðari hluta ársins.

Í sambandi við þessar röksemdir hv. 2. þm. Skagf. vil ég leyfa mér að benda á, að stj. hefir einmitt af hendi þess stjórnmálaflokks, sem hv. þm. fylgir, sætt miklum ákúrum fyrir ráðstafanir á fé, sem ekki er heimiluð greiðsla á í fjárl. Mér virðist því felast nokkur mótsögn í því, er hv. 2. þm. Skagf. vill nú vera að ýta undir stj. að nota tekjuafgang, ef einhver yrði, án sérstakrar fjárlagaheimildar.

Hv. 2. þm. Reykv. taldi það aðalástæðuna gegn þessu frv., að það drægi úr gjaldþoli manna næsta ár. Þetta er auðvitað hverju orði sannara, en það sama má segja um alla skatta, svo þetta ætti þá að vera mótbára gegn sköttum yfirleitt. Þá benti sami hv. þm. á það, að þetta fé væri í raun og veru ekki veitt úr ríkissjóði, heldur yrði stj. að innheimta þetta. Ég veit ekki betur en þetta sama megi segja um hvaða fjárveitingar sem er. Mér hefir a. m. k. aldrei dottið í hug, að ríkissjóður væri einhver uppspretta fjársjóða, heldur þyrfti hann að fá allt sitt fé frá landsmönnum með lögboðnum gjöldum.

Hv. þm. Seyðf. mælti á móti frv. á þeim grundvelli, að það gengi of skammt. En ég lít svo á, ef ekki er hægt að fá fullkomnar aðgerðir, þá sé þó betra að fá nokkra bót en enga, og því finnst mér þetta í raun og veru engin mótmæli gegn frumvarpinu.

Ég benti á það áðan, að tekjuskattsviðbótin mundi nema 13% miðað við tekjuskatt á árinu 1931. Og þótt tekjuskattur hækki það sem þessu nemur, mundi það ekki rýra eignir landsmanna að miklum mun. Ef vel er að gætt, sést, að þessi skattur mun ekki íþyngja atvinnuvegunum mikið. Eins og annar tekjuskattur kemur hann fyrst og fremst niður á þeim starfsmönnum, sem hafa föst laun. Það eru þá fyrst og fremst starfsmenn ríkisins, og svo starfsmenn annara stofnana og atvinnufyrirtækja, sem búa við lík launakjör, þó að harðni í ári. Það er eðlilegt, að mönnum hrjósi hugur við auknum skattabyrðum, þar sem Alþ. verður nú á hverju ári að leita nýrra leiða til þess að hafa inn fé til opinberra framkvæmda. En ég vil benda á í því sambandi, að menn greiða fé á ýmsan hátt, sem þeir gætu ef til vill sparað. Ég skal ekki fara langt út í þá sálma, en við nákvæmar athuganir mun það koma í ljós, að þjóðin greiðir í verzlunarkostnað meira fé en varið er til allra framkvæmda ríkissjóðs árlega.

Sífelldar og að miklu leyti réttmætar kvartanir yfir þungum sköttum til ríkisþarfa gera það mjög athugavert, hversu ýms önnur gjöld liggja þungt á þjóðinni allri og hvort ekki mundi frekar hægt að spara á þeim.

Ég þarf ekki að hafa þetta mál mitt öllu lengra. Ég hefi nú bent á, að mikill hluti þessa tekjuskattsviðauka kemur til að hvíla á opinberum starfsmönnum og öðrum, sem hafa föst laun, og að eignarskatturinn er aðeins lítilfjörlegur hluti af eignatekjum landsmanna. Eins og ég hefi áður bent á í umr. um þetta mál, er hér um að ræða þjóðfélagslega nauðsyn og fullkomna sanngirniskröfu. Þegar þjóðarvanda ber að höndum og nauðsyn ber til að afstýra neyð, er rétt og sjálfsagt að krefjast nokkurra framlaga frá þeim, sem aðstöðu sinnar vegna hafa getað dregið saman fé til muna og safnað í sjóði nokkru af afgangseyri þjóðarinnar í starfi hennar og framkvæmdum.