23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (2209)

63. mál, útsvör

Flm. (Einar Arnórsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, var borið fram í Nd. á vetrarþinginu síðasta, en mun hafa dagað þar uppi.

Mér virtist hv. 2. þm. Skagf. frekar mæla á móti þessu frv., og í sjálfu sér get ég fallizt á það með honum, að bezt væri, að aldrei væri lagt á skattþegn utan heimilis hans, en eins og b.-liður 8. gr. útsvarslaganna er orðaður verður ekki hjá því komizt, að slíkt verði gert. Þar er sagt, að á menn skuli lagt, ef þeir hafi leiguliðaafnot af landi, þótt ekki fylgi ábúð, og þar með talin laxveiði, ábúð á jörð eða jarðarhluta og lóðarafnot, ef þau gefa arð.

Maður, sem hefði t. d. lóðarafnot í Reykjavík, segjum uppskipunarpláss fyrir salt og kol, yrði að sæta því, að á hann væri lagt útsvar hér, en aftur á móti, ef maður, búsettur utan Reykjavíkur, á þar stórhýsi, sem gefur ærnar tekjur á ári hverju, þá þarf hann ekkert útsvar að greiða þar. Hér er algert ósamræmi, sem þarf að leiðrétta.

Eins og hv. 2. þm. Skagf. mun kunnugt, hefir hæstiréttur dæmt aðilja, sem átti heima í Reykjavík, til að greiða útsvar á Ísafirði, sökum þess að hann hafði þar nokkur lóðarafnot. En hinsvegar hefir dómstóllinn komizt að þeirri niðurstöðu um mann, sem ekki átti hér heima, en átti hér húseign, að hann skyldi ekkert útsvar greiða hér.

Það er alkunnugt, að sumir kaupstaðir hér á landi hafa óhemju tekjur sökum álagningar á utanbæjarmenn. og skal ég t. d. nefna þar Siglufjörð.

Að endingu vil ég leggja sérstaka áherzlu á það, að þetta frv. gerir ekkert annað en að koma betra samræmi á í þessu efni en nú er, og gera lögin þar með fullkomnari.

Ég vil leggja til, að frv. verði vísað til allshn.