24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2229)
70. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Þetta er annað frv. af tveimur, sem ræða um bann gegn dragnótaveiði, sem lagt er fyrir Alþingi. Hitt frv., sem kunnugt er, er flutt af hv. þm. Seyðf. og hv. þm. Ísaf. og var til umr. í gær og fór til n. Það liggja alveg sömu rök fyrir því, að ég kem með tilmæli um endurskoðun þessara l. eins og fram komu í gær fyrir áðurnefndu frv. Ég hefi sem sé fengið áskoranir viðvíkjandi því, hvort ekki sé mjög varhugavert að banna kolaveiðar, svo sem gert er í núgildandi lögum. Og það, sem ýtir undir þetta mál nú, er líka hið sérstaklega erfiða ástand, sem nú ríkir og ekki kemur léttar niður á sjávarútvegi eða fiskimönnum en öðrum, heldur þyngra. Hér til kemur og það, að útflutningur á nýjum bátafiski var nær óþekktur, þegar þessi lög voru sett, þótt ekki sé langt um liðið. En nú var hann hafinn í vetur á nokkrum stöðum, og til stendur, að meiri tilraunir í þá átt verði gerðar í haust. Það er sem sagt vaknaður mikill áhugi fyrir því að koma nýjum fiski beint á útlendan markað, og til þess að geta haft þar frambærilega vöru, er nauðsynlegt, að hún sé meira blönduð kola en hægt er nú, meðan veiðibannið gildir.
Ég veit, að það eru skiptar skoðanir um það, hvað rétt er að gera í þessu, en því verður þó að halda fram, að ekki sé létt að láta ekki fara fram athugun á slíku máli, ekki sízt þegar afkoma fiskimanna er jafnerfið og nú er. Það er ekki hægt að sjá framundan neina bót hvað saltfiskmarkað snertir, og þá er ákaflega eðlilegt, að menn leiti eitthvað þeirra ráða, sem orðið geta til búdrýginda fyrir sjávarútveginn á öðrum sviðum.
Ég skal svo ekki — nema tilefni gefist — segja meira um þetta mál að sinni, en leggja til, að málinu verði vísað til sjútvn., eins og frv. í gær um sama efni.