11.08.1931
Efri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (224)
1. mál, fjárlög 1932
Jón Baldvinsson:
Hv. framsóknarþm. hafa varið það nú og fyrr, að flokknum bæri að fara með völd, af því að hann hefði svo marga þm. En það er fleira en þingmannatalan ein, er kemur til greina, svo sem kjósendatala. Það er nú svo, að síðan innlend stj. kom, hefir engin stj. setið að völdum, sem ekki hefir haft meiri hl. kjósenda að baki sér. Það er nú fyrst, að við völdin er stj., sem styðst við mikinn minni hl. kjósenda. Vilji maður fá dæmi af sama tæi, verður maður að fara til Estrups-tímabilsins í Danmörku og keisaranna í Þýzkalandi, sem héldu völdum með ranglæti, í skjóli hervalds og bráðabirgðalaga.
Hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. Eyf. hafa beint því til mín, að við jafnaðarmenn ættum að taka tillit til Englendinga í fleiru en skýrslugjöfum. En á það má benda, að þótt enski stjórnarflokkurinn hafi minni hl. kjósenda að baki sér, hefir hann og stuðningsflokkur hans mikinn meiri hl. Þeir hafa báðir til samans fullar 12 millj. kjósenda, en andstöðuflokkurinn, konservativir, ekki nema fullar 8 millj. Það er áreiðanlegt, að í Englandi yrði ekki þoluð stj., sem styddist aðeins við 1/3 kjósenda, svo að það má auðveldlega til þeirra vitna. enda eru þeir nú að hugsa um að breyta kjördæmaskipuninni, af því að þeir sjá, hve hún er nú ranglát orðin, síðan flokkarnir urðu fleiri en tveir. En ég er sannfærður um, að þegar gallar þeirrar kjördæmaskipunar eru farnir að koma fram í þeirri mynd, sem þeir hafa nú komið fram hér, þá yrði það ekki þolað.
Þá minntist hv. 2. þm. Eyf. á það, að við jafnaðarmenn værum frekir á pappír og ræðutíma, svo að það jafnaðist á við bókina „Verkin tala“. En sá er munurinn, að við förum eftir því, sem lög heimila. Það er löglegt eftir stjskr. að bera fram svo mörg frv. sem hverjum þm. sýnist, og samkv. þingsköpum megum við halda þær ræður, sem við höfum haldið. En Framsóknarfl. á eftir að fá kvittun fyrir bókina „Verkin tala“. Það getur verið, að þeir fái þá kvittun, en þeir eiga eftir að fá hana. — Það er ekki hægt að réttlæta bókina með því, að við berum mörg mál fram. Það er eðlilegt, að svo sé með okkur, því að hér er um að ræða ungan flokk, sem nýkominn er í þingið.
Síðasta rúsínan hjá hv. 2. þm. Eyf. var það, er hann tók að vega þingflokkana og þótti okkar hluti stór. Ég býst við, að ekki hafi átt að skilja það svo, að hans flokkur sé veginn og léttvægur fundinn, þó að sá skilningur á orðum hans lægi næst.