12.08.1931
Neðri deild: 27. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2241)

70. mál, dragnótaveiðar í landhelgi

Sveinn Ólafsson [óyfirl.]:

Ég verð að víkja örfáum orðum að hv. þm. Seyðf. Hann átaldi það sérstaklega, að n. hefði ekki tekið upp úr frv. hans ákvæðið um möskvastærð dragnóta. Ég skal geta þess, að ég fyrir mitt leyti álít það hafa litla eða enga þýðingu að taka slíkt upp, sökum þess m. a., að það væri því nær ómögulegt að hafa eftirlit með því, að þessu ákvæði væri fylgt, og hver myndi geta tryggt það, að ekki væri frá þessu vikið? Varðskipin, sem ættu að hafa eftirlit með því, að ekki væri veitt í landhelgi; mundu ekki geta haft eftirlit með, að þessum fyrirmælum væri fylgt. Auk þess lít ég svo á, að með þessu ákvæði um möskvastærð verði ungviðið bæði drepið og botngróðrinum spillt.

Ég hefi sjálfur notað dragnót og verið við dragnótaveiðar. Dragnót er ekki, eins og hv. þm. (HG) segir, aðeins notuð þar, sem slétt er og sandbotn; hún er notuð víðar og sópar með sér gróðrinum og ungviðinu, sem svo ferst innan um stærri fiskinn. Ég álít, að það sé þýðingarlaust að taka upp úr frv. hv. þm. Seyðf. þessi ákvæði. Að öðru leyti þykir mér ekki ástæða til að fara frekar út í ræðu hans. Annars voru ein eða tær missagnir í ræðu hans, en þær skipta ekki máli, og læt ég því niður falla að gera aths. út af þeim.