12.08.1931
Neðri deild: 27. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2243)

70. mál, dragnótaveiðar í landhelgi

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Það fer að verða býsna örðugt að fást við hv. þm. Borgf. (ÓTh: O, það hefir nú verið það fyrr), síðan hann tók það ráð að fá Norðmenn í lið með sér, því eins og menn vita, eru þeir harðsnúnir, sérstaklega gegn Dönum.

En ég vil nú fyrst víkja nokkrum orðum að hv. 1. þm. S.-M. í sambandi við það, sem hann sagði í ræðu sinni. Hann var að tala um, að ástæðan til þess, að sjútvn. hefði ekki viljað taka upp till. mínar, væri sú hætta, sem hún teldi stafa af því, að torvelt væri að fylgja fram þeim ákvæðum frv., sem lúta að möskvastærð dragnóta og lágmarksstærð þess fiskjar, sem hagnýta má úr afla dragnóta. Mig undrar, hvað þessir erfiðleikar hafa vaxið hv. n. í augum. Hinu fyrra ákvæðinu eru engir erfiðleikar á að fylgja fram, vegna þess, að ef ekki er leyft, að notaðar séu nætur nema af ákveðinni lágmarksmöskvastærð, þá flytja menn ekki inn né búa til nætur með smærri möskvum, því þeir geta þá búizt við, að þær séu óseljanlegar. Og þetta eru svo dýr veiðarfæri og svo lítið notað af þeim, að menn eru ekki að eiga neitt á hættu með það. Og þar sem svo lítið er notað af þeim, — yfirleitt nota ekki bátar fleiri en 1 eða 2 nætur í senn —, þá er auðvelt að rannsaka það í hverju einstöku tilfelli, hvort möskvastærð þessara nóta er lögleg. Og þegar menn geta átt von á slíkri rannsókn, vilja þeir auðvitað ekki eiga neitt á hættu með að missa þessi dýru veiðarfæri. Því samkv. lögunum yrðu slík ólögleg veiðarfæri upptæk og andvirðið rynni í ríkissjóð.

Hinu síðara ákvæðinu, um að ekki megi hagnýta fisk, sem er undir ákvæðinni lágmarksstærð, er líka auðvelt að framfylgja. Allur sá fiskur, sem veiddist í dragnætur, mundi verða seldur hér í landinu, að undanteknum þeim fiski, sem seldur væri beint í togara úti á hafi. Það væri auðvitað ekki hægt að hafa eftirlit með stærð þess fiskjar, sem þannig væri seldur. En það yrði mjög lítið. Því nú eru horfur á, að talsvert af veiðiskipum muni liggja inni á höfnum og fjörðum til að taka við nýjum fiski af bátum og flytja hann út ísvarinn. Svo það eru horfur á, að mest af þessum fiski færi til landsmanna sjálfra. Nú, og þó fiskurinn færi í önnur skip, sem liggja inni á höfnum, hvort sem það eru útlend skip, sem kaupa þennan fisk, eða hann fer í skip, sem ríkisstj. leigir til að flytja hann út, þá er tiltölulega auðvelt fyrir þá menn, sem til þess væru settir, að fylgjast með stærð þess kola, sem látinn væri í þessi skip. Og ef ekki er auðið fyrir menn að selja fisk nema af vissri stærð, þá fellur burt hvötin fyrir þá að veiða fisk undir þessari lágmarksstærð. Það er nú svo, að menn eru yfirleitt ekki að veiða að gamni sínu, heldur er það hagsmunavonin fyrir flestum, sem ræður því, hvað þeir veiða, og yfirleitt að þeir stunda fiskveiðar.

Hv. þm. Borgf. vildi nú halda því fram, að hér væri verið að gera botnvörpuskipum hægara fyrir að komast að landhelginni. Þetta er auðvitað fjarstæða, því það er alveg óskylt, dragnót og botnvarpa, og botnvörpuveiðar koma þessu máli ekkert við. Dragnótaveiði er nú leyfð í landhelgi á vissum tímum og á vissum stöðum, en botnvörpuveiðar eru með öllu bannaðar í landhelgi. Og hér er ekki farið fram á að gera neina breyt. á því.

Þá heldur hann því fram, hv. þm., að dragnótin spilli veiðiskap með því að eyðileggja gróðurinn í botninum, þar sem hún fer um, og drepa ungviðið; hún eyðileggi þannig aflavon fyrir þeim, sem stunda veiðar með öðrum veiðarfærum á sama svæði. (PO: Árni Friðriksson segir það). Árni Friðriksson segir það gagnstæða. Ég vil nú með leyfi hæstv. forseta lesa upp kafla úr áliti fiskifræðingsins; hv. þm. Borgf. hefir sem sé hlaupið yfir veigamestu kaflana, þegar hann hefir verið að lesa upp úr álitinu. Um þetta segir þar, með leyfi hæstv. forseta:

„ — Dragnót er einungis hægt að nota á sand- eða leirbotni, því hún er veikgerð og þolir hvorki grýttan botn né þaragróður. Hún getur því ekkert mein unnið þaragróðrinum, sem reyndar er lítils virði fyrir útgerðina, og það mjög óbeinlínis. Ungviði þorsksins og annara bolfiska“ — og það hlýtur að vera það ungviði, sem hv. þm. Borgf. á við, þegar hann er að tala um, að dragnótin eyðileggi ungviðið fyrir öðrum fiskimönnum — „getur hún ekki grandað svo neinu nemi, af þeim ástæðum, sem nú skal greina:

Í fyrsta lagi er þorskurinn ekki við land nema á meðan hann er á unga aldri. þegar hann er svo lítill (um og undir 20 sm), að hann getur hæglega smogið vanalega dragnót (ca. 5 sm. riðil).

Í öðru lagi hefst hann helzt við á þara og grjóti, meðan hann er á grunnsævi, eða einmitt á þeim stöðum, þar sem dragnótaveiðum verður ekki komið við“.

„Það er með öllu ómögulegt“ — með öllu ómögulegt, segir fiskifræðingurinn —„að dragnótin geti eyðilagt „botninn“ eða lífsskilyrði fiskanna, þar sem hún er notuð, því bæði er það, að hún nær litlu af þeim dýrum, sem að gagni mega koma sem fiskifæða, og svo er hitt, að slíkum dýrum (t. d. skeljum) er engin hætta búin, þótt þau komi inn í skipið, því þau lifa alveg eins fyrir það, þegar þeim er kastað út aftur“.

Mér virðist af þessum orðum, að það sé alveg ótvírætt, að hvað sem hv. þm. kann að álíta um það, að dragnæturnar spilli veiðiskap með öðrum veiðarfærum, þá sé álit fiskifræðingsins allt annað. Og ég fyrir mitt leyti legg nú meira upp úr því, sem hann segir um þetta mál en hv. þm. Borgf.

Annars er það ekkert nýtt, að slíkar kenningar séu fram bornar, þegar rætt er um það, að taka upp ný veiðarfæri. Ég drap á það í vetur, og fékk víti fyrir frá hv. þm. Borgf., að í hans kjördæmi, raunar fyrir einum 200–300 árum, gerðu þeir samþykkt um að banna notkun þorskalínu og netja, af því að það væri til að eyðileggja allan veiðiskap fyrir öðrum. Alveg sama viðbáran og hv. þm. ber nú fram. Og þá er alkunnug samþykktin, sem þeir gerðu suður með sjó um árið um bann við þorskanetum, af því þau áttu að spilla fyrir öðrum veiðiskap. (PO: Það er nú annað). Já, það er annað, segir hv. þm., af því að bæði hann og aðrir hafa lært það síðan, í þessi 200–300 ár, að þessi kenning, um þorskanetin hefir ekki við nein rök að styðjast. Og eins og menn eru nú búnir að fá rök fyrir því og eru komnir á þá skoðun um þorskanetin, að þau spilli ekki fyrir öðrum veiðiskap, eins munu menn komast á þá skoðun um „snurrevaadina“, að hún spilli ekki fyrir öðrum veiðiskap með öðrum veiðarfærum. En eins og hv. þm. Borgf. sagði, þá gengur þetta náttúrlega út yfir kolann. Ég skal ekki neita því; það gengur út yfir kolann, sem útlendingar nú hirða hvort sem er að 9/10 hlutum.

Og hv. þm. hélt áfram og sagði: „Vitanlega getur dragnótin gert tjón á öðrum veiðarfærum“, og las upp úr skýrslu fiskifræðingsins: „Vitanlega getur dragnótin gert tjón“ o. s. frv. Þetta er alveg rétt. Vitanlega getur hún gert tjón á öðrum veiðarfærum. En ég verð nú að segja það, að það væri býsna hart að gengið, ef það ætti að banna veiðiskap með dragnót af þessum sökum. Því ef ætti að halda sér að kenningu hv. þm. Borgf., þá væri ástæða til að banna að fiska með línu í Faxaflóa. Því það vita þeir, sem kunnugir eru miðunum við Faxaflóa, að svo mikil þrengsli eru þar, að menn hrúga þar línunum hverri ofan á aðra, og svo lendir allt í lóðaflækjum í öllum þrengslunum, og menn eyðileggja veiðarfærin hver fyrir öðrum, eða hirða þau og fiskinn og allt saman. (PO: Því er öllu skilað aftur). Ja, mikil er bjartsýni hv. þm. Borgf. í þessu efni. (PO: Ég veit, að svo er það á Akranesi). Ég held, að Akurnesingar hafi nú einmitt fengið versta orð í þessu efni. Nei, ef svo langt á að ganga að banna þau veiðarfæri, sem gætu gert tjón á öðrum veiðarfærum, þá mun það áreiðanlega ganga út yfir fiskilínur engu síður en önnur veiðarfærri.

Hv. þm. sagði réttilega, að ástandið væri nú svo með þessa svokölluðu friðun á kolanum, að hún væri til hagnaðar fyrir landhelgisbrjótana. Ég ber ekki á móti þessu. Þess vegna förum við flm. nú fram á að bæta úr þessu með því að slaka til á banninu gegn dragnótaveiði í landhelgi. Þeir landhelgisbrjótar, sem hafa hagnað af þessari friðun á kolanum, eru sérstaklega botnvörpungarnir, og það er ekki farið fram á það í frv. að auka neitt rétt þeirra. Botnvörpungar veiða ekki með dragnótum. (ÓTh: O!). Ekki þeir íslenzku, svo ég viti, a. m. k. ekki almennt. Það getur verið, að einhverjir útlendingar geri það, eða þeir togarar, sem hv. þm. G.-K. hefir með að gera. Mér virðist það alveg fráleitt, að það geti orðið til bóta fyrir trollarana, sem fiska í landhelgi og fá þar flatfisk, að þessi rýmkun verði samþ. Þvert á móti. Þá verða það fleiri, sem fiska fyrir innan, en landhelgisbrjótarnir einir saman, og eru þá líkur til, að kolaaflinn innan og utan línunnar verði jafnari en áður, og því minni hvöt fyrir þá að slæjast eftir þessari fisktegund þar, sem hættan við veiðarnar er meiri.

Þá vísaði hv. þm. til ummæla fiskifræðingsins um, að kolinn myndi eyðast fyrr, ef farið væri að veiða hann af kappi með nýjum veiðitækjum. Það segir sig auðvitað sjálft, að því meira sem veitt er, því meira gengur á stofninn. og því meiri líkur eru til, að hann gangi til þurrðar. Nú heldur fiskifræðingurinn því fram, að þrátt fyrir friðunina sé viðbúið, að kolinn muni bæði smækka og minnka hér við land. Nú er veiði Íslendinga innan við 10% af því, sem veitt er af kola hér við land, og þó veiði Íslendinga margfaldaðist, myndi það lítil áhrif hafa á kolann í heild sinni. Þó við ykjum okkar kolaveiðar um mörg hundruð %, þó við ykjum þær um 1000%, þá mundi það samt ekki hafa nein veruleg áhrif á kolann, því öll veiðin yrði samt ekki nema tvöföld við það, sem hún nú er.

Ég get verið sammála hv. þm. Borgf. um það, að eins og fiskifræðingurinn benti á, er hin mesta þörf á að koma upp klaki á kola og ef til vill öðrum nytjafiskum. En það er alveg óskylt því máli, sem hér liggur fyrir. Það er alveg sérstakt mál, og er náttúrlega nauðsynlegt lít af fyrir sig, en kemur ekkert þessu máli við. En ég get verið sammála hv. þm. Borgf. um það, að ég býst ekki við, að Danir fari að leggja fram peninga til að starfa hér að klaki.

Þá sagði hv. þm., að ein meginástæða hv. andstæðinga þessa frv. væri sú, að með því væri Dönum og okkur gefinn sameiginlegur réttur til að veiða kolann í landhelgi. En það er einmitt það, sem Danir hafa nú; þeir hafa sama rétt og við til að veiða kolann í landhelgi. Þetta er því engin breyt. frá því, sem nú er. Nú hafa Danir rétt til að veiða kola í landhelgi í 3 mánuði: september, október og nóvember. Ef mitt frv. hefði verið samþ., hefði þessi tími verið lengdur fram á við að sumrinu um einn mánuð, ágústmánuð, og svo til viðbótar um 3 mánuði að vetrinum, desember, janúar og febrúar. Veit ekki hv. þm., sem talaði svo mikið um sumarblíðuna, sem Danir mundu njóta við þessar veiðar hér uppi við Ísland, hvort hún er mest á þessum tíma? (PO: Samkv. þessu frv. er júlí líka tekinn með). Já, samkv. þessu frv., en samkv. mínu frv. var gert ráð fyrir, að aukningin yrði aðallega hæstu vetrarmánuðina. Og ég hélt, að á þeim tíma væri hér ekki sérstaklega mikil sól eða sumarblíða. A. m. k. hélt ég, að Danir hefðu annað að segja af sumarblíðu. Ég held, að það séu nokkuð miklir draumórar hjá hv. þm., að ef leyft verði að veiða með dragnót í landhelgi, þá muni Danir liggja inni á fjörðum, baða sig í sólskininu og veiða kola, en við fara út á úfið hafið og sækja þangað fisk með karlmennsku og harðræði í vetrarhríðum og stormum. Þetta eru náttúrlega ákaflega skemmtilegir hugarórar hjá hv. þm. En hvers vegna ættu Íslendingar endilega að fara út á úfið hafið, þegar þeir gætu veitt nógan fisk í glaða sólskini inni á fjörðum? Þó menn séu nú gjarnir til karlmennsku og stórræða í stórhríðum og hafróti, þá gera menn sér samt ekki gaman að því að hlaupa frá vissri tekjulind í sólskininu inni á fjörðum, til þess eins að leggja sig í hættu úti á hafi í vetrarhörkum og skammdegishríðum. Því þegar alls er gætt, þá er það þó fyrst og fremst hagsmunavonin, sem hvetur menn til að leggja líf sitt í hættu úti á reginhafi um íslenzkan hávetur.

Hv. þm. las upp langan kafla úr bréfi frá fiskimönnum á Jaðrinum í Noregi til verzlunarmálaráðuneytisins norska, þar sem þeir mælast til, að öll dragnótaveiði sé bönnuð í landhelgi fyrir Jaðrinum, og var þar ýmislegan fróðleik að heyra, eins og við mátti búast, þ. á. m. þann, að Íslendingar hefðu bannað alla dragnótaveiði í landhelgi hjá sér, sem ég heyri nú í fyrsta sinn. Ég hygg nú, að margt af því, sem hv. þm. las upp úr þessu bréfi, hafi við jafngóð rök að styðjast og það, að Íslendingar hafi bannað alla dragnótaveiði í landhelgi.

Annað, sem hv. þm. las upp, var það, að það væri nú mikið rætt um það meðal fiskimanna í Danmörku að hanna dragnótaveiðar í Danmörku. Ég held, að þetta hljóti að vera misskilningur. Ég hefi ekki heyrt, að Danir veiddu kola að ráði með öðru en dragnót. Að banna að veiða með dragnót í Danmörku væri því það sama og að banna þar allar kolaveiðar. Og þar sem þær eru drýgsta tekjulind danskra fiskimanna, þá er ákaflega ótrúlegt, að þeim detti í hug að banna þær.

Annars er það að segja um það, er lýtur að Dönum í fyrri ræðu hv. þm., að þeir sjálfir séu að gera ráð fyrir, að tíminn verði lengdur og að við munum auka þessa veiði. Ég geri ráð fyrir, að Danir muni auka sína veiði hér við land. En ég færi ekki ráð fyrir, að það verði Dönum hagstætt að sama skapi og okkur. Við höfum 7000–8000 báta, sem eru rétt við fiskimiðin, og áhafnir líka, sem hafa á sér orð.

Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að því að sýna fram á, hvílíkt fjárhagsatriði þetta er Íslendingum. Veit ég það t. d. fyrir víst, að í Garði eru skiptar skoðanir um það, hvort rétt sé að banna dragnótaveiði í landhelgi eða ekki, og í Keflavík eru flestir andvígir banni. Skil ég það vel, því að ég hefi fengið upplýsingar um trillubáta, sem fengið hafa í einu kasti kola fyrir 600, 700 og 800 kr., og þessu líkt á sér stað víða. Er full ástæða fyrir því, að bátaeigendur líti svona á málið, því að erfitt er fyrir þá að láta saltfiskveiði bera sig. Eru því margir að reyna fyrir sér um útflutning á nýjum fiski. Er miklu vænlegra að hafa á boðstólum góðan nýjan fisk, sérstaklega kola og ýsu. Læt ég svo útrætt um þetta mál, og mun ég greiða atkv. gegn brtt. n., þótt ég hefði heldur kosið sjálfur, að hún hefði lagt til grundvallar frv. það, sem ég bar hér fram fyrir nokkru, svo að atkvgr. hefði getað farið fram um það, en ekki þetta frv.