13.08.1931
Neðri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (2248)

70. mál, dragnótaveiðar í landhelgi

Pétur Ottesen:

Ég á ekki eftir að gera hér nema stutta aths. En þar sem ég á við þrjá andstæðinga, vænti ég, að hæstv. forseti virði mér til vorkunnar, þó að hún verði í lengra lagi.

Hv. þm. Vestm. sagði hér í d., að ég vildi vinna það til að lítiloka Íslendinga til þess að geta haldið dönskum bátum frá. Þetta er rangt. Hann veit að það er heimild til fyrir bæði Íslendinga og Dani að veiða hér um nokkurra mánaða tíma, nema þar, sem bann er sett gegn því samkv. 8. gr. laganna. Og þegar hv. þm. sakar mig um öfgar og ofstopa í mínum ræðum um þetta mál, þá verð ég að segja, að þetta eru öfgar og fjarstæður hjá honum. Íslendingar eiga þess kost eins og nú er að veiða í september, október og nóvember, þegar markaðurinn er beztur og tryggastur í Englandi. Við skulum nú athuga, hvað af því leiddi, að þessi tími yrði lengdur, svo að ágúst og jafnvel júlí kæmi með. Þá myndu Danir hópast inn á miðin með okkur. Ætli hlutur Íslendinga yrði þá meiri en nú, er Danir láta hér kyrrt, sakir þess hve tíminn, sem veiða má, er stuttur og þeim óhentugur? Þá er það og reynslan að þeir fiskar, sem helzt koma í dragætur, eru flatfiskar og ýsa, og gengur fiskistofninn skjótlega til þurrður þar, sem þær eru notaðar. En ég vil tryggja Íslendingum þessar nytjar einum, með því að gera það lítið aðgengilegt fyrir Dani að sækja okkur heim. Það er kjarninn í minni andstöðu í þessu máli. Auk þess horfir málið þannig við fyrir mér, að hvaða tilslakanir, sem gerðar yrðu, myndu gera oss erfiðar fyrir um að fá landhelgina rýmkaða. Það nær því engri átt, sem hv. þm. Vestm. sagði um það, að ég vildi með þessari friðun ala upp kolann handa Bretum. En mín skoðun er sú, að við getum ekki á neinn annan hátt betur tryggt hagsmuni Íslendinga en með stórri landhelgi og góðri gæzlu. Allar fiskirannsóknir, sem gerðar hafa verið, leiða þetta í ljós. Ég segi því, að það er sterkt vopn í okkar höndum, að Englendingar geti litið svo á, að það sé líka þeirra hagur og allra annara, sem sækja hingað á miðin, að landhelgin sé sem bezt friðuð. Það, sem hingað til hefir staðið í vegi fyrir því, að við fáum þessari kröfu framgengt, er, að við höfum ekki enn fært vísindalegar sannanir á, að þetta séu sameiginlegir hagsmunir allra þjóða, er hér stunda fiskveiðar. En það líður óðum að því, að við getum fært fyrir þessu skýrar og ótvíræðar sannanir.

Þessar till sem hér liggja fyrir og fara fram á rýmkun á ákvæðum um friðun landhelginnar, leiða til þess, að Danir, sem nú eru útilokaði, þyrpast inn á miðin og yrðu þess valdandi, að fiskurinn gengi til þurrðar, eins og nú er komið á daginn heima hjá þeim. Og loks bæru Íslendingar ekki meira úr býtum en þeir gera nú samkv. gildandi lögum. Af þessu stafar sú hætta, að innan skamms myndi þurfa að gera nýjar ráðstafanir, nýja friðun og nýtt klak. Þetta hefi ég nú raunar bent á áður í þessum umr., en það verður aldrei nógsamlega brýnt fyrir þeim mönnum, sem fyrir ímyndaða stundarhagsmuni hafa nú misst sjónar á þeirri miklu þýðingu, sem það hefir fyrir framtíðarfiskveiðar hér við land, að vernda landhelgina betur.

Hv. þm. Vestm. virtist taka óstinnt upp fyrir mér dæmið um fiskveiðar Dana hér á hafinu. Það var úr dönsku blaði. (JJós: Jeg var ekkert að rengja það) Nei, ekki beint að rengja það, en þm. virtist vera móðgaður af þessu fyrir Dana hönd. Þá var hv. þm. Vestm. að tal. um, hvað Danir hefðu lagt af mörkum hér við fiskirannsóknir. En ég vil segja hv. þm. Vestm. það, ef hann skyldi ekki vita það, að við höfum einnig lagt talsvert af mörkum til þessara rannsókna hér við land. Við höfum búið varðskipin þannig út, að þau geti tekið þátt í þessu starfi, og við höfum hér fræðimenn, sem vinna að þessu, þá Bjarna Sæmundsson og Árna Friðriksson. Við höfum lagt okkar skerf í þessu efni á borð við Dani. Þeir njóta góðs af okkar starfi og við af þeirra. og þurfum vér því alls ekki á nokkurn hátt að krjúpa að fótum þeirra í þessum efnum.

Hv. þm. Vestm. var að tala um, að það gæti farið svo, að þröngsýnin og ofstækið yrði þess valdandi, að landhelgin yrði ekki rýmkuð. En þetta er svo rangt orðað sem verða má. Það byggðist ekki á neinu öðru en víðsýni hjá þinginu sem í öndverðu setti svo ströng ákvæði um botnvörpu- og dragnótaveiðar í landhelgi, en aftur á móti óskaplegan skort á viðsýni og fyrirhyggju, ef þessi verndarlög yrðu nú skert. Það er sagt,að þegar hið opinbera geri ýmsar ráðstafanir til bjargar ástandinu í landinu, þá séu einnig sleg in ýms vindhögg. En stærsta vindhöggið, sem við gætum slegið, væri að haga löggjöfinni þannig, að Danir mættu sleikja upp hverja vík og hvern vog með dragnótum og drepa þar allt kvikt; það væri sama og farið væri hér eldi um frjósöm gróðurlönd. Þessi og engin önnur yrði nú afleiðingin, ef horfið yrði að því ráði, sem þv. Vestm. vill og sem 1. þm. S.-M. sagði, að hann hefði talað svo rösklega og rökvíslega fyrir.

Út af því, sem ég minntist á aðstöðu og álit þeirra Jaðarsbúa í Noregi á dragnótaveiðum, þá hefir því hvað eftir annað verið slegið fram, að það væri eins ástatt um þá eins og Norður-Þingeyinga, að þeir séu á móti þessu af því að þeir stundi engar slíkar veiðar sjálfir. Ég minntist á það í gær, að þó svo væri, þá gæti þetta álit þeirra verið fullkomlega rökstutt fyrir því. En að því er snertir Jaðarsbúa er það að segja, að þótt þeir hafi engar hafnir og verði að setja báta sína upp í hvert skipti, þá eru þeir ekki útilokaðir frá að stunda dragnótaveiði. Það er hægt á grunnsævinu á opnum vélbátum, en þeir eru venjulega ekki stærri en það, að hægt sé að setja á land. Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að í Bolungavík væru bátar allt að 7 smál. settir í land að staðaldri. Eins er þetta á Jaðri. Ég ætla, að Bolvíkingar gætu fullkomlega stundað dragnótaveiði á þessum bátum, eins og þeir Jaðarsbúar gera.

Hv. þm. Vestm. var að tala um bönnin aftur og minntist á eitthvað í lögum um fiskiveiðar frá 1922, sem bannaði útlendingum að leggja afla hér á land, sem e. t. v. væri hættulegt fyrir okkur. Ég veit ekki, hvað hv. þm. á við, þegar hann er að tala um hættu í því sambandi. Ég veit ekki betur en að þau lög séu sett til að fyrirbyggja hættu. Þau eru sett til verndar fiskiveiðum landsmanna, sem vitanlega eru annað aðalfjöregg hinnar eignalegu afkomu þjóðarinnar. Veit ég ekkert í þeim lögum annað en það, sem óhákvæmilegt er að gera til verndar fiskveiðum okkar og aðstöðu til sölu aflans.

Hv. þm. Vestm. fór að vitna í sérfræðingana um það, að dragnótaveiði væri ekki skaðleg viðkomu fisksins. Ég benti á það, sem Árni Friðriksson sagði í sinni ritgerð, þar sem hann sagði, að ef við veiðum kolann með nýjum aðferðum, nefnilega dragnótum, þá verðum við að takmarka veiðina með skynsamlegri löggjöf og koma á klaki.

Ég sé það nú, að hæstv. forseti er farinn að gefa mér bendingu um, að aths. sé orðin nokkuð löng. En ég á hér töluvert mikið eftir, sem sé nokkuð til frekari rökstuðnings því, að Danir mundu hafa fullan hug á að notfæra sér þessa heimild. En ég verð víst að neita mér um það, því að nú gerist hæstv. forseti órólegur. (Forseti: Þm. má þá hafa 5 mínútur enn). Nú, jæja, ég er hæstv. forseta þakklátur fyrir það.

Danir höfðu eitthvað heyrt um það í fyrra, að till. komu fram á þinginu um rýmkun nokkra frá því, sem nú er um dragnótaveiði. Það var heldur en ekki uppi fótur og fit í Danmörku, þegar fregnin um þetta flaug, samtímis því sem þeir ræddu um þessa miklu síldatrútgerð sína hér við land. Þeir sögðu, að í ráði væri að senda strax 15–16 stórar mótorskútur, hverja 70–80 smál, til dragnótaveiða á ísl. fiskimiðum, og skyldi fiskurinn síðan fluttur ísvarinn til Englands.

Þannig tóku þeir þessari fregn, og þetta munu þeir áreiðanlega framkvæma, ef rýmkun verður gerð. Þeir töluðu ennfremur um aðrar ráðstafanir í sambandi við þessa fyrirhuguðu dragnótaveiði og í sambandi við síldveiðar við Ísland. Káðu Danir, að á síðustu árum hefðu borizt kvartanir um það frá dönskum fiskimönnum við strendur Íslands, að ísl. löggæzla léti stundum til sín taka á þann hátt, að dönskum fiskimönnum væri misboðið, þegar væri verið að verja landhelgina. Þeir vita það, Danir, að þeir hafa jafnan rétt við atvinnurekendur hér, og þykjast fremur heimakomnir heldur en aðrar þjóðir, sem hingað sækja, og þeir segja ennfremur:

„Fyrir nokkrum árum bárust svipaðar kvartanir frá norskum fiskimönnum og leiddu til mikillar gremju milli þeirra og íslenzku yfirvaldanna. Þá sendi norska stjórnin varðskipið „Michael Sars“ til Íslands með norska fiskiveiðaflotanum, og eftir það heyrðust aldrei kvartanir frá Norðmönnum um yfirgang íslenzku varðskipanna. Norska varðskipið leiðbeinir fiskimönnunum og hefir umsjón með þeim á þann hátt, að Íslendingar mega vel við una og hafa enga ástæðu til kvartana. Við Danir ættum að beita sömu aðferðinni, ekki sízt þar sem við hvort sem er höldum úti dýru varðskipi við strendur Íslands“.

Danska varðskipið á þá eftir þessu að vinna tvöfalt hlutverk, að verja landhelgina fyrir Íslendinga og að vernda Dani fyrir því, að þeim sé varin ísl. landhelgi. Það kemur ákaflega skýrt fram, að þeir hugsa sér þannig lagaða framkvæmd á þessu hér í sumar, því að ennfremur stendur í þessu danska blaði:

„Hinn stóri danski fiskveiðafloti, sem fer eftir nokkra mánuði til Íslands“. — en það er dragnótaflotinn og síldveiðaflotinn, — „verður að hafa sér til aðstoðar varðskip“, — það er nefnilega „Fylla“, — „líkt og á sér stað um norska fiskveiðaflotann. Líklega hefir danska varðskipið, sem fer í vor til Íslands, fengið fyrirskipanir um það að vera við því búið að vernda hagsmuni danskra fiskimanna“. Þetta er gott sýnishorn af hugsunarhætti Dana og því, hverju þeir búa yfir um hagnýting landhelginnar íslenzku.