20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (2261)

70. mál, dragnótaveiðar í landhelgi

Jakob Möller:

Það kemur ekki til mála annað en láta þetta mál fara til n. Eins og kunnugt er, hafði Nd. það til meðferðar bæði á vetrarþinginu og nú, þegar hún er öðruvísi skipuð. En það, sem er eftirtektarvert, er, að þá var það fellt við 3. umr. með miklum atkvæðamun, og kemur nú í allt annari mynd en þeirri, sem Nd. hafði til meðferðar í vetur.