24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (2266)

76. mál, jarðræktarlög

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta að sinni. Frv. er gamall kunningi frá fyrri þingum. Fyrst var það borið fram 1930, og urðu þá töluverðar umr. um það, sem ég veit, að þeir muna, sem sátu hér á Alþingi. Á síðasta þingi kom það aftur fram, en náði ekki að verða útrætt.

Aðaltilgangur þessa frv. er að koma allri yfirstjórn ísl. búnaðarmála í hendur bændanna í landinu. Eins og kunnugt er, var samþ. með síðustu breyt. á jarðræktarlögunum í sambandi við verkfærasjóðinn, að enginn skuli hljóta styrk fyrir jarðabætur nema hann sé í einhverju búnaðarfél. Árangurinn er sá, að allir bændur eru nú í búnaðarfél.

Á síðasta búnaðarþingi var gerð sú skipun, að bændur í búnaðarfélögum, m. ö. o. allir bændur landsins, skuli kjósa fulltrúa til hinna ýmsu búnaðarsambanda, og búnaðarsamböndin fulltrúa til búnaðarþings, þannig að saman komi á búnaðarþinginu fulltrúar fyrir alla bændastéttina. Nú finnst manni eðlilegt, þegar svo er komið, að búnaðarþingið ráði algerlega skipun í stj. Búnaðarfél. Ísl., en svo er ekki.

Eins og kunnugt er, eru þau ákvæði í jarðræktarlögunum, að stj. Búnaðarfél. Ísl. skuli skipuð þannig, að atvmrh. skipi tvo menn eftir útnefningu landbn. Alþ., en Búnaðarfél. sjálft skipi einn. Breytingin, sem farið er fram á, er, að búnaðarþingið skipi tvo menn. En til þess að ríkisstj. hafi nægilegt eftirlit með Búnaðarfél., skal hún skipa annan endurskoðanda fél., sem sé um leið trúnaðarmaður ríkisstj. Getur hún gegnum hann fengið vitneskju um það, hvernig Búnaðarfél. ver því fé, sem það hefir með höndum. Og ef henni líkar það illa, getur hún á ýmsan hátt, bæði sjálf og gegnum þingið, takmarkað það fé, sem Búnaðarfél. fær til umráða.

Mér var falið á síðasta búnaðarþingi að bera þessa brtt. fram. Vænti ég þess, að hv. þdm. taki brtt. með skilningi og samúð, og óska, að málinu verði að umr. lokinni vísað til landbn.