24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í C-deild Alþingistíðinda. (2269)
76. mál, jarðræktarlög
Pétur Ottesen:
Ég verð nú að segja það, að ég sé ekki, að þetta samband, sem nú er á milli Búnaðarfél og Alþ., standi neitt í vegi fyrir því, að bændurnir geti tekið lifandi þátt í búnaðarstarfsemi og framkvæmdum búnaðarmála. Og út af því, þegar hv. þm. er að tala um þetta fyrirkomulag, sem nú er, sem óhafandi og óeðlilegt, vil ég benda honum á það, að vöxtur og viðgangur Búnaðarfél. og allrar búnaðarstarfsemi í þessu landi hefir tekið miklu meiri framförum og þroska einmitt undir þessu fyrirkomulagi en dæmi eru til í sögu þessa lands. Og það sýnir bezt, hver fjarstæða það er að vera að tala um þetta fyrirkomulag sem óhafandi og þar fram eftir götunum. Það þýðir ekkert fyrir hv. þm. Mýr. að vera með neina dóma um það, að þetta sé svona og svona gallað, þegar hann hefir reynsluna alveg á móti sér. Og það er ekki fyrir íhlutun Alþ., að ýmsu í stjórn Búnaðarfél. er ábótavant, t. d. að hafa tvo búnaðarmálastjóra, sem ekki semur betur en það, að stj. fél. getur ekki haft sameiginlegan fund með þeim, heldur verður hún alltaf, að því er sagt er, að tala við þá hvorn í sínu lagi. Og nú er enn haldið í þetta fyrirkomulag, þetta ástand í trássi við lög Búnaðarfél. og vilja búnaðarþings. Alþingi hefir ekki skipað fyrir um þetta. Ég held, að aðalorsakanna til þess, sem áfátt er og ábótavant í stj. Búnaðarfél. og málefna þess. sé ekki að leita í sambandinu milli Alþ. og Búnaðarfél. Ég tel því, að það, sem hv. þm. Mýr. kallar hér millistig, sé heppilegt, og þar styðst ég við reynsluna, en máltækið segir, að reynslan sé ólygnust.
Hv. þm. sagði, að það starf, sem Búnaðarfél. hefir með höndum fyrir ríkið, væri ekki annað en skrifstofustarf. Þetta nær vitanlega engri átt, þar sem t. d. allur undirbúningur jarðræktarmála og framkvæmd þeirra er lagður í hendur fél. Þegar ég sagði, að Alþingi hefði lagt svo og svo mikið af sínu löggjafarvaldi í hendur Búnaðarfél., þá er það rétt, því að ef svo væri ekki ákveðið í lögum, að Búnaðarfél. legði á ráðin um þetta og hitt og réði tilhögun á framkvæmdum þess, þá yrði að ákveða í lögum, hvernig því skyldi hagað. Og á það vil ég benda enn, að þegar þessu sambandi Búnaðarfél. og Alþ. væri slitið, og íhlutun Alþ. um meðferð starfsfjár félagsins, sem allt er frá ríkinu, í burtu kippt, þá gæti svo farið, að eigi yrði jafngreitt um fjárframlög til þess og nú er og verið hefir.
Ég hefi ekki fellt neinn þungan dóm yfir því, að þetta frv. kom fram. En þar sem slíkt mál var áður búið að mæta mótspyrnu hér, þá hefði mér þótt eðlilegra, að búnaðarþingið hefði átt tal við landbn. þingsins áður en það tók upp í lög sín slíkar breyt. Það var a. m. k. miklu líklegri leið til samkomulags en að fara svona að.
Hv. þm. Mýr. bar þetta saman við annan félagsskap í landinu, sem nyti styrks af opinberu fé, en sem Alþingi hefði ekki íhlutun um. Mun hann í þessu sambandi hafa haft í huga Fiskifél. Íslands, en ég vil benda honum á, að það er svo ákveðið, að atvmrh. eigi að samþ. fjárhagsáætlun þess, þ. e. tilhögun félagsins á því, hvernig fénu skuli varið. Að því leyti er það háð afskiptum þess opinbera. En það er vitanlega enginn félagsskapur, sem er sambærilegur við Búnaðarfél. Ísl. að því leyti, hvað Alþ. felur því mikið fé til umráða og hvað það leggur því mikil völd í hendur. Og af þessum ástæðum er eðlilegt og sjálfsagt, að Alþ. hafi ríkari íhlutunarrétt um ráðstafanir þessa félagsskapar en annara stofnana, sem styrks njóta frá Alþingi.