24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (2280)
77. mál, varnir gegn berklaveiki
Magnús Guðmundsson:
Ég vil taka í sama streng og hæstv. forsrh. um það, að sjálfsagt sé að vísa málinu til nefndar. Ég vil einnig aðeins benda á það, sem virðist hafa farið framhjá hv. flm., að frv. um þetta var flutt hér á vetrarþinginu síðasta. Það frv. er á þskj. 392. Málið var þá í allshn., og finnst mér rétt að vísa því til sömu n. nú.