31.07.1931
Neðri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í C-deild Alþingistíðinda. (2324)
97. mál, húsnæði í Reykjavík
Einar Arnórsson:
Það er í raun og veru ekki margt, sem ég þarf að svara hv. 1. þm. Árn., því að yfirleitt virtist hann viðurkenna réttmæti athugasemda minna. Hann játar erfiðleikana á því að framfylgja slíkri löggjöf. Hann játar líka, að þessi lög muni hefta byggingar. Honum dettur heldur ekki í hug að neita því, að það er ekki fýsilegt að leggja hömlur á umráð manna yfir eignum sínum. En það, sem okkur skilur, er það, að hann trúir því, að þetta frv. muni bæta úr annmörkunum, en ég trúi því ekki. Um það er ekkert að segja, því að hvor okkar hefir leyfi til að trúa því, sem honum þykir líklegast.
Hann minntist á skriflegu samningana. Það var gott að fá frá honum yfirlýsingu um það, að lögunum sé ekki ætlað að ná til samninga, sem gerðir eru þegar lögin koma til framkvæmda.
Á eitt atriði vil ég minnast, er ég gleymdi að mestu í gær. Eftir frv. eiga kröfur um skriflega samninga ekki aðeins að ná til fjölskylduíbúða, heldur einnig til herbergja, sem einhleypir taka. Ef skólanemandi kemur og þarf eitt herbergi, þá þarf að gera skriflegan samning við hann eða forráðamann hans. Samkv. 9. gr. frv. er það skilyrði fyrir, að íbúðin fáist, þótt fyrir einhleypan sé. Eða er það ekki rétt? (JörB: Jú). Það sjá allir, að ef það þarf að gera skriflega samninga fyrir 10–15–20 króna herbergi, þá er slíkt fjarstæða.
Það er ekki rétt hjá hv. flm., er hann hélt því fram, að í ábúðarlögunum væri það lögskipað, að byggingarbréf skuli gefin. Leigumálinn er gildur, þótt hann sé ekki skriflegur. Að byggingarbréf sé gert, skiptir aðeina máli um sönnunarbyrðina.
Hér er líka alveg ólíku saman að jafna. Því að húsaleigusamningar í Reykjavík yrðu miklu fleiri en byggingarbréf í sveitunum. Því að enn er ekki komið svo mikið los á í sveitunum, að mikill hluti jarða sé byggður árlega, eins og er um íbúðir hér í Reykjavík.
Um hömlur á innflutning manna í bæinn má segja, að slíkt er í raun og veru algert nýmæli. Eins og nú stendur eru að vísu lög til um það, að þeir, sem flytja inn í hérað, skýri viðkomandi hreppsstjóra, eða í kaupstöðum lögreglustjóra, frá komu sinni. En búsetuleyfis þurfa þeir ekki að leita. En þessu er ekki framfylgt.
Ég tel rétt að minna hv. flm. á það, að ákvæðinu um innflutningshöftin hafa fleiri annmarka en bent var á í gær. Ætlazt er til, að einhleypir námsmenn við opinbera skóla megi fá húsnæði hér í bænum. Ég vildi nú mega spyrja, hvort rétt væri, að maður, sem ætlaði að fara í stýrimannaskólann og væri kvæntur maður, yrði að hætta við námsferðina eða skilja konuna eftir. (JörB: En d-liður). Já, samkv. d-lið gæti hann snúið sér til húsaleigunefndarinnar og spurt, hvort hann mætti koma með konu sína hingað til bæjarins. Nú, ef nefndin væri aðeins ein, þá mundi hún hafa eftir mörgu að líta, og ekki gott að vita, hve fljótt yrði um afgreiðslu, svo að það gæti dregizt um alllangan tíma, að svarið kæmi. Það finnst mér óþarfa skriffinnska, að þurfa að fá allranáðarsamlegast leyfi nefndarinnar til að hafa konu sína með sér hér í bænum aðeins nokkra mánuði.
Heimildin nær aðeins til opinberra skóla. Nú eru það ýmsir hér í bænum, sem hafa lífsuppeldi sitt af því að kenna, þótt ekki hafi þeir opinbera skóla. Þessar hömlur yrðu þess valdandi, að allir þeir nemendur, sem vilja stunda nám hjá þessum mönnum, yrðu að sækja um undanþágu samkv. d-lið. Ég geri ráð fyrir því, að hv. flm. sé ekki svo einstrengingslegur, að hann taki ekki vel í að breyta þessum atriðum, þegar honum hefir verið á þau bent, eftir því hve liðlega hann hefir tekið í aðrar aths., sem fram hafa komið.
Það er rétt hjá hv. flm., að þetta er alvörumál. En ég ætla að leyfa mér að svara spurningu hv. flm. — um það, hver ráð ætti að hafa til þess að bæta úr húsnæðisvandræðunum, ef engar hömlur eru settar á leiguna, — með annari spurningu. Hvernig á að ráða bót á því, ef verkanir þessara laga verða líkar því, sem við andmælendur frv. höldum fram? Það er álit okkar, að nái frv. fram að ganga, þá muni, vegna þess, hversu kosti húseigenda yrði þröngvað, taka fyrir byggingar.
Síðastl.haust var hér lítil húsnæðisekla. Það munu aðeins hafa verið örfáar fjölskyldur, sem vantaði húsnæði, og sá bæjarstj. fyrir þeim. Um flestar þessar fjölskyldur mun því hafa verið svo varið, að á þeim voru einhverjir vankantar, sem orsökuðu það, að fáir vildu hafa þær í húsum sínum.
Það er ekki heldur sérstaklega ánægjulegt fyrir húseiganda að geta átt von á samkv. frv., að troðið væri inn í herbergi við hliðina á íbúð hans einhverju vandræðafólki, sem hann veit engin deili á og hann vill ekkert hafa saman við að sælda. Eða hvað ætli hv. flm. segði, ef það væru lög í Árnessýslu, að senda mætti þjófa og hverskonar glæpamenn til vistar í Skálholti, að honum nauðugum. Ég er hræddur um, að honum þættu það þungar búsifjar, og skal ég ekki lá honum það. En þetta má gera húseigendum í Reykjavík samkv. ákvæðum þessa frv. Flm. taldi það óheppilegt, að mjög mikið yrði byggt, og er ég honum sammála um það atriði. En eftirspurn eftir húsnæðum ákvarðar það mál, þegar til lengdar leikur.
Ég ætla að taka undir það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að ég tel mig ekki talsmann neinnar sérstakrar stéttar, hvorki í þessu máli né öðrum. — Hv. flm. virðist annað veifið bera brigður á það, að frv. hans, ef það yrði að lögum, myndi hefta byggingar húsa hér í bænum. Og er því vert að athuga það nánar. Menn byggja aðallega af tvennum ástæðum, annaðhvort af því, að þá vantar sjálfa húsnæði, eða þá eingöngu eða meðfram til þess að ávaxta fé, er þeir eiga eða hafa með höndum. Ég held, að þeir menn verði fáir, sem byggja eingöngu af mannkærleika. —
Ef frv. verður að lögum, þá er loku skotið fyrir það, að menn byggi hér til að ávaxta fé sitt, því að þeir eiga þar á hættu, að þeir fái eigi einu sinni sparisjóðsvexti af því, auk heldur meira. Og yfir sjálfa sig eingöngu munu menn trauðla heldur byggja að nokkru ráði. Með þeim hætti mundu þeir búa dýrar en í leiguhúsnæði með hámarksleigu húsaleigunefndar. Ég man ýms dæmi frá dögum húsaleigulaganna hér áður um það, að efnaðir menn frestuðu húsbyggingu yfir sjálfa sig af því að þeir sáu, að þeim yrði dýrara að byggja sér hús en að búa í leiguíbúð með hámarksleigu húsaleigunefndar.