31.07.1931
Neðri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (2325)

97. mál, húsnæði í Reykjavík

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Það er fremur fátt í ræðu hv. 2. þm. Reykv., sem ég þarf að svara. Mér fannst hann tína fátt til í viðbót við það, sem hann hefir áður sagt í þessu máli. Viðvíkjandi skilyrðum um það, að utanbæjarmenn fái húsnæði í bænum, má auðvitað deila fram og aftur, en ég hygg, að því sé bezt komið fyrir eins og gert er ráð fyrir í frv. — Það væri heldur ekki tæmandi, ef ætti að fara að tína til í lögunum, hvernig farið skyldi að í hverju einstöku tilfelli; þau verða bara að vera rúmgóð, og slík einstök tilfelli og hv. þm. minntist á, verða að heyra undir þá, sem framkvæma lögin, í þessu tilfelli húsnæðisnefndina. Það verður að gera ráð fyrir, að hún verði skipuð svo sanngjörnum mönnum, að þeir misbeiti ekki rétti sínum. — Ég held, að það sé fátítt, að kvæntir utanbæjarmenn setjist hér að fyrir skamman tíma, og væri ekki mikið erfiði fyrir þá að skrifa nefndinni bréf, og ólíklegt þætti mér, að hún þyrfti öll að setjast á rökstóla yfir hverju slíku bréfi. (EA: Fundir nefndarinnar væru ekki lögmætir, nema meiri hluti nefndarmanna sæti þá). Ég held, að oft yrði hægt að fá atkv. meiri hl. nefndarmanna t. d. símleiðis; annars geri ég ráð fyrir, að til að byrja með þurfi nefndin að halda marga fundi og starfa mikið.

Ég játaði það áðan, að vel mætti vera, að minna yrði byggt hér í gróðaskyni, ef þetta frv. yrði að lögum. Þar með er ekki sagt, að byggingar í bænum mundu minnka yfirleitt. Þeir menn mundu byggja eftir sem áður, sem vantar sjálfa húsnæði, og varðar þá mestu, að þeir gætu fengið peninga til þess með góðum kjörum. Hv. þm. minntist á, að hér hefði verið lítil sem engin húsnæðisekla á síðasta hausti. Hann er sammála mér um það, að ekki sé gott, að byggt sé meira en þörf er á. — Ég er sannfærður um, að húsaleigan í þessum bæ lækkar ekki fyrr en eftirspurnin minnkar, eða þá að löggjafarvaldið tekur í taumana. — Það kemur ekki til mála að mönnum verði troðið upp á húseiganda án vilja hans, nema húseigandi neiti að láta af hendi íbúðir, sem hann er skyldugur til samkv. þessum lögum. Um glæpamannatal hv. þm. er það að segja, að slíkir menn hafa venjulegast húsnæði út af fyrir sig, eftir að dómur er fallinn. Og þegar þeir hafa afplánað sína refsingu, er ekki rétt að kalla þá glæpamenn. (EA: Ekki hætta allir þjófar að stela, þó að þeir hafi einu sinni tekið út hegningu). Nei, en það varðar við lög að kalla mann þjóf, sem hefir tekið út refsingu sína. (EA: Ónei, ekki er það nú). Annars þykir mér þessi röksemdafærsla hv. þm. fremur langsótt; hann er ekki svo skyni skroppinn, að hann viti ekki, hve örlítill hluti Reykjavíkurbúa tilheyrir þessum flokki manna, sem hann þarna tók til dæmis. (EA: Er Reykjavíkurskríllinn nú orðinn svona heiðarlegur?). Getur hv. 2. þm. Reykv. hermt það upp á mig að hafa farið niðrandi orðum um Reykjavíkurbúa yfirleitt? Það er hv. þm. sjálfur, sem hefir komið með þetta glæpamannatal inn í umr. (EA: Við höfum notað það báðir. — PO: Afarskemmtilegar umræður). Ég ætla ekki að tefja tímann lengur við þessa útúrdúra.

Ég ætla þá að snúa mér dálítið að hv. 4. þm. Reykv. Hann byrjaði ræðu sína með því að segja, að hann vissi ekki, hvar byrja skyldi, og sagðist fara út í þar, sem hann kæmi að. Þetta er einkennandi fyrir þennan hv. þm., slíkum lausatökum tekur hann flest mál, sem hann snertir á. Annars talaði hann með meiri alvöru en í gær, og viðurkenndi núna t. d., að mál þetta væri mikilsvarðandi.

Það er leiðinlegt með eins greindan mann og fólk álítur þennan hv. þm. vera, hvað hann fer flausturslega að því að athuga svona vandasöm mál.

Hann talar um dýrtíðina í Reykjavík eins og hún væri fyrirbrigði, sem aðeins kæmi Reykjavík við. En þetta er mesti misskilningur, því að dýrtíðin í Reykjavík snertir alla þjóðina í heild. Það væri mjög æskilegt, að hv. þm. vildi athuga þetta mál betur, svo að hægt sé að gera ráð fyrir því, þegar rætt er við hann, að hann þekki einföldustu forsendur þess. — Hann fór að réttlæta stóryrði sín í garð okkar framsóknarmanna með einhverju, sem einhverntíma á að hafa staðið í Tímanum. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að þar standi ekkert niðrandi um Reykjavíkurbúa í heild. — En fyrst hv. þm. álítur alla framsóknarmenn ábyrga fyrir því, sem stendur í Tímanum, þá ætla ég að biðja hann að líta í höfuðmálgagn þess flokks, sem hann tilheyrir, Morgunblaðið, þar sem þrásinnis er farið niðrandi orðum um stóran hluta landsmanna. Það er þó ekki ætlun mín að ætlast til þess, að hv. þm. taki á sig ábyrgð fyrir allt það, sem stendur í Morgunblaðinu, af því að ég geri ráð fyrir, að honum muni veitast fullerfitt að bera ábyrgð á sínum eigin orðum. — En nýlega hefir hann sjálfur látið sér sæma að fara niðrandi orðum um mikinn hluta þjóðarinnar í þessu blaði, og það ætti þó að mega krefja hann til ábyrgðar fyrir.

Í þessu máli, sem um er rætt, eru aðallega tveir aðiljar: leigutakar og leigusalar. Og þótt hv. þm. þykist bera báða þessa aðilja fyrir brjósti, er samt auðfundið, að hjarta hans slær í takt við hjörtu leigusalanna. Það eru hagsmunir þeirra, sem hv. þm. er að reyna að vernda.

Hv. þm. vék svo að því, að það vildi hver sínum tota fram ota hér sem annarsstaðar. Ég efast ekki um, að svo sé, og húsnæðið hér bendir nokkuð á það. En það getur gengið of langt, og þegar svo er komið, verður að grípa í taumana vegna hagsmuna almennings og líta á þetta mál með fullkomnu réttlæti, því að lausn þessa máls veldur miklu um það, hvernig tekst að ráða fram úr vandamálum Reykjavíkur. En að ég hefi minnzt á fleiri atriði í þessu dýrtíðarmáli, stafar af því, að það er mesta nauðsyn, og þá ekki síður vegna þeirra manna, sem hefðu minni tekjur af þessum eignum sínum, ef þessi löggjöf yrði sett, að gera þeim á annan hátt auðveldara að bera hana.

Hugmyndir hv. þm. um kostnað við framleiðsluna, allt þar til neytendur fengju hana, voru blátt áfram hlægilegar. Hann vildi halda því fram, að það væri svo sem ekki nærri allur tilkostnaðurinn við fiskinn að koma honum í bátinn og jafnvel upp á bryggjuna, og svipað væri það með framleiðslu mjólkurinnar. Það eru undarlegar hugmyndir, sem þessi hv. þm. gerir sér um þessa hluti, því að það er vitaskuld höfuðkostnaðurinn að framleiða vöruna og koma henni til bæjarins. En það hefir verið þannig í reyndinni, að mikið af verði vörunnar hefir farið til þeirra, sem minnstu hafa til kostað. Þannig er það með fiskinn, og það lítur út fyrir, að hv. þm. vilji bíða eftir því, að þetta lagist allt af sjálfu sér.

Ég held, að ég láti svo úttalað um þetta. Ég hefi drepið á fáein atriði, og það, sem eftir er, skiptir engu máli. Hv. þm. er líka búinn að tala sig dauðan, svo að það er ekki rétt að víkja að honum nánar.