31.07.1931
Neðri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (2336)
109. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Ég vil aðeins benda hv. 1. þm. Rang. á það, að hér er aðeins um heimild að ræða. Sjóðstjórnin ræður því hverju sinni, hvort lán skuli veitt í þessu skyni eða ekki. Og um slíka lánveitingu getur ekki verið að tala nema óhjákvæmileg nauðsyn sé til þess. Ég get því ekki séð, að nein hætta sé við að veita þessa heimild, en hinsvegar séu þessar framkvæmdir svo nauðsynlegar, að það sé skylda sjóðsins að annast þessar lánveitingar.