15.08.1931
Efri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (236)
1. mál, fjárlög 1932
Jón Baldvinsson:
Fjvn. þessarar d. hefir verið í fljótara lagi með fjárl., og er vonandi, að hún hafi unnið verk sitt bæði fljótt og vel, þótt afraksturinn sé ekki mikill, enda getur verið, að sumum þyki Nd. hafa gengið svo vel frá fjárl., að ekki sé ástæða til mikilla breyt. En mér finnst vera svo lítið af brtt., sem fjvn. gerir við fjárl., að hún hefði eins getað látið samþ. þau óbreytt, nema eftir sé meira, sem á að koma við 3. umr., eins og oft vill verða.
Flestar till. n. eru lítilfjörlegar og ómerkilegar; sumt eru lítilsháttar hreyfingar, breytingar og leiðréttingar, og segir meiri hl. n., að það sé ískyggilegt að hreyfa mikið við fjárl. vegna erfiðs ástands, sölutregðu og lækkaðs verðs á afurðum landsmanna. Það er rétt, að ástandið er erfitt, en það getur vel verið, að vegna þess sé einmitt ekki ástæða til þess að draga úr opinberum framkvæmdum. Ég hefi einmitt þá skoðun, að þá eigi ríkissjóður að láta sig varða verklegar framkvæmdir og halda þeim áfram, en auka ekki á kreppuna með því að draga saman seglin eins og atvinnurekendur gera. Nú er ekki nóg með það, að framkvæmdir séu áætlaðar miklu minni heldur en undanfarin ár, heldur er beinlínis ýtt undir stj. að ganga enn lengra í þessa átt, með þeirri heimild, sem Nd. setti inn í fjárlögin, að stj. megi draga úr fjárveitingum til framkvæmda sem svarar ¼ af því, sem fjárl. gera ráð fyrir. Á þetta er ekki minnzt í nál., og ég hefi ekki orðið var við, að þeir, sem þegar hafa talað um fjárl., hafi gert neinar aths. við þetta, og þá geri ég ráð fyrir, að báðir stærri flokkarnir séu sammála um að afgr. þau með þeirri heimild, sem er í 25. gr. handa stj. til þess að lækka framkvæmdir og útborganir samkv. fjárl., eftir því sem stj. þykir við eiga.
Ég vil láta það strax koma fram, að ég álít ekki rétt að játa slíkt ákvæði standa í fjárl., og af því að greinar þeirra verða bornar upp hver fyrir sig, kemur þessi gr. sérstaklega til atkv., og ég mun greiða atkv. á móti henni. Ég vil tilkynna þetta nú þegar, svo að það geti verið leiðbeining fyrir hv. sjálfstæðismenn til þess að gera sér einhvern mat úr því í samningum við Framsókn, að ég sé á móti greininni, og þeir geti því ráðið, hvort hún verður samþ. (PM: Sumir hafa samið oftar við Framsókn en sjálfstæðismenn!). — Ef sumir væru við suma eins og sumir eru við suma, þá væru sumir betri við suma en sumir eru við suma.
Þetta fjárlagafrv., sem ég ætla ekki frekar að gera að umræðuefni að þessu sinni, er ekki byggt upp með það fyrir augum, að hið opinbera eigi að verða til styrktar landsmönnum í þeirri kreppu, sem nú stendur yfir. Ekki verður heldur séð af undirtektum meiri hl. þingsins, að hann ætli að gera svo stórfelldar ráðstafanir sem ástæða væri til, undir því ástandi, sem nú er, og öllum kemur saman um, að sé mjög ískyggilegt; samt hefir enginn tekið sér fyllra í munn en núv. stjórnarform., sem sagði, að þetta væri hættulegasta og alvarlegasta kreppan, sem komið hefir yfir landið á þessari öld. Oft hefir þó áður verið erfitt ástand, t. d. 1921–1924, og ég er ekki frá því, að það sé rétt, að ástandið sé nú enn erfiðara, einkum af því, að ástandið úti um heim er einnig svo afarerfitt, og það lítur ekki út fyrir, að úr því rætist fyrst um sinn. —
Ég hefi nú verið svo djarfur að bera fram nokkuð margar brtt. á þskj. 297, og þar með gert mig sekan um það, sem framsóknarmenn hafa fundið mér til foráttu hér í d., að ég eyddi pappír og tíma þingsins til þess að ræða um þingmál. Ég álít samt, að ég eigi ekki að draga neitt úr því að flytja þær till., sem ég tel, að þurfi að koma til framkvæmda, og getur vel verið, að ég komi með fleiri till. við 3. umr., auk þessara, ef einhverjar þeirra verða felldar.
Fyrsta till., sem ég flyt, er ráðstöfun vegna kreppunnar, og það er till., sem stj. og flokki hennar og yfirleitt þm. í d. ætti að vera ljúft að samþ., því að það sparar útgjöld úr ríkissjóði. Það er um að taka dýrtíðaruppbótina af kónginum. Þetta er reyndar ekki beinlínis dýrtíðaruppbót, heldur gengismunur. Honum er greitt fé sem íslenzkum konungi, og það er ákveðið 60 þús. í ísl. kr. En af því að hann situr í Danmörku. hafa stj. velflestar tekið þann sið upp hjá sjálfum sér að greiða honum 60 þús. kr. danskar, og er það líklega af því að kóngur viðurkennir ekki nema danska peninga, þekkir ekki þá íslenzku. En ég álít, að hann eigi bara að fá sína borgun eins og lög mæla fyrir, í ísl. kr. Þessi uppbót, sem kóngurinn fær, er þvert á móti þeirri stefnu, sem annars virðist ríkjandi í fjárl. hjá hinum ráðandi meiri hl., að draga úr útgjöldum, þar sem það er hægt. Það er fullkomlega staðið við loforð um að greiða honum þau 60 þús., sem lög gera ráð fyrir. Þegar þingið þykist ekki hafa ráð á því að auka eða halda við þeirri framkvæmdum, sem koma landsins börnum að gagni, ætti það ekki eða vera óþarflega „flott“ á launagreiðslur handa kónginum, meira en lög landsins standa til.
Ég geri ráð fyrir, eftir þeirri stefnu, sem kemur fram í fjárl., að framsóknarmenn muni samþ. þetta. Um Sjálfstæðisflokkinn get ég ekki verið í vafa, að hann muni samþ. þessa niðurfærslu, þar sem hann tók upp baráttuna fyrir lýðveldi í vor. Það er vonandi ekki svo útdautt, að flokkurinn vilji a. m. k. ekki láta vera að borga kónginum meira en honum ber eftir ísl. löggjöf.
Ég læt svo útrætt um þessa till., en við sjáum við atkvgr., hvernig hv. þm. taka í hana. Af því má marka, hvaða hug þeir bera til sparnaðar.
Ég hefi flutt till. á sama þskj., IV, um styrk til Jónasar Sveinssonar, 5000 kr., til dvalar erlendis. Þessi héraðslæknir hefir sérstaklega lagt stund á skurðlækningar og fengið í þeim mikla leikni og æfingu, en er nú erlendis til þess að fullkomna sig enn betur og ætlar að verja til þess tveimur árum. Það segir sig sjálft, að hann mun ekki geta, a. m. k. ekki án þess að hleypa sér í skuldir, staðið straum af þeim kostnaði, svo að þó að honum væri veittur 5000 kr. styrkur, mundi það hvergi nærri hrökkva til að borga kostnaðinn. Af því að þessi læknir hefir fengið sérstakt orð á sig fyrir handlagni og lærdóm í skurðlækningum, geri ég ráð fyrir, að þeir þdm., sem þekkja hann, muni verða fúsir til þess að veita honum stuðning, bæði í orði við umr., og í verki við atkvgr. Ég hefi þó að vísu, til þess að gera þm. til geðs, komið með varatill. upp á 3000 kr. Það er venja á þingi, þegar menn eru mjög blóðþyrstir, að þeir játi sefast, þegar þeir hafa fengið að vaða í blóðinu um stund, og sýna miskunn smærri upphæðum, sem fram eru komnar til vara.
Þá hefi ég flutt till. um nýtt framlag til Fjarðarheiðarvegar. Það er ekki nýtt hér í d., að minnzt sé á Fjarðarheiði. Hún hefir verið stöðugur gestur í till. við fjárl. og stundum fengið góðar undirtektir, þótt ekki hafi þær komizt í gegnum þingið enn. Hugsunin hefir verið sú, að leggja fullkominn veg frá Seyðisfjarðarkaupstað upp á Hérað, og eru það ekki smáar till., sem hafa verið samþ. hér í þessu skyni. Það voru nær 100 þús. kr., sem farið var fram á í hitteðfyrra og náði þá samþ. hv. d. Nú er horfið frá því ráði að leggja þarna fullkominn veg, heldur reyna þá leið, sem tekin hefir verið upp í ísl. vegagerð í seinni tíð, að ryðja vegi, svo að þeir séu færir bifreiðum nokkurn hluta ársins. Vegamálastjóri hefir látið rannsaka vegarstæði á Fjarðarheiði, og eru möguleikar á því að ryðja þar veg, sem gæti verið bílfær nokkra mán. ársins. Þessar 20 þús. kr. eru byrjunin á þessu verki. Það er ekki mikil fjárhæð, en sjálfsagt má þó ryðja veg þarna nokkuð langan kafla fyrir þetta fé, þótt heiðin sé erfið yfirferðar og kostnaður mikill við ruðninginn. En ekki þarf að efa, að þegar þessi vegur kemst á, verði að honum mikið gagn, ekki aðeins fyrir Seyðisfjörð, heldur einnig fyrir Fljótsdalshéraðsbúa.
Þetta mál má ekki stranda á því, þótt miklir ráðamenn í Framsóknarflokknum vilji ekki láta leggja þenna veg, og mér skilst, að raunverulega sé það haft einna mest á móti veginum, að Fagradalsbrautin er komin áður. Það er eins og vissir menn fyrir austan vilji ekki annan veg, svo að samgöngurnar séu bundnar við einn stað, frá fjörðunum til Héraðsins. En ég held, að mönnum þar eystra væri mest gagn að því að geta átt aðgang að fleiri en einum kaupstað. Að vísu hefir verið lagður vegur frá Eskifirði til Reyðarfjarðar í sambandi við Fagradalsbrautina, svo að nokkuð hefir rýmkazt um. En ég held, að það væri mjög nauðsynlegt að geta einnig náð af Fljótsdalshéraði til Seyðisfjarðar, sem er ein öruggasta höfn á landinu, og þar sem viðkomur skipa eru meiri en á flestar aðrar hafnir á Austfjörðum. Hvernig sem litið er á þetta mál frá sjónarmiði Héraðsins ofan heiðar, er því sjálfsagt að stuðla að því, að þessi vegur verði lagður, auk þess sem að honum yrði mikið gagn fyrir Seyðisfjarðarkaupstað, og þá ekki sízt, ef veginn er hægt að gera með eins litlum tilkostnaði og vegamálastjóri telur, með því að ryðja hann, en leggja hann ekki.
Þá hefi ég flutt brtt. undir sama lið, um 400 þús. kr. til nýs vegar milli Rvíkur og Hafnarfjarðar, eða til endurbyggingar á þessum vegi. Það orkar ekki tvímælis, að ef á að halda uppi einhverjum framkvæmdum, sem að gagni gætu komið bæði vinnandi fólki og hinu opinbera fram yfir það, sem gert er ráð fyrir í fjárl., mundi lagning slíks vegar koma að margháttuðu gagni, fyrst og fremst fyrir íbúa þessara kaupstaða, sem ég geri ráð fyrir, að helzt hefðu atvinnu þar við, og í öðru lagi fyrir verzlun milli þessara kaupstaða, því að ekki er efamál, að ef byggður væri eins góður vegur milli Rvíkur og Hafnarfjarðar og teknikin nú getur látið í té, mundu flutningsgjöld lækka stórlega, og er sennilegt, að fargjöld yrðu ekki yfir 30–40 aura, sem nú er 1 króna. Nú hefi ég ekki viljað binda þetta við það, að endilega yrði lagður nýr vegur, eins og gert er í frv. frá hv. þm. Hafnf. og legið hefir hér fyrir, af því ég hefi séð erindi frá vegamálastjóra, sem leggur heldur á móti því, að ráðizt sé í þessa vegarlagningu nú. Þar skilst mér, að komizt sé að þeirri niðurstöðu, að rannsókn sé ekki lokið á því, hvort eigi að gera nýjan veg milli Hafnarfjarðar og Rvíkur eða endurbyggja gamla veginn og nota hann áfram. Þess vegna hefi ég látið það óbundið, hvor leiðin yrði valin. Það fer allt eftir því, hvor leiðin verður álitin heppilegri að undangenginni rannsókn.
Ég vil sérstaklega vekja athygli hv. dm. einmitt á þessari till., sem gerir að vísu ráð fyrir miklum útgjöldum, en fer fram á, að unnið sé nauðsynlegt verk, sem hlýtur að verða unnið fyrr eða síðar, en er allra ástæðna vegna hentugt að vinna nú á yfirstandandi tíma.
Þá er XII. brtt. við 13. gr., C. VIII, til hafnargerðar á Sandi og til uppfyllingar og bátahafnar þar, 10 þús. kr. Nú er þar lítil bátahöfn, og geta litlir bátar legið þar, en það þarf að lengja garðinn lengra út. Annað þarf einnig að gera þar, sem er kannske ennþá nauðsynlegra. Það þarf að koma þar fyrir uppfyllingu, þar sem fiskimenn gætu verið við aðgerð á fiskinum, því að nú er þar ægissandur, og fiskurinn skemmist meira og minna af því að velkjast í sandinum, af því að sandurinn er svo fínn og smýgur inn í líkið á fiskinum og skemmir hann. Þar er líka mikið sandfok, svo að það er óhjákvæmileg nauðsyn að gera þar „plan“ innan hafnargarðanna, þar sem fiskaðgerð gæti farið fram. Nú er ætlazt til, að 2/3 kæmu annarsstaðar að, svo að alls yrðu það 30 þús. kr., ef héraðið gæti lagt sinn hlut fram. Þó að þetta sé allmikið fé, má telja víst, að þetta borgaði sig, því að allir, sem kunnugir eru þarna, vita, að þarna undan Snæfellsnesi, um 20 mín. róður frá þessum stað, eru einhver allra beztu fiskimið landsins. Afli sá, sem árlega kemur þarna á land, nemur mörg hundruð þús. kr. árlega, og þó eru þarna ekki nema um 600 menn. Aðstaðan til fiskiveiða er að því leyti svo framúrskarandi góð þarna, að það er svo skammt á mið. Það er því mest þörf á að efla slíka staði, þar sem svona mikils árangurs er að vænta. Það er dálítið annað að leggja mikið fé í hafnargerðir á þeim stöðum, þar sem ekki er vitað fyrirfram, að sé eins fengsælt og vitað er um, að er á þessum eldgamla veiðistað, því að út af Snæfellsnesi örskammt þarna frá eru ennþá sömu fiskimiðin og sótt hefir verið á allt frá Íslands byggð, frá því að Ingjaldur reri þar út einn í skinnfeldi, svo að það þarf enga tilraun að gera þarna til að vita, hvort þarna séu fiskimið, því að þau eru þar, en ríkissjóður á að leggja þetta fram til að auka framleiðsluna og gera þorpsbúum mögulegt að geta gert vöru sína markaðshæfa, en nú eru miklir erfiðleikar á því, eins og áður var sagt.
Þá hefi ég leyft mér að flytja aðra brtt. á sama þskj., XVI, 1, við 14. gr., um styrk til ísl. stúdenta til náms erlendis. Þvert á móti því, sem ég vil, að tekinn sé af gengisviðaukinn á borðfé kóngsins, vil ég, að stúdentum sé veitt uppbót á þeim styrk, sem þeir nú fá, sem svari þeim mismun, sem er á ísl. krónu og t. d. danskri krónu, sem er nú í gamla gullgildinu. Þess vegna hefi ég leyft mér að bera fram þá till., að þessi styrkur verði hækkaður úr 24 þús. kr. upp í 30 þús. kr. Það svarar til þess, að stúdentum væri borgaður styrkurinn í dönskum krónum eða tilsvarandi upphæð í ísl. krónum. Ef einhver samanburður væri gerður á aðstöðu íslenzkra stúdenta, sem dvelja erlendis, og aðstöðu kóngsins, þá sjá allir, að meiri þörf er á að veita þeim uppbót á sinn styrk heldur en kónginum. Það var líka svo um eitt skeið, að stúdentum var veittur styrkurinn í mynt þess lands, sem þeir dvöldu i, þ. e. a. s. í dönskum krónum, þegar þeir voru við nám í Danmörku. Nú mun þessu hafa verið breytt af fyrrv. dómsmrh., svo að nú er styrkurinn greiddur í ísl. krónum. Styrkurinn er því lægri nú, og þó er það sanni næst, að enginn hefir orðið verr út úr því, að við Íslendingar fengum fullkomið sjálfstæði en einmitt stúdentarnir, því að þá voru þeir sviptir þeim hlunnindum að geta stundað nám við háskóla Kaupmannahafnar, en með þeim styrk, sem þeir fá nú, geta þeir alls ekki stundað þar nám, nema þá þeir eigi einhverja þá að, sem geta veitt þeim viðbótarstyrk. Þess vegna ber ég fram þessa till., og eftir henni er ætlazt til, að þessi upphæð sé veitt, ekki eingöngu frá næstu áramótum, heldur sé stj. einnig heimilt að greiða hann nú á þessu ári.
Þá hefi ég borið fram aðra brtt. við 14. gr., um að veita Kr. Guðmundi Guðmundssyni styrk til að stunda stærðfræðinám við háskóla í Þýzkalandi eða Danmörku, 1000 kr. á ári, og geri ég ráð fyrir, að hann þyrfti nokkur ár til þess. Ég kem með þessa till. fyrst og fremst af því, að þessi maður hefir leitað til Alþ. með beiðni um styrk, og mér er kunnugt um, að hann er efnilegur og reglusamur maður og hefir lokið prófi með mjög góðri einkunn við stærðfræðideild menntaskólans í Reykjavík. Hann mun nú eiga von á styrk frá menntamálaráðinu, en af því að hann er efnalaus og getur ekki útvegað sér lánsfé, telur hann sig ekki geta komizt af með þann styrk, sem er ekki heldur von. Þess vegna hefir hann nú leitað til þingsins, sem er það eina athvarf, sem ísl. námsmenn hafa, því að hér eru ekki ennþá neinir sérstakir sjóðir eða fyrirtæki, sem styðja einn eða annan til náms. Þessi stúdent þarf líka að byrja nú þegar á sínu námi, því að hann er orðinn það fullorðinn, að það væri ekki rétt af honum að fresta því, ef hann gæti byrjað undir eins. Þeir stúdentar, sem eru kornungir, geta stundum unnið sér fyrst inn nokkurt fé og notað það síðan til náms, en það er varla hægt fyrir þennan mann, vegna þess hvað hann er fullorðinn.
Næst er till. XX, við 15. gr. 8. Hv. þm. Hafnf. hefir nú mælt fyrir henni, en ég vil þó lítið eitt minnast á hana. Hún er um kaup handa manni til bókavörzlu, a. m. k. 2000 kr. auk verðstuðulsuppbótar, samt. 3000 kr. Það er sama upphæð og Ísafjarðar- og Akureyrarkaupstöðum er veitt handa tilteknum mönnum, sem starfa við bókasöfnin, og er jafnframt styrkur handa þeim ágætu mönnum, sem þar eiga hlut að máli, þeim Guðmundi Hagalín og Davíð Stefánssyni.
Hafnarfjörður, sem er mannfleiri en Ísafjörður, hefir nú komið sér upp bókasafni, sem er um 1500 bindi, eftir því sem hv. þm. Hafnf. hefir nú upplýst, og það er vitanlega nauðsynlegt að hafa slíkt bókasafn opið fyrir almenning, en hinsvegar talsverður kostnaður við það. Það er því ekki nema sanngjarnt, að Hafnarfjarðarkaupstað sé veitt sama upphæð og nú þegar er búið að veita hinum kaupstöðunum, ekki sízt fyrir það, að Hafnarfjörður er ekki síðri en aðrir kaupstaðir með gjöld til ríkissjóðs. Þar fær ríkið drjúgar tekjur bæði af innfluttum og útfluttum vörum, og þessi kaupstaður er einn af þeim, sem nú eru mest í uppgangi. Hann á því ekki að vera verr settur en aðrir kaupstaðir í þessu efni, og þar er sízt minni þörf fyrir bókasafn en í áðurnefndum kaupstöðum. Ég taldi því rangt af hv. þdm. að gera þann mismun á þessum kaupstöðum, sem verður yrði, ef till. mín yrði ekki samþ. Ég fer hér fram á 3000 kr., en svo hefir hv. þm. Hafnf. flutt till. um 2500 kr. fjárveitingu í sama skyni. (BSn: Ég tek hana aftur, ef hin er samþ.). Hún verður þá varatill., ef hv. þdm. verða svo vondir að drepa mína till.
Þá skal ég geta þess, að ég flyt brtt. við sama lið, um bókasöfnin, til leiðréttingar á fyrirsögninni, því að ef þessi till. verður samþ., þá á fyrirsögnin ekki við, því að það stendur í fjárl., að styrkur sé veittur til 3 bókasafna, en því verður að breyta, ef þessi till. nær fram að ganga.
Þá á ég XV. brtt. á þessu stóra þskj., og er það till. um að bæta inn í frv. einum lið, sem vafalaust hefir fallið niður af gleymsku hjá hæstv. stj. Nú að undanförnu hefir verið í fjárl. styrkur til Guðbrands Jónssonar til að semja miðaldamenningarsögu. Það er kunnugt, að þessi maður er bráðgáfaður og óvenjulega vel lærður maður í þessari grein, sem hann hefir verið styrktur til að starfa að, svo að stj. hefir að undanförnu þótt rétt að taka hann upp í fjárl. nú í mörg ár, allt þar til nú. Ég skoða það því aðeins sem gleymsku, að stj. hefir ekki látið þennan lið fylgja með í 15. gr. Ef fara ætti í mannjöfnuð um það, hverjir væru verðugastir fyrir slíkan styrk sem þennan, er ég viss um, að dr. Guðbrandur yrði þar framar en ýmsir, sem nú er veittur styrkur í 15. gr. Það er dálítið annað og minni þörf á að veita vel launuðum embættismönnum styrk til ritstarfa en að veita manni, sem hefir ekki fasta stöðu, en er vel hæfur til starfsins og ríkið hefir nokkra skyldu við, þar sem hann hefir fullkomna ástæðu til að ætla, að hann hafi átt að fá starf við Landsbókasafnið á sínum tíma. en fékk þó ekki, af ástæðum, sem ég mun ekki rekja nú. Alþ. hefir samþ. þetta í notum þessa, og stj. hefir undanfarið tekið þetta upp í notum þessa. Ég tel því líklegt, að hv. þdm. leiðrétti þetta, þar sem þessi styrkur hefir staðið í frv. stj. undanfarin ár.
Enn á ég till. á sama þskj., XXX, þess efnis, að veita Sjómannafélagi Rvíkur 10 þús. kr. til að halda uppi sjómannastofu í Reykjavík. Víða í löndum er það álitið sjálfsagt og nauðsynlegt, að starfrækt sé sjómannastofa, til þess að sjómenn geti átt þar athvarf til bréfaskrifta og annars slíks. Nú þarf ekki að draga það í efa, að velvilji er til sjómannanna hér á þingi, svo mikið sem landsmenn eiga undir þeirri stétt og svo mikla björg sem þeir draga í búið. Það væri líka trúlegt, að hv. þdm. vildu gera útlendum sjómönnum, sem hingað koma, lífið þægilegra að þessu leyti á meðan þeir dvelja hér.
Ég tel sjálfsagt, ef slík sjómannastofa kemst upp, að Sjómannafélag Rvíkur sjái um hana, því að í því fél. eru flestir sjómenn, sem hingað koma, því að þeir eru „organiseraðir“ í sínum fagfélögum. Þeir eiga því flestir erindi til Sjómannafél., og þeir mundu taka því fegins hendi, ef þeir ættu völ á að komast á skrifstofu, þar sem þeir eiga líka aðgang að þessu fél. til leiðbeiningar um það, sem þeir þurfa að fá leiðbeiningu um, upplýsingar um atvinnu og annað slíkt. Ég álít því, að bæði réttlæti og nauðsyn mæli með því, að þessi till. verði samþ. Þjóðin stendur í svo mikilli þakkarskuld við sjómennina, að Alþ. má ekki skera við neglur sér fjárveitingar til þessa. Ef hv. þdm. vilja ekki líta við þessu, mætti álíta, að sú velvild, sem þeir hafa svo oft túlkað í garð sjómanna, sé meira í orði en á borði.
Þá á ég brtt. við sama lið, 8000 kr. til ráðningarskrifstofu Alþýðusambands Ísl. Þetta er sérstaklega gert með tilliti til þess ástands, sem nú er. Eins og við vitum, er nú á bezta atvinnutíma ársins margt fólk atvinnulaust og miklar umleitanir eftir því að fá eitthvert handtak að gera. Það hefir samt ekki komizt enn í framkvæmd hér, sem komið er á í flestum menningarlöndum heimsins, að hafa skrifstofu, sem leiðbeinir fólki um atvinnu og tekur á móti pöntunum eftir starfsfólki og er þannig milliliður milli atvinnurekenda annarsvegar og verkafólks hinsvegar. Þessi ráðningarskrifstofa ætti vitanlega að skipta sér af ráðningu fólks bæði á sjó og landi eftir því sem það leitaði til hennar, og þegar mikið atvinnuleysi er, má einskis láta ófrestað í að koma mönnum að starfi.
Ég held því ekki fram, að þetta verði til að bæta til fulls úr miklu atvinnuleysi, en það er eitt ráðið og mundi koma til með að hafa mikla þýðingu, þegar erfiðir tímar koma eins og nú. Má geta þess, að 1918 setti ríkið upp slíka skrifstofu um nokkurt skeið. Og slík skrifstofa hefir ekki eingöngu þýðingu fyrir verkafólkið. Hún er nauðsynleg fyrir atvinnurekendurna líka. [Fundarhlé].
Ég hafði, þegar horfið var frá, lokið við að tala um nauðsyn ráðningarskrifstofu Alþýðusambandsins. En undir sama rómv. tölul. á ég brtt., sem gerir ráð fyrir 9000 kr. styrk til ræktunarfél. Sauðkræklinga til ræktunarvegar, gegn 1,3 framlagi annarsstaðar frá. Það hefir tíðkazt að styrkja slíka vegagerð sem hér um ræðir, þar sem unnt er að rækta land. Þetta hefir t. d. verið gert í Vestmannaeyjum. Og í þessu fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, er veitt til ræktunarvegar í Vestmannaeyjum dálítil fjárhæð, og mun þetta vera síðasta fjárveiting.
Þetta, sem ég fer fram á, að veittur verði styrkur til, er vegur upp á bakkana fyrir ofan Sauðárkrók. Þessi vegur gæti komið á hinn fyrirhugaða Laxárdalsveg. Þessi fjárhæð, 9 þús. kr., sýnist e. t. v. mikil. En það er dálítið erfitt að leggja veg upp þessar brekkur. Það dugar ekki ruddur vegur. Það verður að vera vandaður vegur og nothæfur meiri hluta árs.
Það er nú talið af ýmsum hv. þm., að þeir vilji styðja að ræktun, sérstaklega framsóknarmönnum. Þessi till. ætti því að fá góðan byr, og það því fremur, sem lítið hefir orðið úr ýmsu því, sem hæstv. forsrh. var að hrósa sér af í þessum efnum. Vil ég í því sambandi minna á lánadeild Búnaðarbankans fyrir smábýli í kaupstöðum, sem lítið hefir komið til framkvæmda, að því er ég hygg. Annars gæti hv. 4. landsk. þm. gefið upplýsingar um, hvort verulega er farið að lána úr þessari deild. Hún tók að minnsta kosti miklu seinna til starfa en ráð hafði verið gert fyrir, og var þó fjárveiting fyrir hendi úr ríkissjóði, 50 þús. kr. á ári. Þetta er nauðsynjamál, sem ýmsir menn á Sauðárkróki hafa minnzt á við mig. Þess vegna er þessi till. flutt.
Það eru hér till. á milli, sem ég er meðflm. að. Ég ætla ekki að tala fyrir þeim. Hv. 1. flm. gerði það. En ég er þó eigi að síður fús til þess, ef á þarf að halda.
Þá flyt ég næst brtt. undir XXXIX. lið, við 18. gr., um hækkun eftirlauna Valgerðar Steinsen, sem hefir nú í fjárl. 300 kt. styrk. Það sjá allir, að af þeim styrk er ekki hægt að lifa. Og þegar þeir, sem svona lengi eru búnir að vinna í þjónustu landsins, láta af störfum, hafa þeir einatt lítið fyrir sig að leggja, því að launin eru lítil. En ástæður þær, sem mæla með því, að þessi styrkur ætti að hækka, eru þær, að þessi kona hefir verið í 18 ár. ráðskona á stórum spítölum, bæði á Vífilsstöðum og síðast í Laugarnesi. Hún hefir ágæt meðmæli frá húsbændum sínum. Hún hefir að því er prófessor Sæmundur Bjarnhéðinsson segir, starfað við Laugarnesspítala í 9 ár og sýnt bæði trúmennsku, dugnað og reglusemi í starfinu. Sama gegnir um starf hennar á Vífilsstöðum. Og nú, þegar þessi kona er komin yfir sextugt, teldi ég sanngjarnt að veita henni nokkru hærri styrk. Ég hefi farið fram á 600 kr., en kem þó með varatill. um 500 kr.
Þá kem ég að þeirri till., sem er síðust á þessu þskj., og er við 22. gr. En það er sú gr., sem felur í sér heimild til ríkisstj. um að gera ýmislegt á fjárhagstímabilinu án þess að það sé sett inn í dálka fjárl., en sé þó til taks, ef nauðsyn krefur. Í þessari till. er farið fram á peningastyrk handa atvinnulausum mönnum í kaupstöðum, 100 þús. kr. Í þessu felst, að ríkisstj. sé heimilt og skylt að veita þessa peninga þeim mönnum, sem hafa verið atvinnulausir um lengri tíma og eru ekki við því búnir að taka á móti vetrinum. Þessu skal skipta þannig, að fjölskyldumaður fái greiddar 300 kr., en einhleypur maður 100 kr. Það er ekki hægt í heimild sem þessari að ákveða nánar, hvernig haga skuli greiðslunni í einstökum tilfellum. Væri um það rétt að leita álits Alþýðusambands Íslands. Þótt það skuli játað, að það er ekki hagkvæm aðferð, að taka peninga úr ríkissjóði og borga í atvinnuleysisstyrki, í staðinn fyrir að játa menn hafa starf, þá mælir margt með því að samþ. þessa heimild. Ég hefi orðið var við það, að stjórnarvöldin, og þá helzt ýmsar bæjarstjórnir, hafa fundið hvöt hjá sér til þess að hafast eitthvað að um atvinnubætur, í stað þess að greiða beina peningastyrki. En þótt nú sé alvarleg eymd fyrir dyrum og óhjákvæmilegt sé að veita verkalýðnum einhvern styrk, þá kemur það varla fyrir, að hafinn sé undirbúningur í þeim efnum fyrr en menn eru farnir að koma í stórhópum og biðja um mat fyrir þann og þann daginn. Það er enginn undirbúningur hafður um þau verk, sem hið opinbera þarf að láta vinna, þó að alstaðar blasi við þörfin fyrir vinnu. Venjan er sú, að játa allt bíða þangað til kominn er kaldur vetur. Úrlausnin hjá Reykjavíkurbæ er þá vanalega þessi: Það er grjót hér uppi í holtinu. Þið getið fengið vinnu við að vinna það. — En bærinn og ríkið fá miklu minni afrakstur af þessari vinnu heldur en ef hún væri gerð með öruggum undirbúningi. Undirbúningurinn er vanalega ekki annar en sá, að finna eitthvert holt þar sem grjót er.
Þegar maður hefir ár eftir ár kynnzt slíkum undirbúningi, eða öllu heldur undirbúningsleysi, þá verður það ljóst, að það verður að vera einhver slík heimild til að greiða þessu fólki styrk, sem ekkert hefir að gera. Það er ekki fólkinu að kenna. Það er undirbúningsleysinu og kæruleysinu að kenna. Það eru ástæður slíkar sem þessar, sem renna undir þessa till. Og það er engin ástæða til þess að bíða eftir því, að fjárl. komist í framkvæmd eftir nýárið. Það á að nota þessa heimild nú strax. Ég trúi ekki öðru en að hv. þdm. veiti þessa heimild. Þetta er eitt tryggasta ráðið til þess að sporna við því, að afleiðingar kreppunnar bitni allt of hart á hinu vinnandi fólki í landinu. Það verða því miður allt of margar hendur, sem ekkert fá að gera við það, sem ríkið og bæirnir finna út að láta gera í haust. Það getur verið, að þessi hópur skrimti af í sumar, þangað til í næsta mánuði. En þegar koma erfiðari tímar og verri veður, þá vita þeir, sem kunnugir eru, hvað við tekur.
Það er enn ein ástæða til þess að veita þennan peningastyrk. Það er dregið úr verklegum framkvæmdum í landinu. En það er ekkert dregið úr framkvæmdum bænda. Það er ekki dregið úr jarðræktarstyrknum, þessum styrk, sem nemur hundruðum þús. á ári. Þetta er ákveðinn styrkur til bænda. Það hefir ekkert verið úr þessum styrk dregið, þó að harðæri sé. Ég álít það ekki heldur rétt, og það því fremur, sem búast má við verðfalli á kjötinu. En þá er ekki heldur ástæða til að amast við því, þó að jafnfjölmennri stétt og verkamönnum séu veittar 100 þús. kr., þó að ekki sé hægt að benda á verk, sem unnið hafi verið fyrir. Hefi ég þá talið fram helztu ástæður, sem með þessu mæla, þær sömu sem þegar eru fyrir í hugum margra hv. þm., sem sé, að ástandið er afaralvarlegt og nærri augljóst, að það versnar í haust.
Ég hefi þá lokið að minnast á þær till., sem ég ber fram við þessa umr. Gæti ég þess vegna látið staðar numið. En vegna þess, að ég er einn minna flokksmanna, og þótt ég njóti góðvildar hæstv. forseta um að mega taka oftar til máls en þingsköp strangt tekið heimila, þykir mér réttara að minnast ofurlítið á hina margumtöluðu bók hæstv. stj., „Verkin tala“.
Ræðurnar snerust hér í síðustu viku almennt um þá bók. Kom þar fram einn framsóknarmaður, sem þótti ekki nóg þetta eina rit, heldur kvað þörf á því að gefa út slíkar skýrslur við og við. Skildist mér hann vera að ýta undir stj. um útgáfu slíkra skýrslna. Verð ég nú samt að játa, að mér væri ekki um að fá fleiri skýrslur af þessu tæi.
Hv. 1. landsk. virtist þakklátur hv. 3. landsk. fyrir ummæli hans út af bókinni. Ég verð að segja, að ég var mjög óánægður með yfirlýsingu hans, ekki sízt, ef stj. tæki hana til greina. Sé ég, að hv. 1. landsk. er ekki af baki dottinn, er hann vill ýta undir stj. og veita henni fé til þess að gefa út nýja skýrslu, þótt leiðrétting eigi að kallast, þó að bæði hann og ég viti, að stj. er ekki trúandi til að gera þetta hlutdrægnislaust. Þetta rit mætti t. d. vel nota til árása á Sjálfstæðisflokkinn, og hefir því hv. 1. landsk. þannig lýst sig samþykkan 5000 kr. fjárveitingu til útgáfu árásarrits á sjálfan sig og flokk sinn. Býzt ég helzt við því, að till. verði samþ. Sérstaklega mun hv. 3. landsk. fús á að samþ. hana, þar sem hann óskar eftir nýjum bókum af sama tæi. Hefði ég vel getað skilið það, ef hv. 1. landsk. hefði heimtað fé úr ríkissjóðnum handa Sjálfstæðisflokknum til útgáfu leiðréttingar, en ekki handa stj. Er ég því algerlega mótfallinn að veita stj. þessa heimild, því að mér er fullljóst, hvernig sú leiðrétting yrði. Auk þess yrði till., ef samþykki næði, einskonar kvittun til stj. fyrir gömlu útgáfuna. Fylgir henni reyndar dálítil pilla, sem sé skírskotunin til þess, að umrætt rit er gefið út í heimildarleysi, en það gerir ekkert til, úr því að kvittunin er með og féð til nýrrar útgáfu.