21.07.1931
Efri deild: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (2370)

20. mál, framfærslulög

Flm. (Jón Baldvinsson):

Ég skal segja hv. 6. landsk., að ég er fús á að ræða um allar þær breyt. á þessu frv., er betur mega fara, enda þótt ég álíti, að það megi samþ. óbreytt.

Ég efa það ekki, að hv. þm. hefir séð mikið af því böli, sem fátækralögin hafa skapað, og hugarstríði þeirra, sem á þeim hafa fengið að kenna. Og það gleður mig að heyra, að hún hefir enn sama hugarfar og þegar hún byrjaði á störfum sínum sem fátækrafulltrúi, en hefir ekki forherzt sem sumir aðrir.