15.08.1931
Efri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (239)

1. mál, fjárlög 1932

Guðrún Lárusdóttir:

Ég á nokkrar brtt. á þskj. 297, og langar mig til að fara um þær nokkrum orðum. Ég vil byrja á till. undir XXXVIII. lið, við 18. gr., III g. 13.

Það er nýr liður, sem bætir við dálitlum útgjöldum, og þess er máske að vænta, að hv. þdm. finnist það óþarfur útgjaldaliður. En ég ætla að reyna að koma svo máli mínu, að hv. þdm. geti fallizt á það með mér, að ekki sé um neinn óþarfa að ræða. Það eru tilmæli frá landsfundi kvenna, sem haldinn var í Alþingishúsinu í fyrrasumar, og var fjölskipaður konum frá öllum kvenfélögum landsins, að frú Bríetu Bjarnhéðinsdóttur væri séð fyrir viðurkenningarlaunum þau árin, sem hún á eftir ólifað. Ég man ekki upp á hár, hvernig till. hljóðar, en efni hennar var það, að fara þess á leit við þing og stj., að frú Bríetu Bjarnhéðinsdóttur væri sýnd viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu kvenþjóðar og því einnig alþjóðar Íslands. Það ber ekki oft við, að konur fari þess á leit á Alþingi, að veitt séu laun fyrir unnin störf kvenna. Og það mun vera frekar sjaldgæft líka, að kona beiti sér jafnósleitilega fyrir réttindamálum kvenna eins og frú Bríet hefir gert. Það er öllum ljóst, sem hér eru viðstaddir, hvað hún hefir frá því fyrsta beitt sér fyrir málefnum kvenna og leitazt við á allan hátt að glæða hugsjónir þeirra, hvetja þær til starfs, leysa af þeim þau vanans bönd, sem því miður margar ísl. konur voru vafðar i. Hún á þann heiður að vera forgöngumaður að þeim málum, sem kvenréttindi áhrærir. Og konur þær, sem sátu landsfund kvenna, vildu vissulega sýna í verkinu, að þær kynnu að meta þessa forgöngu frú Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Því birtist ósk þeirra í ákveðinni till., sem samþ. var í einu hljóði. Hún er byggð á því, að starfsemi frú Bríetar hefir svo mikla þýðingu fyrir ísl. kvenþjóð, að þess ber að sýna vott, einnig ókomnum kynslóðum, að áhugi hennar sé að einhverju metinn, með því að staðfesta í skjölum þjóðarinnar þessa viðurkenningu fyrir störf hennar. Þeir, sem á sínum tíma lásu „Kvennablaðið“, sem frú Bríet gaf út á sinn kostnað og lagði á sig mikið starf við, þekkja vel þann brennandi áhuga, sem þessi kona hafði fyrir öllum málefnum kvenna. Í þá daga var ekki mikið um kvenréttindi á þessu landi. Kosningarrétt höfðu þær engan. Konur höfðu þá í öllum greinum miklu minni rétt en karlar. Síðan hefir þetta allt breytzt til batnaðar, og ég verð að segja, að starfsemi frú Bríetar hefir ekki átt lítinn né óverulegan þátt í þeirri breytingu.

Ég leyfi mér því að vona, að hv. þm. þessarar deildar sjái sér fært að verða við þessum tilmælum hins fjölmenna landsfundar kvenna. Þar sátu margar konur víðsvegar að, — konur, sem hafa jafndýrmætum atkv. yfir að ráða og karlmenn, og verð ég þess vegna að treysta því, að hv. þm. líti á það, engu síður en þá verðleika, sem ég held fram, að þessi kona hafi til að bera. Ég vil undirstrika það, að hér er ekki verið að fara fram á neina ölmusugjöf. Langt frá því. Það er einungis farið fram á, að ísl. konu, sent óneitanlega hefir beitt sér vel og lengi fyrir málefnum ísl. kvenþjóðar, sé sýndur maklegur sómi.

Þá er brtt. undir XXXIV. lið, við 17. gr. 21, nýr liður. Þar er farið fram á byggingarstyrk handa barnaheimilinu Sólheimum í Grímsnesi, 10 þús. kr., og til vara 8 þús. kr.

Rétt er að geta þess, að fyrir tveimur árum tók Prestafélag Íslands að sér málefni veiklaðra og vangæfra barna og ákvað að stofna heimili með sérstöku tilliti til vanþroska barna. Fél. hóf starfsemi sína með fjársöfnun í þessu skyni, og hefir síðan safnað á þann hátt að selja merki og bréfspjöld sjóðnum til ágóða. Þetta félag lítur svo á, að hið mesta nauðsynjamál hverrar þjóðar sé vandað uppeldi æskulýðsins, og því sé nauðsynlegt að gefa börnum kost á góðu heimili. Nú er því svo farið meðal vorrar þjóðar, að ekki allfá börn fara á mis við þetta, sérstaklega á hinum fjölbyggðari stöðum. Þá vill félagið skapa þeim uppeldi á slíkri uppeldisstofnun, til þess að þau verði nýtir borgarar.

Þessi staður, Sólheimar í Grímsnesi, er jörð með hverahita og að mörgu leyti ákjósanlegur staður, sem Prestafélagið hefir fest kaup á. Virðist jörðin sérstaklega vel kjörin til allskonar ræktunar, bæði blómaræktunar og annarar, þar sem bæði er hverahitinn og skýlt og sólríkt. Þarna var byggt hús og byrjað að starfrækja barnaheimili fyrir rúmu ári, undir forustu ungrar stúlku, Sesselju Sigmundsdóttur, sem hefir dvalið í Þýzkalandi og Sviss í 3–4 ár og kynnt sér rækilega meðferð barna á öllum aldri, en sérstaklega vanþroska barna. Prestafél. leggur til jörðina leigulaust um nokkur ár.

Það verður máske ekki sagt, að mikil reynsla sé fengin fyrir starfi þessarar ungu stúlku, þó að ár sé liðið. En eigi að síður virðist allt henda til hins bezta um starfsemi hennar, enda hefir hún beztu meðmæli frá kennurum sínum erlendis og forstöðumönnum barnaheimila, sem hún hefir starfað á. Mér finnst vert að benda á það í þessu sambandi, að á þeim tíma, sem ungfrú Sesselja hefir starfað við barnaheimilið, hefir hún haft mörg og misjöfn börn, bæði hvað heilsufar snertir og annað. En óhætt er að segja, að engu barni hafi orðið misdægurt hjá henni. Hygg ég það aðallega að þakka hennar sérstöku nákvæmni um það, á hverju börnin nærast. Þar að auki hjálpar hið góða andrúmsloft, mettað hveragufu. Ég hefi því miður ekki átt þess kost að koma á þetta heimili, en þeir, sem þar hafa kynnzt háttum, segja, að þar fari allt fram með mjög mikilli röð og reglu, börnunum líði prýðisvel og taki góðum framförum.

En nú eru þarna ýmsir fjárhagsörðugleikar, sem stafa af kaupum á búfé. Keyptar hafa verið 100 kindur, kýr og hestar, talsvert af hænsnum og 1–2 svín. Ungfrú Sesselja hugsar sér að hafa matjurtagarð og túnrækt og láta börnin læra jafnframt að vinna. Og það tel ég einn af aðalkostum á þessu heimili. Þessi peningskaup og byggingin kostar mikið fé. En ungfrú Sesselja brauzt í að fá lán til þess. Einnig fékk hún styrk frá þinginu og dálítið frá Reykjavíkurbæ, svo að henni var kleift að koma upp húsinu. En það hvíla á því skuldir. Þess vegna flýr hún til Alþingis um styrk, til þess að geta haldið þessu öllu gangandi; gerir hún sér þá mikla von um að komast smátt og smátt úr þeim fjárhagslegu ógöngum, sem hún er stödd í nú. Ef samþ. fæst á þessum 10 þús. kr., þá er líklegt, að heimilið sé komið yfir örðugasta hjallann og þurfi ekki framar að leita til Alþingis um fjárframlag.

Einhver vill nú kannske spyrja, hver eigi þetta heimili. Því er til að svara, að Prestafélagið á jörðina, svo sem ég tók fram. En það treystir ungfrú Sesselju svo vel, að það lánar henni jörðina leigulaust um nokkur ár, en sjálf hefir hún brotizt í að byggja.

Prestafélagið hefir líka í hyggju að stofna svipuð heimili í öllum landsfjórðungum, sérstaklega nálægt kauptúnum og kaupstöðum. Mér er kunnugt um, að næsta heimili hugsar félagið sér að reisa einhversstaðar á Norðurlandi. Starfsemi þessi, sem ég tel, að muni með tímanum verða landi voru til blessunar og gagns, fer mjög eftir því, hvernig þessum vísi á Sólheimum gengur að vaxa og dafna, og þá einnig eftir því, hvernig hið háa Alþingi tekur þessari málaleitun um styrk. Ég treysti því, að allir hv. þdm. séu mér samdóma um, að hér sé um mikið þjóðnytjamál að ræða. Það þarf ekki að rökfæra með mörgum orðum, að æskan er framtíð landsins, og því betur sem gengið er frá málum hennar, því betur er borgið framtíð okkar kæra lands.

Ég hefi verið að tala um æskuna. En nú verð ég að segja nokkur orð um ellina. Við verðum að huga að þessum andstæðum lífs okkar mannanna, sem aldrei verða skildar við okkur.

Með brtt. undir XXXV. lið, við 17. gr. 24, er farið fram á hækkun á styrk til elliheimilisins Grundar. Nd. ætlaði 5 þús. kr. til elliheimilisins, en hér er farið fram á 10 þús. kr. Ég skil nú ekki í því, að neinum, sem hugsar um sögu þessa heimilis og sér húsið, finnist til of mikils mælzt, þó að farið sé fram á þessa fjárveitingu. Það eru fimm menn, sem taka höndum saman til að stofna elliheimili fyrir 9 árum. Þeir höfðu engan félagsskap að baki sér, og þeir voru allir önnum kafnir við önnur störf. En þeir höfðu það traust samborgara sinna, að þeim var trúað fyrir fé til þess að festa kaup á húsi, sem kostaði 35 þús. kr. Þar ráku þeir heimili í 8 ár og höfðu þar 24 gamalmenni. Reykjavíkurbær veitti heimili þessu á ári hverju 4 þús. kr. Ýmsir hafa ánafnað því gjafir, utanbæjar og innan. Ég vil t. d. nefna aldraðan barnakennara í Árnessýslu, sem gaf heimilinu 9 þús. kr. En þetta var ekki eyðslufé, því að eftir 8 ára búskap á Grund er heimilið skuldlaust, og í sparisjóði 38 þús. kr. Og ég verð að taka það fram, að forgöngumenn þessa málefnis tóku aldrei einn eyri fyrir alla sína miklu vinnu, að því undanteknu, að gjaldkeri fékk 300 kr. á ári 2–3 síðustu árin.

Síðan komu þessir menn í framkvæmd byggingu á nýju heimili við Hringbraut, sem kostaði, fyrir utan lóð, sem Reykjavíkurbær gaf, 670 þús. kr., að meðtöldum öllum vélum og innanstokksmunum. Vélarnar ern sérstaklega vandaðar, eins og reyndar allt húsið er. Byggingarnefnd Elliheimilisins naut mikils trausts. eins og fyrr er sagt. Bæjarsjóður lét 140 þús. kr. og gekk í ábyrgð fyrir 120 þús. í fyrra hljóp stj. drengilega undir bagga og lánaði 50 þús. kr. til þess að heimilið gæti tekið á móti Vestur-Íslendingunum. Þær voru borgaðar að fullu þegar veðdeildarlán fékkst út á húsið.

Það þarf nú engum að koma á óvart, þótt slík stofnun sé í talsverðri fjárþröng, meðan verið er að grynna á skuldum. Heimilið tekur 160 gamalmenni, en vitanlega voru þó færri fyrstu mánuðina. En nú sýnir reynslan, að fólkið leitar þangað úr flestum hlutum landsins. Og af þeim 100, sem hafa verið þar að undanförnu, eru nál. 35–40 manns á framfæri Reykjavíkur, 20 á framfæri annara sveita, og um 40, sem borga sjálfir eða eru á framfæri kunningja sinna og ættfólks. Meðgjöfin með þessu fólki er 80–100 kr. á mánuði, með rúmföstu fólki eru teknar 100 kr. sem stendur: Það þarf varla að taka það fram, að það mundi ekki í sjúkrahúsum þykja gróðavegur að halda sjúklinga fyrir kr. 3,33 á dag, og veita þó ókeypis læknishjálp. Enda er þetta heimili ein af stærstu líknarstofnunum, sem komið hefir verið upp hér á landi, og það endurgjaldslaust. Þetta er sjálfseignarstofnun, og hér eru menn ekki að biðja um neitt fyrir sjálfa sig. Stofnunin hefir þegar orðið mörgum þreyttum börnum þessarar þjóðar griðastaður, jafnvel úr öllum sýslum landsins. Og nú finnst mér því ekki til sérlega mikils mælzt, að landið sjálft leggi fram 10 þús. kr. styrk. Alþingi veitti í fyrra 10 þús. kr. styrk til þessa sama fyrirtækis, og það er aldrei nema 1/33 hluti af byggingarkostnaðinum. Ríkissjóður hefir oft látið heldur meira í byggingar á stærð við þessa, og þótt minni hafi verið. Ég held því fram, að þetta heimili komi að góðum notum fyrir landsmenn, hvaðan sem þeir eru, engu síður en bæjarbúa sjálfa. Ég vænti því þess, að ég megi treysta því, að hv. d. veiti þennan styrk, og það því fremur, sem hér er um vinsælt fyrirtæki að ræða, sem nýtur almenns trausts. Get ég sagt frá því, að margur maðurinn og konan hefir látið í ljós við mig, að sér fyndist nú ekki eins geigvænlegt að hugsa til að verða gamall og hrumur, þar sem landið hefði upp á að bjóða slíka vistarveru gömlu og lífslúnu fólki, sem einmitt þarfnaðist slíks skjóls á elliárunum. Og enginn er sá, að hann megi vita nema svo kunni að fara örlögum hans, að hann verði feginn að leita sér hælis í Elliheimilinu um það er lýkur. Má eins fara, að svo eigi fyrir að liggja einhverjum úr okkar hópi, sem hér sitjum nú, þó að ólíklega kunni að þykja mælt. En hvað sem því líður, er það sómi Alþingis að styrkja þetta þarfa fyrirtæki, enda vænti ég þess, að hv. d. bregðist vel við þessari málaleitan.

Þá fer ég fram á það, að Kvenfélagasambandi Íslands verði veittar 2000 kr. (297, XXVIII). Geri ég að vísu ráð fyrir, að hv. þdm. flestir þekki til þessa félagsskapar, en ég tel þó rétt að gera nokkra grein fyrir honum til rökstuðnings þessari fjárbeiðni. — Það munu nú vera sem næst 100 kvenfélög á landinu, og eru sum þeirra um 50 ára gömul. Þessi félög hafa margvísleg störf með höndum. Allflest hófu þau þó göngu sína með líknarstarfsemi og hafa aldrei vikið af þeirri braut, þótt þau síðar hafi fært út kvíarnar og hætt við sig öðrum viðfangsefnum, svo sem fræðslu- og uppeldismálum. Ég ætla mér auðvitað ekki að fara að telja upp allt það, sem hin ýmsu kvenfélög landsins hafa haft með höndum frá því þau hófu starf sitt, en henda vil ég á fáein atriði, svo sem stofnun gamalmennahælis, stofnun húsmæðraskóla, starfrækslu gistihúsa, bókasafna o. fl. o. fl. Lengi vel störfuðu kvenfélögin dreifð í strjálbyggð landsins. Konur höfðu lítil kynni hver af annari né heldur af starfsemi annara félaga, en þær létu það ekki aftra sér, heldur unnu áfram í kyrrþey, ánægðar yfir hverju því góðu, sem þær fengu til leiðar komið. En svo kom, að konur fóru að víkka félagshring sinn. Munu það hafa verið þingeysku konurnar, sem riðu á vaðið og mynduðu sambandsfél. með sér fyrir eitthvað um 20 árum. Árangur þeirrar starfsemi er að miklu leyti húsmæðraskólinn á Laugum í Reykjadal. Árið 1914 var svo stofnað Samband norðlenzkra kvenna, sem nær yfir allt Norðurland. Hefir þetta samband starfað vel og dyggilega, gengizt fyrir námsskeiðum, umferðakennslu og héraðssýningum, auk margs annars, sem of langt yrði upp að telja. Bandalag kvenna í Revkjavík er stofnað 1917. Hefir það gengizt fyrir sýningum og námsskeiðum og verið frumkvöðull þeirrar fjársöfnunar, sem síðan hefir farið fram hér í bæ á sumardaginn fyrsta til styrktar málefnum barnanna. — Samband austfirzkra kvenna var stofnað 1927, og hefir það sinnt margvíslegri nytjastarfsemi, og á m. a. sinn drjúga þátt í stofnun húsmæðraskólans á Hallormsstað. Árið 1929 stofnuðu svo sunnlenzku konurnar sambandsfélag með sér. Hefir það haft með höndum umferðakennslu, m. a. í garðyrkju, gengizt fyrir kvennafundum, héraðssýningum o. s. frv. Samband kvenna á Vestfjörðum var stofnað vorið 1930, og reynt til að sameina kvenfélögin við Breiðafjörð. — Öllum var það ljóst, að betri og meiri árangur mundi nást með sameiningu allra þessara félaga, sem höfðu sama takmark fyrir augum og sömu áhugamál, svo sem heimilisiðnað, heilbrigðismál, uppeldismál, húsmæðrafræðslu og garðyrkju. Og þar kom, að kvenfélagasamböndin í fjórðungunum norðan-, austan- og sunnanlands kusu á aðalfundi sínum sumarið 1929 fulltrúa til að mæta á landsþingi kvenna, sem haldið var hér í Reykjavík veturinn 1930. Sýnir það glöggt áhuga kvenna um málefni sín, er þær tóku sér ferð á hendur um hávetur, margar langar leiðir að, til þess að sækja þing hér í Reykjavík og meða þar áhugamái sín, þau sem fyrr er getið. Á þessu þingi var svo Kvenfélagasamband Íslands stofnað. Er svo til ætlað, að í því séu aðeins kvenfélagasambönd úti um land, en ekki einstök félög. Um fjárframlög frá félögum eða félagasamböndum til Kvenfélagasambandsins er ekki að ræða, heldur styrkir sambandið þau félagasamhönd, sem í það ganga, ef fé fæst til þess úr ríkissjóði. Sá styrkur er aðallega veittur til þess að sjá samböndunum fyrir umferðakennslu. Þá ráðgerir Kvenfélagasambandið að greiða allan kostnað af þeim kvennaþingum, sem haldin eru annaðhvert ár, að meðtöldum ferðakostnaði fulltrúanna, sem félagasamböndin senda. Þá vill Kvenfélagasambandið keppa að því að koma á fót skóla fyrir stúlkur, sem ætla sér að verða umferðakennarar. Sambandið heldur uppi námsskeiðum í matargerð og garðyrkju og hefir haft 4 konur í þjónustu sinni í þessu skyni. Hefir það þótt gefast hið bezta, og er vafalítið, að þar innir sambandið þarft og gott verk af hendi.

Stjórn Kvenfélagasambandsins hefir sótt um fjárstyrk úr ríkissjóði áður. Fékk sambandið 2000 kr. styrk í síðustu fjárlögum, í stað 15 þús. kr., sem sótt var um. Ber þetta vott um það, að hið háa Alþingi viðurkennir sambandið og starfsemi þess, en hún er, í stuttu máli sagt, aðallega fólgin í því, eins og ég hefi reyndar áður gert grein fyrir, að gera húsmæður landsins færari um að leysa sín þýðingarmiklu hlutverk vel af hendi. Verður það einkum gert með haganlegum húsakynnum, heimilisiðnaði til klæða og þrifnaðar á heimilunum, hagkvæmu mataræði, garðyrkju o. fl. o. fl. En öll þessi mál hefir sambandið á stefnuskrá sinni. — Annars er vert að geta þess, að sambandið hefir notið styrks hjá Búnaðarfél. Íslands, sem varið hefir verið til umferðakennslu í garðyrkju. Sömuleiðis átti Búnaðarfél. sinn drjúga þátt í því, að Kvenfélagasambandið var stofnað. Um það, hvort þessi starfsemi Kvenfélagasambandsins, sem ég hefi nú lýst að nokkru, fær miklu eða litlu til leiðar komið, fer mjög eftir efnahag þess. Og ég treysti því, að hv. þm. sjái nauðsyn þess og leggi því lið með því að samþ. þessa fjárbeiðni.

Þá flýt ég till. um að veita Heimilisiðnaðarfél. Íslands 3000 kr., í stað 2000, vegna kostnaðarins við landssýninguna 1930. — Svo sem kunnugt er, gekkst þetta félag fyrir landssýningu á heimilisiðnaði, sem haldin var í fyrrasumar hér í bænum. Þótti það vel fallinn tími að nota þjóðhátíðarárið til þess að gefa gestum og gangandi tækifæri til að sjá handbragð íslenzku þjóðarinnar, karla sem kvenna. Var menntaskólinn fenginn að láni leigulaust undir sýninguna, en þrátt fyrir það varð húsið sýningarnefndinni mjög dýrt. Bar margt til þess, svo sem smæð herbergja og að þau voru ekki nægilega samliggjandi. Þar að auki varð að kosta miklu fé til aðgerða á húsinu vegna sýningarinnar. Kostaði þessi undirbúningur skólahússins hvorki meira né minna en kr. 4893,29, og má það í sjálfu sér telja fullháa húsaleigu fyrir ekki lengri tíma en sýningin stóð yfir, sem var einn mánuður. Þá olli og herbergjaskipun í skólanum því, að meiri vinnukraft þurfti til að annast gæzlu á sýningarmununum. Urðu vinnulaunin við sjálfa sýninguna rúmar 8000 kr.

Það var óneitanlega í talsvert ráðizt af fátæku fél. að efna til slíkrar sýningar án nokkurs loforðs um styrk úr ríkissj., til þess að standast kostnaðinn, sem hlaut að verða mikill, eins og líka hefir komið í ljós, en að sá kostnaður verði undir nokkrum kringumstæðum lagður á einstaka menn og konur, sem kosin voru af Heimilisiðnaðarfél. til þess að hafa forgöngu í málinu, virðist með öllu óhugsanlegt. En eins og þessu máli horfir nú, er ekki útlit fyrir annað en að rekstrarhalli sýningarinnar lendi eingöngu á herðum þeirra, sem framkvæmd málsins höfðu með höndum, ef ekki er hlaupið undir bagga og veittur sá styrkur, sem ég fer fram á með þessari brtt. minni. Í raun og veru er þessi upphæð hvergi nærri nóg, því að rekstrarhallinn er um 7000 kr. En lítið er betra en ekki neitt, enda væri það með öllu óhæfilegt, ef slíkt yrði látið viðgangast, að einstakir menn, sem sjálfir unnu kauplaust viku eftir viku og lögðu hart að sér fyrir málefnið, bæru það eitt úr býtum að verða að standa straum af þessum ekki óverulega rekstrarhalla. Leyfi ég mér því að vænta þess, að hv. þm. virði málið eins og það er og samþ. þessa till. mína.

Þá flyt ég till. á þessu sama þskj., 297, XXVII, ásamt hæstv. forseta þessarar d., þar sem farið er fram á það, að fjárveitingin til ungfrú Halldóru Bjarnadóttur verði hækkuð úr 1800 kr. upp í 2500 kr. — Þykist ég ekki þurfa að orðlengja um starf Halldóru Bjarnadóttur. Hana þekkja allir, sem einhver kynni hafa af heimilisiðnaði og fræðslumálum. Svo mjög hefir hún verið við þau mál riðin. Hefir hún árum saman beitt sér fyrir þessum málum og greitt götu þeirra í ræðu, riti og starfi. Má í því sambandi minna á ársritið Hlín, sem Samband norðlenzkra kvenna gefur út og ungfrú Halldóra hefir annazt og ritað að miklu leyti. Hefir hún lagt þar fram mikla vinnu og lagt margt liðsyrðið góðu málefni. En það, sem sérstaklega vakir fyrir ungfrú Halldóru með þessari styrkbeiðni, er sú starfsemi, sent aðrar þjóðir, ekki sízt Norðmenn, tíðka talsvert, og er fólgin í nokkurskonar umferðaráðunautsstarfi. „Hjemmenes konsulent“ kalla Norðmenn þá, sem slíkt starf inna af hendi. Má með sanni segja, að Halldóra Bjarnadóttir hefir reynzt ísl. húsmæðrum ráðhollur leiðbeinandi á ferðum sínum um þetta land. Og það getur engan veginn kallazt lítilfjörlegt atriði fyrir konur, sem búa í afskekktum sveitum, að fá heimsókn um skemmri eða lengri tíma ef menntaðri, víðsýnni, góðri og göfugri konu, sem er til þess albúin að veita holl ráð og leiðbeiningar, fyrst og fremst í öllu, sem lýtur að heimilishaldi og hússtjórn, og þar að auki um margt fleira, auk þess sem slíkar heimsóknir eru hvetjandi tilbreyting í fábreyttu lífi hinnar önnum köfnu íslenzku sveitakonu. Ég veit það líka fyrir víst, að Halldóra Bjarnadóttir á mikil ítök á ísl. heimilum, og ekki munu konur þessa lands telja það eftir, þótt hún fengi þá ósk sína uppfyllta, að hækkaður yrði þessi styrkur til hennar, svo að hún gæti að fullu og öllu gefið sig að áhugamálum sínum og þannig starfað bæði fyrir einstaklinginn og heildina. Tel ég fáar konur betur til þess hæfar en einmitt Halldóru Bjarnadóttur, að sameina dreifða krafta og hvetja heilbrigða starfslöngun hjá þeim ungu. Ungfrú Halldóra hefir sótt um 3000 kr. árslaun til þingsins. Upphæðinni hefir þó ekki enn verið þokað upp úr þeim 1800 kr., sem henni hafa verið ætlaðar að undanförnu. Sýnilegt er, að sú fjárhæð nægir ekki til þess, að hún geti gefið sig að miklum ferðalögum, sem eru dýr, en henni óhjákvæmileg til þess að geta komið fram margvíslegum hagsbótamálum kvenna þessa lands. Þess vegna er hér farið fram á hækkun á þessum launum úr 1800 kr. upp í 2500 kr., sem sízt geta talizt of há laun, og vart mundu karlmenn hafa beðið um svo lítið, hafandi í huga það starf, sem Halldóra Bjarnadóttir ætlast fyrir um og hefir um undanfarin ár stundað, svo sem efni hennar og tími hefir frekast leyft. — Heimilisiðnaðurinn er aðaláhugamál Halldóru Bjarnadóttur, og í sambandi við hann sýningar á iðnaðinum, sem hljóta að hafa glæðandi áhrif á hugi manna, og takist að örva iðni og smekk unga fólksins fyrir heimafengnum iðnaði, í hverri mynd sem er, tel ég hiklaust, að heillavænlegt spor sé stigið á framfarabrautinni. Og er í rauninni aldrei ofgert við þá, sem að þvílíku starfa. Ég leyfi mér að skipa H. B. til sætis hjá þeim starfsmönnum þjóðarinnar, sem mest og bezt hafa unnið að okkar framfaramálum, og vona, að hv. d. sjái ástæðu til að viðurkenna starf þessarar mætu konu með því að samþ. þessa till.

Loks flyt ég till. ásamt hv. 2. landsk. þm., á þskj. 297, XVIII, þess efnis, að Maríu Hallgrímsdóttur cand. med. verði veittar 2000 kr. til framhaldsnáms í læknisfræði erlendis, eða til vara 1500 kr. Hér á hlut að máli ung og efnileg stúlka, sem nýskeð hefir lokið góðu prófi í læknisfræði hér við háskólann. Hefir hún ávallt stundað námið kostgæfilega, enda sýnir hún nú áhuga sinn í verkinu með því að vilja halda áfram að afla sér víðtækari þekkingar. Nú hefir hún í hyggju að fara utan til þess að leita sér frekari fræðslu á hinu víðáttumikla og margbrotna sviði læknislistarinnar. Mun það vaka fyrir henni að leggja stund á einhverja sérfræðigrein, og tel ég líklegt, að barnasjúkdómar verði fyrir vali hennar, þó að það sé ekki að fullu ráðið enn. Nú leggja læknavísindin mikla áherzlu á að koma í veg fyrir sjúkdóma þjóðanna með því að verja æskuna fyrir áföllum veikindanna, m. ö. o. byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í. Hlýtur það að vera sú rétta leið að fara í þessu efni, og því segir það sig sjálft, að mikil þörf er á því, að hin ungu læknisefni vor kynni sér þær leiðir læknisvísindanna, sem að þessu marki liggja. Að konur leggi sérstaklega stund á barnalækningar, hygg ég, að telja beri mjög æskilegt, en til þess að koma fram fyrirætlun sinni um framhaldsnám í læknisfræði, þarf þessi unga stúlka nauðsynlega á styrk að halda. Foreldrar hennar, sem hingað til hafa staðið straum af námi hennar svo að segja einvörðungu, eru þess ekki megnug að leggja fram það fé, sem utanför og viðbótarnám kostar. Þarf heldur engan að furða á því. Faðir hennar er barnakennari, og öllum getur verið það nokkurnveginn ljóst, að slík laun, sem kennarar yfirleitt hafa, hrökkva ekki til þvílíkra útgjalda, umfram heimiliskostnað og námsstyrk til annara barna, sem heima fyrir eru. Ég tel það mjög illa farið, ef ríkið er þess ekki megnugt að styrkja þessa ungu og efnilegu stúlku, sem er að búa sig undir að inna af hendi gott og þarft verk í þágu þjóðfélagsins. Og það er, að mér finnst, því meiri ástæða til þess að gera það, þar sem kona á hlut að máli. Konurnar hafa ekki til þessa verið svo ágengar á fjársjóði ríkisins, og virðist mér, að þær ættu fremur að njóta þess hjá hinu háa Alþingi. Eins og ég tók fram, er beðið um 2000 kr. og til vara 1500, en ekki er neinum blöðum um það að fletta, að fyrri upphæðin er sízt of há, enda þótt telja megi þá síðari góða hjálp. Treysti ég því hv. d. til að samþ. þessa brtt. mína.

Ég hefi þá mælt fyrir öllum brtt. mínum og skal nú ekki þreyta hv. d. mikið lengur, en áður en ég sezt niður, vildi ég drepa lítillega á málefni, sem hv. 2. landsk. hreyfði hér í dag og ég tel hið þarfasta. Er það mál sjómannanna, þeirrar stéttar, sem öll afkoma okkar byggist fyrst og fremst á, og má segja, að seint verður ofgert við þá stétt. Aðrar þjóðir hafa líka opin augun fyrir þessu og með öllum menningarþjóðum eru starfandi fleiri og færri sjómannastofur og spítalar fyrir sjómenn. Ég saknaði þess úr ræðu hv. 2. landsk., að hann minntist ekki á þær tvær sjómannastofur, sem þegar eru starfræktar hér á landi, önnur af Hjálpræðishernum, en hin af n. manna, sem kosin var í þessu skyni fyrir 6 árum. Þótt starfið í sjómannastofum þessum hafi ekki verið í neinum stórum stíl, vildi ég þó ekki láta ganga framhjá þessum vísi að þessari starfsemi hér hjá okkur, því að ég veit, að þessar stofur hafa, þó að ófullkomnar séu, unnið margt gott í þágu sjómannanna, innlendra sem erlendra. Þeir fá þar góðar viðtökur, þegar þeir koma þangað hraktir af sjónum, geta skrifað þar bréf sín og fengið sér ódýrar hressingar, auk þess sem þar eru öðru hverju haldin smásamsæti fyrir þá og uppbyggilegar samkomur. Satt er það, að nauðsynlegt er að efla sjómannastofurnar frá því, sem nú er, og ég skal ekkert um það segja, hvernig því yrði bezt hagað í framtíðinni, en mér finnst, að ekki ætti að vera útilokað, að Sjómannafél. gæti haft samvinnu við þessa n., sem ég gat um, til þess að hrinda þeim málum sem bezt áleiðis, því að sú n. hefir þegar sýnt það, að hún er starfi sínu vaxin. Ég vildi aðeins bæta þessu við ræðu hv. 2. landsk., því að ég er þessari till. hans um styrk til Sjómannafél. í þessu skyni að öðru leyti meðmælt.