15.08.1931
Efri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

1. mál, fjárlög 1932

Guðmundur Ólafsson [óyfirl.]:

Ég geri nú ekki ráð fyrir, að ég tali jafnvel fyrir brtt. eins og margir hv. þm. hafa gert upp á síðkastið. Kannske er það tilfinningarleysi hjá mér, að ég get ekki talað eins hjartnæmt um ýmsa styrki eins og ýmsir hv. þdm. hafa verið að gera í dag. Þegar einhver fyrirtæki, sem margir standa að, vilja fá styrk, þá er ógerandi að mæla jafnhjartnæm orð um þau öll eins og þegar beðið er um styrk handa einstökum mönnum, enda tekur það ekki eins til hjartans. Það er a. m. k. svo um þetta yngra fólk, sem sótt er um stuðning fyrir, að það býr svo óvenjulega mikið í því, að það eru allar líkur til þess, ef allt þetta er rétt, sem um það er sagt, að það muni skara fram úr öllu, sem við þekkjum hér, þegar það er búið að njóta góðs af styrknum. Ég vil nú halda, að það komi ekki alltaf beint fram, að þetta námsfólk verði eins framúrskarandi þegar út í lífið kemur, eins og það var, meðan það var að nema.

Ég er ekki að segja með þessu, að aðeins minni hl. þeirra, sem biðja Alþ. um styrk, þurfi á því að halda, en ég verð að segja, að mér ofbýður næstum, hvað margar og fjárfrekar sumar þessar beiðnir eru, þegar ég ber þær saman við till. n., því ekki er hægt að segja, að hún vilji breyta fjárl. mikið að þessu sinni.

Mér koma við aðeins 3 brtt. á þskj. 297 við þessa umr., og ég er svo heppinn, að fyrri flm. að tveim þeirra hafa talað rækilegar fyrir þeim en ég treysti mér til að gera.

Önnur er um lítilfjörlegan styrk til námsmanns, sem var mikið gott sagt um af hv. 3. landsk. Hann hafði í höndum meðmæli kennara hans og ýmissa listamanna annara. Ég vona því, að hv. d. gangi ekki á móti því, að þeir hafi sagt rétt frá manninum og fallist því á þessa till. okkar.

Ég á aðra brtt. ásamt hv. 6. landsk., sem hún hefir talað mjög vel fyrir, og það er ekki hægt að segja um þá konu, sem þarna sækir um styrk, að maður þurfi að vera í vafa um, hvað í henni býr. Hún er búin að sýna það og hefir gegnt þessu starfi, sem hún hefir gert að lífsstarfi sínu, í upp undir 20 ár, svo að ég sé ekki ástæðu til að fara að kynna hana fyrir þessari d. Það getur verið rétt að styrkja þá, sem efnilega líta út í æskunni, en ekki er óvissari að veita þeim styrk, sem eru búnir að sýna, að þeir eiga það skilið, og hafa varið æfi sinni í þágu alþjóðar.

Í báðum þessum tilfellum er farið fram á svo smáar upphæðir, að ekki er hægt að bera við fjárskorti til að fullnægja þeim. Ég skal ekki fara fleiri orðum um þessar till.; það yrði þá ekki fyrr en ég heyrði einhvern tala á móti þeim, að ég gæti bætt fáeinum orðum við.

Annars er ég ekki einn flm. að nema einni smárri till., við 16. gr. 41, að þar komi nýr liður, til Fiskiræktarfél. Blöndu, 700 kr. Þetta fél. hefir styrk í þessa árs fjárl., 500 kr. Nú hefi ég nýlega fengið umsókn frá því, þar sem það fer fram á, að styrkurinn verði nú heldur hærri, eða 700 kr., því að kostnaður þess hafi orðið svo mikill, að 500 kr. styrkurinn hafi ekki nægt. Þetta félag hefir nú starfað í 2 ár og nær yfir nær 70 bæi, og tilgangurinn er, eins og hv. dm. er kunnugt, a. m. k. þeim, sem voru á þingi í fyrra, að reyna að koma á veiði í á, sem áður var veiði í, en er ekki nú, og er það gert með því að flytja þangað laxa- og silungsseiði. Þar sem ekki er um laxaklak að ræða þar nálægt, hefir orðið að sækja þessi seiði til Árnessýslu og flytja þau norður. Sú reynsla, sem þegar er komin, er ekki önnur en að þó nokkur hluti af því, sem var flutt þangað í fyrrasumar, sást með lífi í vor sem leið. Það þarf ekki að lýsa því fyrir hv. d., að þetta er arðvænlegt, ef það gæti lukkazt; en þessi styrkur er auðsjáanlega svo lítill, að hann getur ekki orðið til þess að létta verulega kostnaðinn á félagsmönnum, en fremur er sótt um hann til þess að fá viðurkenningu Alþ. um að þetta sé þó nytjamál.

Alþ. veitti þessu fél. í fyrra styrk, að upphæð 2000 kr., í því skyni að ná tálma úr þrengsli í ánni Blöndu, sem tafði fyrir laxgöngu og kennt hefir verið um, að ekkert hefir veiðzt þar fyrir ofan í herrans mörg ár. Eru allar líkur til, að ekkert sé því til fyrirstöðu, að þetta takist.

Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en vil bæta því við, að þegar sótt var um þennan 500 kr. styrk í fyrra, gat ég þess, að fél. byggist við að sækja um slíkan styrk í 4 ár, og ef því yrði veittur styrkur þennan tíma, þá yrði hann alls ekki nema liðugar 2 þús. kr., þótt aðaltill. mín yrði samþ. Ég held, að Alþ. hafi oft styrkt vafasamari mál en þetta og varið meira fé til þeirra.