17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (2408)
38. mál, vegalög
Jón Auðunn Jónsson:
Ég verð að segja það, að mér þykir það nokkuð hart, ef samgmn. fær ekki tækifæri til að bera sig saman við vegamálastjóra um þessar till.; hefi ég ástæðu til að álíta, að vegamálastjóri sé alls ekki samþykkur mörgum þeim till., sem hér liggja nú fyrir, Annars er það engu líkara en að menn haldi, að byggja eigi þessa vegi á næstu mánuðum, því að það er talað um það eins og goðgá væri, ef svo færi, að frv. dagaði uppi á þessu þingi. Ætti það þó að vera öllum vitanlegt, að ekkert verður framkvæmt í þessu efni strax, og að af þeim ástæðum er óhætt að láta afgreiðslu þessa máls bíða þingsins í vetur, auk þess sem þegar hafa svo margir vegir verið teknir í tölu þjóðvega, að það tekur mörg ár að koma þeim upp. Var það og álít vegamálastjóra 1924, að þó að fleiri vegum yrði hætt inn í vegalögin, mundi það engum breyt. valda að því er framkvæmdirnar snertir, því að þegar væru svo margir þjóðvegir ákveðnir, að meira yrði ekki gert á næstu árum. — Það er ekki rétt, sem komið hefir fram, einkum hjá hv. þm. Borgf., að n. vilji fá málið til að svæfa það, en þó get ég sagt það frá eigin brjósti, að ég álít, að eins og stendur sé þýðingarlaust að vera að samþykkja nýjar viðbætur við vegalögin.