17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í C-deild Alþingistíðinda. (2411)
38. mál, vegalög
Forseti (JörB):
Ég sé mér ekki fært að taka málið af dagskrá og fresta umr., þar sem menn greinir svo mjög á um það, hvort svo skuli gert eða ekki, enda fæ ég ekki séð, að n. geti ekki eins athugað málið fyrir 3. umr., og kæmi því ekki að sök, þó að þessari umr. væri lokið nú. Stendur og öllum opið að koma þá með þær brtt., sem þeir kynnu að vilja bera fram við frv. (EA: Er ekki hægt að vísa máli til n. á hvaða stigi sem er?). Jú, svo er hægt, og get ég að vísu borið það undir d., hvort svo skuli gera eða ekki, fyrst þm. sækja þetta svo fast, en ég vænti þess, að það verði ekki til þess, að n. svæfi málið. Skal ég og lofa því að taka málið á dagskrá fljótlega aftur, ef nál. kemur ekki bráðlega, og þess er að vænta, að þm. telji ekki eftir sér að ýta á eftir málinu hjá n. (PO: Hæstv. forseti getur verið viss um það, að það skal verða gert).