20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (2414)
38. mál, vegalög
Pétur Ottesen:
Þetta er nú e. t. v. úrslitatilraun samgmn. til að koma þessu máli fyrir kattarnef, því að það er kunnugt, að ef þingi verður slitið á laugardag, eins og heyrzt hefir, þá er vitanlega síðasti möguleikinn að koma málinu í gegn á þessu þingi, að það sé afgr. frá 2. umr. í dag, nú á þessum fundi. Fyrst ekki er annað eftir en að undirskrifa nál. — n. er þá nefnil. búin að taka ákvörðun um málið —, þá ætti ekkert að vera til fyrirstöðu af n. hálfu, því að það hefir engan mun í för með sér við afgreiðslu málsins, hvort niðurstaða n. kemur fram í nál. eða fyrir munn einhverra af þessum spámönnum, sem þarna eiga sæti í n. Ég býst við, að n. geti látið það duga að koma með niðurstöðu sína í orðum frsm. í staðinn fyrir að tilreiða það í prentuðu nál. Og þar sem nú er mjög stuttur tími eftir af þinginu, þá skora ég nú mjög eindregið á hæstv. forseta að láta slag standa, svo að málið fái þá afgreiðslu, sem hv. þd. álítur, að það eigi að fá, en verða ekki við tilmælum n., sem ekkert felst á bak við, ekki nokkur skapaður hlutur, nema að taka fram fyrir hendur deildarinnar og hindra framgang málsins. En ef hæstv. forseti vill ekki taka þetta upp á sitt eindæmi, þá vil ég þó a. m. k. mælast til þess, að hann skjóti því undir úrskurð þingdeildarinnar, hvort málið skuli tekið af dagskrá eða ekki.