24.07.1931
Efri deild: 9. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (2460)
44. mál, virkjun Efra-Sogsins
Einar Árnason:
Það var rétt hjá hv. 1. þm. Reykv., að það er ákaflega erfitt að koma í veg fyrir það, að einhverjir menn hlaupi fram fyrir skjöldu um lánsútveganir, ef þeim sýnist einhver fjárvon í aðra hönd, en það er eigi að síður staðreynd, að slíkt er mjög óheppilegt og getur hafi mjög slæmar afleiðingar og þess vegna nauðsynlegt að reyna að koma í veg fyrir það, eftir því sem föng eru á. En það er einmitt það atriði, að menn ganga á milli fjármálagóðbúanna erlendis með ríkisábyrgð upp á vasann. Þetta hlýtur alltaf að vekja lánstraustsspjöll. Nú er það um þetta raforkumál Rvíkur að segja, að það eru fleiri kaupstaðir en Rvík, sem þurfa að koma upp hjá sér rafveitu og vantar peninga til þess. Hvað á þá að gera við þá kaupstaði? Það er Ísafjörður og Siglufjörður og ef til vill fleiri, sem svo stendur á fyrir. Nú finnst mér ofureðlilegt, að allir þessir kaupstaðir sameini sig í þessu máli og fái eitt sameiginlegt lán. Og mér fyndist ekki ólíklegt, að þegar búið væri að koma öllum þessum rafveitum í fast form og allar áætlanir fyrir hendi, að þeir geti vel fengið lán upp á eigin spýtur. Það er ekki nokkur efi á því, að það eru til erlend firmu, sem væru til með að leggja rækt við það, þegar um fjárvon væri að ræða, og þau myndu vafalaust fús útvega peninga til slíkra fyrirtækja. ef þau gætu um leið umsett eitthvað af sínum vörum, eins og mér skilst, að hugsað hafi verið til hér í Rvík.
Hv. 1. landsk. hefir misskilið mig dálítið, og ef til vill hefi ég sjálfur gefið tilefni til þess. Það var út af þessu bréfi til landsbankastjórans. Af því að ég hefi ekki séð bréfið, gat ég ekki sagt, hvert orðalag þess var. Það var aðeins aðalatriðið, sem ég talaði um, og það var þetta, eins og ég minntist á, að óheppilegt væri, að menn gætu tekið upp á sig að ganga milli banka erlendis og spyrja, hvort þeir vildu veita lán gegn ábyrgð íslenzka ríkissjóðsins. Hitt var meira mín skoðun og aðallega minn skilningur á þessu, að þegar ákveðið væri fyrirfram, hvar lán skyldi taka og með hvaða kjörum, þá væri útilokað, að menn væru að ganga á milli og bjóða sig fram til að vera milligöngumenn fyrir slíkar lánsútveganir. Hv. þm. má ekki taka orð mín þannig, að ég hafi haft þau orðrétt úr bréfi, sem ég hefi ekki séð; það get ég ekki. Ég hefi aðeins skýrt frá því, hvert tilefni var til þess, að þessi orðrómur komst á loft, sem menn þekkja. Og ég hefi reynt að segja frá því, eftir því sem ég hefi skilið þennan mann, sem bréfið fékk, og sem hann tók upp á sig að skýra mér frá, af því að hann áleit, að rétt væri, að ríkisstj. fengi að vita álit þessa manns á þessum málum.