21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í B-deild Alþingistíðinda. (2568)

Stjórnarmyndun

Magnús Torfason:

Ég ætla ekki að blanda mér inn í þá deilu, sem hér hefir farið fram, en ég þóttist verða var við, að einu orði væri beint til mín, og því ekki sem fáguðustu. Hv. 1. landsk. sagði sem sé, að betri menn flokksins hefðu verið á móti því, að hv. 5. landsk. ætti sæti í stjórninni. (JónÞ: Tók hv. þm. það til sín?). Ég tók það til mín vegna þess, að ég skal játa það, að ég er einn af stuðningsmönnum hæstv. dómsmrh. í flokknum, og ég skammast mín ekkert fyrir að vera það.

En hitt álít ég ekki viðkunnanlegt, að skipta mönnum í tvo flokka, sauði og hafra, og ber það sízt vott um sérstakt gáfnafar eða greind þess manns, er það gerði.

Ég vil engan dóm á það leggja, hvort ég er í betri hluta flokksins eða ekki. Hitt vil ég taka fram, að þjóðin hefir a. m. k. dæmt svo í þessu máli, að þeir menn, sem styðja núv. hæstv. dómsmrh., hafi á réttu máli að standa, séu á réttum vegi. Ég vil ennfremur benda hv. d. á það, að allir hinir nýju þm. Framsóknarflokksins fylgja eindregið hæstv. dómsmrh. Þetta er engin tilviljun. Þetta sýnir stefnu hinna yngri manna, sem fylgja flokknum, og það sýnir, að flokkurinn hefir einmitt hneigzt að hans stefnu.

Það hefir oft verið talað um það hér, að meiri hl. þjóðarinnar hafi fordæmt þingrofið. Má færa það til sanns vegar að nokkru leyti, ef aðeins er einblínt á höfðatölu. En menn verða að gá að því, að Framsóknarflokkurinn er tiltölulega nýr flokkur og að nokkru leyti stéttarflokkur. Þess vegna gat engum heilvita manni dottið í hug, að hann myndi fá meiri hl. atkvæða við kosningarnar. En flokkurinn hefir stækkað og styrkzt við kosningarnar, og ég býst við, að allir muni játa, að „batnandi manni er bezt að lifa“. Þetta kemur til af því, að flokkurinn hefir haldið rétt á sinni stefnu.

Það má líka athuga það í þessu sambandi, að uppsteytingur sá, sem gerður var út af þingrofinu, var sannarlega ekki gerður í þeim tilgangi að tapa þingsætum, heldur þvert á móti. En árangurinn af öllu þessu brölti varð öfugur við tilganginn, m. ö. o., að báðir flokkarnir, sem stóðu fyrir því, eru nú stórum lækkaðir.

Það var sagt hér áðan, að hæstv. stj. væri ekki pólitísk stjórn. Jú, hún er vissulega pólitísk stj. Stjórnarfarslega séð er hún eina pólitíska stj. í landinu, sem um getur verið að ræða. Og hún er líka pólitísk stj. frá sjónarmiði andstæðinganna. Hún hefir átt frumkvæðið að því, að allt það mál, sem hin miklu læti spunnust út af í vor, verði rannsakað og hafinn verði undirbúningur að nýrri þingskipun. Er hæstv. stj. því pólitísk stj., hvernig sem á það er litið.

Það hefir verið friðsamt með mönnum hér í hv. d., og stafar það m. a. af því, að hv. andstæðingar okkar vita það, að Framsóknarflokkurinn muni athuga þetta mál af fullri sanngirni og muni vera þess albúinn að hjálpa andstöðuflokkum sínum til þess að fá þá þingskipun, sem þeir eiga rétt á, þegar allar aðstæður hafa verið athugaðar og það er séð, hvaða fyrirkomulag muni verða happasælast fyrir þjóðina.

Á 35. fundi í Nd., s. d., áður en gengið væri til dagskrár, mælti