19.08.1931
Efri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (257)

1. mál, fjárlög 1932

Jón Baldvinsson:

Ég vildi taka hér til umr. till. þær, sem ég flyt til atvinnubóta í kaupstöðum, af því að þær þykja mér mestu varða af þeim till., sem hér liggja fyrir. Ég hefi nú enn á ný ráðizt í að flytja till. um útgjöld í því skyni að halda uppi slíkum atvinnubótum. Eru mér þó vel í minni atkvgr. nú fyrir skemmstu, er slíkar till. voru drepnar af stjórnarliðinu. En ég vil ekki sleppa þessu tækifæri til þess að minna á, hve mikið þarf að gera að, til þess að bæta úr þessu böli, sem nú steðjar að, og hve þörfin er brýn.

Það er þá eitt aðalatriðið í till. mínum, að ríkið leggi fram 250 þús. kr. til atvinnubóta í kaupstöðum án framlags af hálfu kaupstaðanna. Þetta er borið fram vegna þess að ég veit, að margir kaupstaðir eru svo stæðir, að þeir geta ekki lagt fram fé af eigin ramleik, eins og virðist vera aðalhugsunin í till. hæstv. forsrh. og flokksmanna hans í Nd. En þá verður ríkissjóður að koma til skjalanna; hann hefir venjulega afgang af tekjum fram yfir áætlun fjárl., og auk þess ótal vegi með útvegun peninga, sem bæjarfélögin hafa ekki. Ég tel því sjálfsagt, að ríkið fyrst og fremst leggi þetta fram. Það heyrir ekki undir Alþingi að skylda bæjarfélögin til þess að leggja fram slíkt fé. Þau gera vafalaust það, sem þau geta, flest. Hinsvegar er þess að gæta, að þau bæjarfélög, sem ekkert vilja gera, taka þá varla lán til þess hjá ríkinu. En þó er gott og sjálfsagt, að slík heimild sé til.

Ég hefi því flutt till. um, að ríkið veiti 250 þús. kr. styrk til bæjar- og sveitarfélaga gegn framlagi á móti, og loks aðra till. um að verja megi 250 þús. kr. til þess að lána bæjar- og sveitarfélögum þeim, sem ekki hafa fé til þess að leggja á móti ríkissjóði. Ég álít nauðsynlegt að hafa þessa heimild til í fjárl. Við sjáum, hvernig hrepparnir koma sumir uppgefnir til Alþingis og beiðast hjálpar.

Þá flyt ég enn till. um, að stjórninni skuli vera heimilt að taka lán, allt að 500 þús. kr., til atvinnubóta. Þetta var sú till., sem ég var mest í vafa um, hvort ég ætti að flytja, því ég álít, að í fjárl. séu huldar tekjur. Hinsvegar bjóst ég við, að stj. þættist varbúin við því að hefja framkvæmdir, ef þessi lánsheimild væri ekki til. Svo hæstv. stj. og flokkur hennar geta ekki sagt, að ekkert sé hægt að gera, ef þetta verður samþ. Ég vildi ekki láta þetta atriði verða hinum till. að falli.

Ég þarf ekki miklu að bæta við ræðu mína frá í dag. Ég lýsti þá ástandinu eins og það er nú í kaupstöðunum. Alstaðar eru sömu vandræðin og sama vofan framundan. Hvergi eru peningar hjá fólki og ekkert sparifé. Fjöldi manna á ekki annað í vændum en að leita til sveitarsjóðanna. Og það er svo, að það hefir verið óvenju mikil aðsókn að sveitarsjóðunum jafnvel nú yfir sumarið.

Þá hefi ég einnig sett það ákvæði, að stj. Alþýðusambandsins hafi íhlutun um framkvæmdir í þessum málum. Það er vegna þess, að henni er nákunnugt um allar ástæður úti um landið. Ég sé, að hæstv. fjmrh. hefir tekið svipað upp í sína till., og er að því leyti gott um hana að segja. Ég geri því ekki ráð fyrir, að þetta ákvæði valdi mótstöðu. Ég get sagt það, að ég kýs fyrst og fremst, að minar till. verði samþ., en ég greiði auk þess atkv. með till. hv. þm. Hafnf. um veg milli Hafnarfj. og Rvíkur. En ég vil ekki að svo stöddu segja, hvað ég geri viðvíkjandi till. hæstv. stj., ef mínar verða felldar.

Þá sný ég mér að öðrum brtt. mínum við fjárl.

Ég á hér brtt. um framlag til Fjarðarheiðarvegar, 10 þús. kr. Allir eru í rauninni sammála um, að það er sjálfsagt að veita fé til þessa vegar. Það er m. a. s. ekki langt síðan hv. 5. landsk. barðist fyrir því. En þegar við síðustu umr. um fjárlög var farið fram á 20 þús. kr., snerust framsóknarmenn móti því. Það væri þó synd að segja, að ástandið á Seyðisfirði væri svo gott hvað atvinnu snertir, að ekki væri þörf á verklegum framkvæmdum þar um slóðir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að sá staður er í hinni mestu niðurníðslu og gæti þá fyrst rétt við, ef menn gætu komið sér upp atvinnutækjum. En þó að eitthvað tækist í því efni, þá er það svo nauðsynlegt verk, sem hér liggur fyrir, að það er óforsvaranlegt, ef þingið veitir ekki fé til þess. Og þetta því fremur sem það hefir veitt til ýmsra vegagerða meira en stjórnin ætlaðist til, af því að menn vilja ekki gefast upp við að sameina vegakerfi landsins.

En það virðist vera einhver hreppapólitík í þessu, að bregða fæti fyrir þetta mál, sem er til stórskaða fyrir sveitahéruðin á Austurlandi, en virðist vera runnin undan rifjum kaupfélagsins á Reyðarfirði. Það er eins og það vilji sitja eitt að vegasambandinu við Héraðið. Þetta kom fram í mótstöðu við veginn milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. En mér þykir rétt að geta þessa, svo að það komi skýrt fram í þinginu.

Næsta brtt. mín er á þskj. 342,X. Í fjárl. undanfarið hefir verið heimild til þess að verja af skólafé 2 þús. kr. til þess að halda uppi kennslu í námsgreinum Guðm. Bárðarsonar. En hann hefir haft frí með fullum launum til þess að starfa að rannsóknum sínum. Þetta hefir nú verið fellt niður. En fyrir þinginu liggur umsókn hans um að mega halda þessu eitt ár enn, til þess að vinna úr rannsóknum sínum. Ég fer ekki að telja hér upp fyrir hv. þdm. hinar merkilegu rannsóknir Guðm. Bárðarsonar, en vil aðeins geta þess, að þessi maður hefir ekki haft sömu aðstöðu til vísindastarfa sem slíkir menn eru vanir að hafa. Hann var bóndi norður á Ströndum í ein 20 ár, en vann þá að rannsóknum, sem vöktu athygli bæði utanlands og innan. Hann var síðan gerður að kennara við skólann á Akureyri, og síðast kennari við menntaskólann í Reykjavík. Nú ætti hann að fá viðurkenningu frá þinginu með þessu fríi frá kennslustörfum, til þess að hann geti óskiptur helgað sig þeim vísindaiðkunum, sem hann hefir áhuga fyrir og hefir mikið unnið að. Það liggur þó mikið verkefni fram undan, því að mikið er ennþá eftir að rannsaka í landinu. Og innlendir menn eiga eftir að leggja fram sinn skerf móti þeim útlendu vísindamönnum, sem hér hafa starfað að rannsóknum. Ég álít því, að rétt sé að veita þessum kennara frí frá kennslustarfi, svo að honum sé kleift að vinna að sínum áhugamálum, til gagns og sóma fyrir landið.

Þá flyt ég enn till. um að auka styrk til bókasafns Hafnarfj., og hefi nú till. aðeins um 2 þús. kr., og er það mikil hæverska, þar sem bókasöfn hinna kaupstaðanna, þar sem líkt er ástatt, hafa um 3 þús. kr. styrk. Ég get aðeins vísað til þess, sem sagt var um daginn, bæði af mér og hv. þm. Hafnf., sem enn flytur till. í sama skyni. En ég tel hana bara að sárlitlu gagni, því að með þessum 1000 kr. er tæplega kleift fyrir kaupstaðinn að halda uppi bókasafnsstarfsemi sinni. (BSn: Það er heldur ekki gert ráð fyrir því með þessum 1000 kr.). En ég held, að kaupstaðurinn væri miklu bættari með 2 þús. kr., enda þótt hann sé þá skör lægra settur en tveir aðrir kaupstaðir, — í von um það, að þetta yrði leiðrétt síðar í fjárlögum.

Þá hefi ég enn flutt till. um styrk til dr. Guðbrands Jónssonar, til að semja ísl. miðaldamenningarsögu, 1600 kr. Ég miða þá upphæð við það,sem venja er að veita honum árlega. En ég skildi atkvgr. síðast þannig, að menn fyrir kreppuótta og sparnaðarhug vildu klípa af þessari fjárhæð sem öðrum í fjárl. og samþ. þennan lið lægri. Vil ég nú gefa hv. þm. tækifæri til þess að samþ. þessa fjárveitingu sem einskonar uppfyllingu á loforði. Ég þarf ekki heldur að taka það fram, að þessi maður er allra manna fróðastur um þessi efni, og hefir mikið ritað um þau, er hverjum manni vinnusamari og svipar í því til föður síns, dr. Jóns Þorkelssonar. Ef það skyldi nú reynast svo, að hv. þm. vildu ekki fallast á aðaltill., þá flyt ég varatill. um 1500 kr., sem ég álit það lægsta, sem hægt er að bjóða fyrir þetta starf.

Ég var búinn að minnast á till. um atvinnubætur í kaupstöðum og kauptúnum, og get látið útrætt um þær.

Ég hefi flutt till. á þskj. 346, um að hækka styrk til sundlauga um 4 þús. kr. Er ætlazt til, að sú fjárhæð fari til sundlaugar í Bolungarvík. Í þeim hrepp hafa menn unnið mikið að því að koma upp sundlaug, og varið til þess, að því er mér er sagt, 10 þús. kr. En þessi framlög og vinna kemur ekki að gagni vegna fjárskorts til að halda áfram. Nú um langt skeið hafa menn verið örfaðir til sundlaugabygginga með því að veita ríflega styrki úr ríkissjóði. Og fél., sem hér á hlut að máli, á sannarlega skilið að fá sinn styrk eins og aðrir, enda sé hann greiddur í sömu hlutföllum og aðrir sundlaugastyrkir.

Þess má geta, að Bolungarvík er eitt af stærstu sjóplássum landsins, og er því fullt eins mikil stæða til að styrkja sundlaug þarna eins og langt uppi í landi, þó að alstaðar sé að vísu þörf fyrir sundkunnáttu.

Þá hefi ég flutt undir IX. lið brtt. um fjárveitingu til vatnsveitu á Hvammstanga. Það er farið fram á helming kostnaðar, 9 þús. kr. Hefir landsverkfræðingur gert þá áætlun, eftir rannsókn, sem eiginlega fór fram í fyrra. Það liggur fyrir teikning og áætlun um þessa vatnsveitu. Vitanlegt er það, að kauptúnið sjálft hefir ekki fé til þess að leggja í þessa vatnsveitu, sjálfsagt fullerfitt að leggja fram helming. Allir þekkja, að frá heilbrigðissjónarmiði er mjög nauðsynlegt að hafa góða vatnsveitu þar sem margt fólk er saman komið. Því að ef sótt kemur upp vegna vatnsbóls, er það eitthvað það hættulegasta, sem fyrir getur komið, en þau dæmi þekkjum við frá Húsavík. Þar þótti nauðsynlegt að styrkja fullkomna vatnsveitu fyrir nokkrum árum.

Það er gert lauslega ráð fyrir, að vatnsveitan verði 1100 metra löng frá geyminum, sem byggður verður við lind fyrir ofan kauptúnið, og síðan verði 500 m. lögn í sjálfum götunum. Í áætluninni er vitanlega ekki um annað að ræða en leiðslu vatnsins niður í þorpið, og nokkuð um göturnar með vatnshönum, sem menn geti sótt vatn til, en sjálfir verða einstaklingar að kosta lagnir í húsin og um þau. Það er ætlazt til, að vatnsveitan nægi 500 manns, en hana er líka hægt að auka seinna tiltölulega kostnaðarlítið. Ég vænti því þess, að hv. d. veiti stuðning sinn til þess, að þetta kauptún geti komið upp svo nauðsynlegu mannvirki, því að það er trúlegt, að þetta nauðsynjaverk dragist alllengi, ef ríkið veitir ekki stuðning sinn.