21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)
Stjórnarmyndun
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Út af tilkynningu hæstv. forsrh. og í sambandi við breyt. þá, sem orðið hefir á ráðuneytinu, vil ég segja nokkur orð.
Þegar Framsókn myndaði stjórn fyrir 4 árum og fól Jónasi Jónssyni dómsmálaráðherraembættið, þá kom flestum það mjög á óvart. Að því leyti sem þessi maður var kunnur þjóðinni, var hann kunnur að því að vera óvenjulega harðsnúinn og rangsleitinn blaðamaður. En almennt munu menn hafa litið svo á, að það væru ekki fyrst og fremst þessar „dyggðir“, sem ættu að prýða þann mann, sem settur væri sem vörður réttlætisins. Þegar minnzt var á þetta við flokksmenn hans, játuðu þeir þetta, en þeir afsökuðu það með því, að hann væri svo margvíslegum kostum búinn og reynslan myndi verða sú, að þeir kostir myndu yfirgnæfa ókostina, þegar hann tæki meir að finna til ábyrgðarinnar af starfi sínu.
Nú hefir þessi maður með 4 ára valdaferli gefið mönnum kost á að athuga, hver hlutföll eru á milli kosta hans og ókosta. Nú hefir 4 ára reynsla úr því skorið, hvort betur hafa mátt sín ókostir hans eða kostir, studdir af ábyrgðartilfinningu þess manns, sem búið er að leggja á herðar vernd réttlætisins í landinu.
Ég skal ekki fella minn dóm um það, og því síður er þörf á því fyrir mig, þar sem sjálfur Framsóknarflokkurinn felldi sinn dóm í þessu máli, þegar hann vék honum úr ráðherrasæti. Flokknum mun þá hafa verið ljóst, að mælir synda hans var fullur orðinn og nú væri full þörf á því að sýna iðrun og yfirbót. Með flokknum vaknaði nú ný og áður ókunn tilfinning, — sómatilfinning. Meiri hl. hafði fengið aðkenningu af þessari tilfinningu og taldi sér ekki fært að lúta þessum manni. Þeir fóru ekkert dult með það, að tilgangurinn væri engu síður sá, að losna við þennan mann fyrir fullt og allt, þótt flokkurinn kæmist aftur í meiri hl. Þeir fóru ekkert dult með það, að það væri hægara að koma í veg fyrir, að hann kæmi aftur.
Það vita allir, að ég fer hér með rétt mál. En sómatilfinning flokksins varð ekki ellidauð. Hún veslaðist upp á 4 mánuðum. Og m. a. s. nú, þegar konungurinn hefir reist þessari 4 mánaða sómatilfinningu Framsóknarflokksins þann legstein, sem Jónas Jónsson er, þá efast maður um, hvort það hafi verið blygðun yfir því, að styðja Jónas Jónsson í ráðherrasæti eða hræðsla út af samábyrgðinni, sem fyllti Framsóknarflokkinn þessum eldmóði 20. apríl, að hann gat hrint af sér þessum manni, Eftir að það er fram komið, sem nú er fram komið, þá neyðist maður til að álita, að frekar hafi verið um ótta en ábyrgðartilfinningu að ræða, þegar Jónasi Jónssyni var bægt úr ríkisstjórninni. Það mætti segja, þegar þessi maður birtist aftur í ráðherrasessi, eftir að hafa verið af lífi tekinn og eftir að hafa legið 4 mánuði í sinni pólitísku gröf, að ástæða væri til að bregða upp mynd af honum. En ég ætla ekki að gera það að þessu sinni, af því að flestir þekkja syndaferil þessa manns og er það ljóst, að það er satt, sem ég hefi tekið hér fram. En hitt vil ég benda á, hvað framundan muni vera.
Ég efast ekki um, að Framsóknarflokknum muni vera það ljóst eins og öðrum, að nú er svart framundan. Allir, sem skyn bera á, vita, að tímarnir eru mjög alvarlegir. Ég er ekki gamall maður, en ég hefi heldur aldrei séð svo svarta tíma. Atvinnuvegir allir standa höllum fæti, og allir vita, að þeir, sem lifa á mánaðarlaunum, eru ekki of sælir, en samt er vitanlegt, að kaup verður að lækka.
Þegar allir vita, að kringumstæður eru óvanalega erfiðar og svartara er um að litast en nokkru sinni áður, þá er það skylda hvers einasta manns að gera allt, sem hægt er, til að bjarga þjóðinni fram úr örðugleikunum. Hver flokkur, sem annarsstaðar hefði farið með völd, hefði leitað eftir samvinnu við aðra flokka þingsins og jafnvel seilzt svo langt, að leitast fyrir um samsteypustjórn.
Ég segi ekkert um það, hvernig slíku hefði reitt af, og veit, að Framsóknarflokkurinn hefir ekki það víðsýni, þótt hann viti, að hann hafi þeim mönnum fram að tefla, sem hefðu getað stuðlað að samvinnu við aðra flokka. — En þess hefði mátt vænta, að ekki hefðu verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að hnekkja samvinnu innan flokksins og koma í veg fyrir, að þeir kraftar, sem hann á innan sinna vébanda, geti notið sín. Og virtist því sjálfsagt, að í stjórnarsessinn væru valdir þeir menn, sem saman gætu unnið.
En nú er það öllum kunnugt, að þegar kosningin var afstaðin, þá gerði Jónas Jónsson frá Hriflu þá kröfu, að Tryggvi Þórhallsson víki úr forsætisráðherrasessinum og hann settist þar sjálfur. Og allir vita, að Jónas hefir lítið dálæti haft á hv. þm. V.-Ísf., sem nú er orðinn fjmrh., og enginn veit það betur en hæstv. fjmrh. sjálfur. Allir vita, að Jónas hefir lagt svo mikla fæð á þennan hv. þm., að hann gat ekki látið kosningu hans afskiptalausa, heldur skrifaði hann manni í kjördæmi hans og sagði, að flokknum væri það happ mikið, ef hann félli.
Ég er talsvert kunnugur hæstv. fjmrh., en ég veit þó ekki, hvern hug hann ber til hæstv. dómsmrh., því þótt við höfum um margt spjallað, þar sem við erum persónulegir kunningjar, þótt við séum pólitískir andstæðingar, þá get ég ekkert eftir orðum hans dæmt í þeim efnum.
En eftir því, sem altalað er í bænum, þá hefir þessi hæstv. ráðh. gert allt, sent hann hefir getað, til að bægja hv. 5. landsk. frá völdum. Þessi tregða, sem verið hefir á stjórnarmynduninni, hefir verið sögð af því sprottin, að innan Framsóknar hafa barizt 2 harðsnúnir flokkar, þar sem annar hefir verið á móti Jónasi Jónssyni, en hinn hefir viljað styðja hann. — Meðal þeirra, sem harðast hafa barizt á móti honum, er núv. hæstv. fjmrh., og auk þess hv. 3. landsk. (JónJ), hv. þm. Mýr. (BÁ), hv. þm. V.-Sk. (LH), hv. l. þm. Eyf. (BSt) og báðir þm. N.-M. (HStef og PH). Það er sagt, að þeir hafi verið 10, sem studdu hæstv. dómsmrh. að völdum, en 7 voru þeir, sem á móti stóðu, en nokkrir voru afskiptalausir. — Um þennan harðvítuga bardaga er rétt að geta, til verðugs lofs þeim, sem gegn Jónasi börðust, en til minni heiðurs þeim, sem hafa ekki aðeins það til saka unnið að setja þennan mann í ráðherrastól, heldur einnig sett við hlið honum hans harðvítugasta andstæðing Nú væri ekkert um þetta að segja, ef mannkostir hæstv. fjmrh. gætu komið í veg fyrir miður heiðarlega starfsemi hæstv. dómsmrh., en eins og ég hefi áður sagt við hæstv. fjmrh., þá er það aðeins einn maður, sem hefir tök á því að gera enn minna úr hæstv. fjmrh. en hann hefir sjálfur gert úr sér með því taka nú við þessu embætti, og sá maður er Jónas frá Hriflu. Hann veit, að með hverju nýju ódæði, sem hann fremur, þá fellur nýr blettur á lítt flekkaðan skjöld hæstv. fjmrh. Jónas Jónsson vinnur sér létt í óþrifaverkunum, en auk þess veit hæstv. fjmrh. vel, að Jónas Jónsson mundi ekki spara neitt ómak til þess að gera veg hæstv. fjmrh. sem minnstan. Hæstv. fjmrh. veit það, að andúð hans, og andúð flestra sæmilegra manna innan Framsóknarflokksins gegn Jónasi Jónssyni, stafar ekki af þeirri löggjöf, sem hann hefir barizt fyrir, hans afrek í þeim efnum eru heldur lítil, og fæst þess eðlis, að hægt sé að leggja fæð á menn af þeim sökum —, en hitt veldur, að athæfi hans í ráðherrastóli hefir verið með þeim hætti, að það er óverjandi, og hvert hans athæfi í ráðherrastól verður í framtíðinni, það getur hæstv. fjmrh. ekki haft minnstu áhrif á. Hann getur einungis tekið það ráð að fara frá völdum, ef hann unir ekki ódæðunum, sem þar verða framin. En hann verður að afsaka, þótt hinir kunnugri menn efist um þrek hans til þess að gera það á móti sínum flokki að láta af völdum, hversu hátt sem alda andúðarinnar gegn framferði meðverkamanns hans kann að rísa í brjósti hans, þar sem hann nú brast þrek til þess að neita að verða ráðherra.
Ég skal svo ekki fara miklu fleiri orðum um það, hvernig viðhorf og aðstaða öll er nú í stjórnmálunum. Ég vil aðeins endurtaka það, að aldrei hefir verið svartari blika í lofti en einmitt nú vofir yfir framtíðarheill okkar litla og fátæka lands. Þegar svo stendur á, er það skylda allra landsins barna að gera það, sem í þeirra valdi stendur, til þess að stýrt verði út úr ógöngunum. Framsóknarflokkurinn hefir með þessari stjórnarmyndun ekki aðeins látið undir höfuð leggjast að tefla fram þeim mönnum innan sins flokks, sem líklegastir eru til samstarfs um að yfirbuga og létta af þeirri kreppu og þeim örðugleikum, sem framtíðin býr yfir, heldur hefir hann með útnefningu Jónasar Jónssonar til þess að gegna dómsmálaráðherraembættinu rekið hnefann framan í alla andstæðinga sína og framan í allt velsæmi í þessu landi. Ég vildi feginn geta boðið þessa stjórn velkomna, því að á þessum tímum álít ég, að öll minni háttar fæð eigi að falla niður og að menn eigi að sameinast um heill ættjarðarinnar, en — ég get það ekki, því að ég hefi enga von um, að þessi stjórn leysi þau viðfangsefni, sem bíða hennar, meðfram að því, að lítil von er til þess, að þeir menn, sem hana skipa, geti neytt hæfileika sinna sökum sundurþykkis. Ég held þess vegna, að eins og nú horfir við sé ekki annað að gera en að óska þess, að hið illa, sem fram á að koma, komi strax.
Ég vil, áður en ég lýk máli mínu, taka það fram, að ég álít, að ekki eigi allur Framsóknarflokkurinn óskilið mál um það, sem hér er að gerast. Mér er vel ljóst, að það er sitt hvað, að æskja eftir annari stjórnarmyndun eða hafa þrek til þess að reka hnefann í borðið og segja: Það skal aldrei verða. Þau orð, sem ég hefi nú mælt, voru fyrst og fremst mælt til hæstv. fjmrh. og forsrh., því að þeir bera aðalábyrgðina á þessum atburði.