21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (2571)
Stjórnarmyndun
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Mér kemur í hug í þessu sambandi frásögn löngu liðinna tíma um mann á okkar landi, sem hafði að vissu leyti svipaða aðstöðu eins og hv. þm. G.-K. hefir nú. Þessi maður hóf baráttu og sókn og efldi flokk til framdráttar sínu máli. Það er sagt mjög skemmtilega frá því í einni af okkar merkari bókum, hvernig framkoma þessa unga foringja og fullhuga var. Mig minnir, að það væri sagt um hann eitthvað á þá leið, að hann mundi verða vitugur maður, er hann gæti stillt sig fyrir ofsa.
Ég veit ekki, hvort hv. þm. G.-K. á það sammerkt við þennan gamla kappa, að hann sé vitugur maður, en hitt veit ég, að hann hefir vart stillt sig fyrir ofsa.
Út af orðum þeim, sem hv. þm. lét falla hér áðan, ætla ég ekki að segja margt. Ég álít það skynsamlegra fyrir hv. þm. G.-K., ef hann vill tala um samstarf í einhverjum flokki, að tala fyrst og fremst um samstarfið í sínum eigin flokki, því að það er honum kunnara en samstarf og samvinna innan Framsóknarflokksins. En ég vil einnig minna á það, að þegar hv. þm. réttilega benti á þá erfiðu tíma og þau miklu vandræði, sem telja má víst, að séu framundan á öllum sviðum, og þegar hann í sinni ræðu lætur orð falla um það, að jafnvel hinir harðvítugustu andstæðingar í hinum mismunandi stjórnmálaflokkum hefðu átt að taka höndum saman, þá verður næsta erfitt að finna samræmið á milli þeirra orða og þess, að hann áfellist nú Framsóknarflokkinn svo harðlega fyrir það, að hafa staðið saman og sameinað sína krafta til þess að geta vikizt undir þá ábyrgð, sem þjóðin hefir lagt honum á herðar með því að fela honum í hendur meiri hl. Ég tel ekki ástæðu til þess að stofna til mikilla deilna við hv. þm. í þessu sambandi. Ég vildi óska, að það reyndist svo um hann, að honum tækist að stilla sitt kapp og verða það vitugur maður, að hann láti umhyggjuna fyrir alþjóð vega meira en það, sem nú hleypir í hann kappi bæði í þessu og öðrum málum. Eins og nú standa sakir, er það ekki aðalatriðið að dæma um eitt og annað, sem mönnum hefir komið illa saman um í fortíðinni; aðalatriðið er það, að dómurinn um okkur alla er framundan, um það, hvernig við, fulltrúar þjóðarinnar, víkjumst undir þá ábyrgð, sem á okkur hvílir, þar sem það er nú viðurkennt, að um meiri erfiðleika og vandræði er að ræða en nokkru sinni áður. Það verður því þyngri dómur lagður á oss nú en áður um. það, hvernig við reynum að sjá ættlandinu farborða undir slíkum kringumstæðum.