21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)
Stjórnarmyndun
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. þm. G.-K. beindi til mín í ræðu sinni.
Ég býst við, að hv. þm. G.-K. sjái það, ef hann hugsar nokkuð út í málið, að það er tilgangslaust fyrir okkur að deila hér um okkar fortíð og leggja út af því, hvort við almennt eða í einstökum atriðum höfum haft heill ættjarðarinnar fyrir augum eða eitthvað annað.
Stjórnmálamenn verða að sætta sig við, að sá dómur komi eftir á. Það er hin objektiva saga, sem leggur dóm sinn á verk þeirra.
Hv. þm. lét svo um mælt, þegar hann vék að minni fortíð, að það hefði verið mikið gæfuleysi, sem hefði fylgt þeirri stj., sem ég veiti forstöðu síðan 1927. Ég vil ekki láta þessu ómótmælt. Í skjóli þeirra góðæra, sem komið hafa yfir landið á þessu tímabili, hafa orðið fyrir forgöngu þess flokks, sem stjórnað hefir landinu, meiri og betri framkvæmdir en nokkru sinni áður á voru landi. Landið hefir verið ræktað meira og ötullegar en nokkru sinni áður siðan þetta land var byggt. Það hefir verið gert mikið til þess að veita menntun og heilsusamlegum áhrifum til fólksins, og yfirleitt má segja, að nú í lok þessa kjörtímabils sé landið betra og byggilegra en nokkru sinni áður.
Ég vil enda þessi orð með því að óska hv. þm. G.-K. þess, að ef það á einhverntíma fyrir honum að liggja að taka þátt í stj. landsins, megi hann líta yfir jafngæfusamlegt tímabil og miklar framfarir sem við nú getum, því við skilum nú landinu miklu betra en við tókum við því.