11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1322 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)
Afgreiðsla þingmála
Forseti (JörB):
Ég skal skjóta því inn, út af því, sem fram kom hjá síðasta ræðumanni, að náttúrlega er ætlazt til, að n. afgr. mál eftir því, sem þeim vinnst tóm til, hvort sem þær eru þeim fylgjandi eða ekki, því viljað getur til, að þd. líti öðrum augum á mál en sú n., sem fær málið til meðferðar.
Annars er nú umr. um þetta mál lokið.