14.08.1931
Efri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (2603)

Afgreiðsla þingmála

Guðrún Lárusdóttir:

Ég bar fram eitt mál, sem ég tel stórmál og þarfamál og get ekki hugsað til, að látið sé óafgreitt. Ég veit, að það er hjá allshn. og sjálfsagt í góðum höndum. Ég vænti þess þó, að það sé í höndum þeirra manna, sem skilja það, að íslenzku þjóðinni liggur á að eignast sem fyrst fávitahæli. Satt að segja er mig farið að lengja eftir einhverju lífsmarki frá nefndarinnar hálfu út af máli þessu.