20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (2611)

Afgreiðsla þingmála

Jónas Jónsson:

Eins og við hv. 2. þm. S.-M. höfum tekið fram í nál., er um óvenjulega meðferð á þessum málum að ræða í hv. Nd., þar sem ekki hafa legið fyrir neinar áætlanir eða nein skjöl til að byggja á. Þetta þótti okkur óviðeigandi og höfum því beðið um frekari upplýsingar, og þar sem meiri hl. hv. þdm. mun þessum málum hlynntur, er engin ástæða til að flaustra þeim af rannsóknarlaust.