22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (2626)

Afgreiðsla þingmála

Jakob Möller:

Hv. þm. spurði, hvort þessi boð hefðu verið gerð. Ég er búinn að svara því neitandi í því trausti, að hann svaraði þá þeirri spurningu, sem til hans var beint. Það hefir hann ekki ennþá gert. En það þýðir lítið fyrir hv. þm. að bera fram fyrirspurn, ef hann slær því föstu um leið, að svarið sé ekki rétt.