17.07.1931
Neðri deild: 3. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

1. mál, fjárlög 1932

Magnús Guðmundsson:

Hæstv. forsrh. hefir ekki enn svarað fyrirspurn minni, en lét þó í veðri vaka, að hann mundi gera það síðar. Vona ég, að þar verði af efndum sem fyrst, og áður en þetta frv. verður aftur tekið til umr. Það, sem ég óska upplýsinga um, er þetta: Hvað mikið greitt hefir verið af gjöldum ríkissjóðs fyrir árið 1930, síðan fyrrv. fjmrh. gaf þinginu skýrslu sína í vetur? Og í öðru lagi, hver orðið hafi gjöld og tekjur ríkissjóðs, það sem af er yfirstandandi árs.